Bændablaðið - 14.03.2019, Blaðsíða 48

Bændablaðið - 14.03.2019, Blaðsíða 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. mars 201948 MATARKRÓKURINN LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR Á bænum Eystra-Fróðholti búa Ársæll Jónsson og Anna Fía Finnsdóttir. Þau tóku við búinu á vordögum 1990. Á bænum er stundaður blandaður búskapur með mikla áherslu á hrossarækt. Býli: Eystra-Fróðholt. Staðsett í sveit: Rangárþing ytra. Ábúendur: Ársæll Jónsson og Anna Fía Finnsdóttir. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Tvö uppkomin börn, Ragnheiður Hrund og Jón Finnur, tvær tíkur ,Nala og Slaufa, og ein kisa. Stærð jarðar? 5.350 hektarar þar af 75 hektarar af ræktuðu landi. Gerð bús? Blandað bú; kýr, ær, hross og geitur. Fjöldi búfjár og tegundir? 22 kýr, 76 nautgripir, 280 fjár og 14 geitur. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Dagurinn byrjar á mjöltum og gegningum fram að hádegi, eftir hádegi taka við tamningar og þjálfun á hrossunum og síðan taka við mjaltir og gegningar seinni partinn. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Skemmtilegast er þegar vel gengur með þjálfun og sýningar á hrossunum og sauðburður, allra leiðinlegustu bústörfin er að hirða rúllur. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Svipaðan, vonandi betri. Ef það verður ekki farið að flytja inn allar landbúnaðarvörur. Hvaða skoðun hafið þið á félags- málum bænda? Þeir sem standa að félagsmálum bænda eru að standa sig vel. Hvernig mun íslenskum land- búnaði vegna í framtíðinni? Það fer eftir því hvernig verður tekið á málunum og hvort bændur standi saman. Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Tækifærin eru mörg, sérstaklega ef hreinleiki íslenskra búvara verður haldið meira á lofti. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Smjör, ostur og mjólk. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Lambalæri og hrossalund, svo er saltað hrossakjöt í miklu uppáhaldi. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Mjög eftirminnilegt atvik í búskapnum er þegar ég var að koma úr merkisafmæli hér í sveit undir morgun. Þá sá ég að Sæla var að kasta honum Sæ okkar þannig að við gætum fylgst með þeim merkisatburði. Óhætt að segja að það hafi verið með því eftiminnilegra hér. Kjúklingaréttir og blómkál Viltu byggja vöðva og missa fitu? Þá þarftu prótein! Það er mælt með um 30 g af próteini á dag til að byggja upp sterkan líkama. Prótein er sameind úr amínósýrum. Það er nauðsynlegt bæði fyrir til dæmis hár og neglur og er mikilvægur þáttur í vöðvauppbyggingunni. Rannsóknir benda til þess að besta leiðin til að fá nóg prótein er úr mataræði og gott er að borða 20–30 grömm af próteini í hverri máltíð. Matur sem inniheldur 30 g af próteini Beikon 7 þykkar sneiðar: 29,3 g prótein Beikon er góð leið til að fá prótein, er með mikið af kaloríum og mikið af mettaðri fitu. Reyndar er það nánast jafn mikill hluti af próteini og fitu! Harðsoðin egg 5 stór egg: 31,5 g prótein Egg eru frábær uppspretta af próteini. Ef þú ert að reyna að minnka hitaeiningar geturðu alltaf borðað eggjahvítu, en þú þarft um það bil átta af þeim til að fá sama magn af próteinum. Jarðhnetur 120 g 33 g prótein Grillaðar kjúklingabringur 120 g 29,2 g prótein Kjúklingur er vinsæll af góðri ástæðu. Kjúklingabringur hafa mikið prótein án þess að hafa mikið af kolvetnum eða fitu. Hann er líka góð uppspretta af vítamínum eins og B6. Hunangsmandarínu-kjúklingur Ótrúlega safaríkur, mjúkur og ljúffengur kjúklingur sem er fullkominn kvöldverður, tilbúinn á innan við 40 mínútum! › 1 heilt stykki kjúklingur (eða 8 læri) › 3 msk. smjör › 4 rif hvítlaukur, söxuð › Salt og pipar eftir smekk › 1/2 bolli af mandarínusafa (má nota appelsínu ef fólk nennir ekki að kreista mandarínur) › 1/2 bolli sojasósa › 2 matskeiðar hunang › 1 matskeið hrísgrjónaedik › Meðlæti að eigin vali › 1/4 búnt kóríanderlauf í skraut Aðferð Hitið ofn í 220 gráður Setjið kjúkling á bretti, hlutið niður í bita. Blandið saman smjöri og hvítlauk í skál. Losið skinnið aðeins af kjúklingnum með fingrunum og smyrjið hvítlaukssmjöri undir skinnið. Dreifið restinni yfir kjúklinginn. Kryddið með salti og pipar. Blandið í skál mandarínusafa, sojasósu, hunangi og hrísgrjónaediki. Setjið mandarínublönduna yfir kjúklinginn og setjið í ofninn. Steikið kjúklinginn í 30–40 mínútur, hellið yfir með pönnusafanum á 15 mínútna fresti. Haldið áfram að steikja kjúkling þar til hitamælir, sem er settur í þykkasta hluta brjóstsins, nær 70 gráðum. Flytjið kjúklinginn á bretti eða bakka og látið hvíla í 8–10 mínútur. Skerið kjúklinginn í sundur og framreiðið með meðlæti og pönnusafanum sem er aðeins búið að sjóða niður. Fallegt að skreyta með nokkrum sneiðum af mandarínum. Hollari naggar › 1 miðlungsstór bökunarkartafla › salt › Ferskmalaður svartur pipar › 1/4 bolli af mjólk › 1 msk. ósaltað smjör › › 1 msk. aukalega ólífuolía › 1–2 kjúklingabringur eða afgangs kjúklingakjöt Aðferð Skrælið kartöfluna og skerið í 1/2 tommu stykki. Setjið kartöfluna í saltað vatn í miðlungsstóran pott. Látið kartöfluna sjóða og eldið þar til hún er soðin, í um 20 mínútur. Hellið vatninu af. Blandið síðan saman með mjólkinni, smjöri og salti og pipar eftir smekk. Látið kartöfluna kólna. Hitið ofninn í 210 gráður. Setjið hvern kjúklingabita á disk, gerið vasa með hnífi og skiptið kartöflufyllingunni á milli bitanna og veltið svo upp úr hveiti, egg og raspi (eða muldu kornflexi) bakið í ofni þar til kjúklingurinn er fulleldaður (hægt að nota eldaða afganga þá er eldunar tíminn styttri). Framreiðið með dipp-sósu að eigin vali. Blómkáls Mac 'N' Cheese › 1 höfuð blómkál › salt, eftir smekk › pipar, eftir smekk › ¼ bolli sýrður rjómi eða grískt jógúrt (60 g) › ½ bolli rifinn cheddar-ostur (50 g) › ferskt steinselja, söxuð › Aðferð Skerið blómkál í bita. Setjið blómkálið í sjóðandi vatni og sjóðið í 5 mínútur. Sigtaðu blómkálið og færðu aftur í pottinn. Dragðu úr hitanum. Setjið í salt, pipar og sýrðum rjóma og hrærið þar til það er blandað saman. Hrærið cheddar-osti þar til það er brætt. Takið af hitanum. Skreytið með steinselju (flott er að framreiða inni í tortillu-pönnukökuskál með salati). Bjarni Gunnar Kristinsson matreiðslumeistari Eystra-Fróðholt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.