Bændablaðið - 14.03.2019, Side 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. mars 201948
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR
Á bænum Eystra-Fróðholti búa
Ársæll Jónsson og Anna Fía
Finnsdóttir.
Þau tóku við búinu á vordögum
1990. Á bænum er stundaður
blandaður búskapur með mikla
áherslu á hrossarækt.
Býli: Eystra-Fróðholt.
Staðsett í sveit: Rangárþing ytra.
Ábúendur: Ársæll Jónsson og
Anna Fía Finnsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Tvö uppkomin börn, Ragnheiður
Hrund og Jón Finnur, tvær tíkur
,Nala og Slaufa, og ein kisa.
Stærð jarðar? 5.350 hektarar þar af
75 hektarar af ræktuðu landi.
Gerð bús? Blandað bú; kýr, ær,
hross og geitur.
Fjöldi búfjár og tegundir? 22 kýr,
76 nautgripir, 280 fjár og 14 geitur.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Dagurinn byrjar á mjöltum og
gegningum fram að hádegi, eftir
hádegi taka við tamningar og
þjálfun á hrossunum og síðan taka
við mjaltir og gegningar seinni
partinn.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Skemmtilegast er þegar
vel gengur með þjálfun og sýningar
á hrossunum og sauðburður, allra
leiðinlegustu bústörfin er að hirða
rúllur.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm
ár? Svipaðan, vonandi betri. Ef það
verður ekki farið að flytja inn allar
landbúnaðarvörur.
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda? Þeir sem standa að
félagsmálum bænda eru að standa
sig vel.
Hvernig mun íslenskum land-
búnaði vegna í framtíðinni? Það
fer eftir því hvernig verður tekið á
málunum og hvort bændur standi
saman.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra búvara?
Tækifærin eru mörg, sérstaklega ef
hreinleiki íslenskra búvara verður
haldið meira á lofti.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Smjör, ostur og mjólk.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Lambalæri og hrossalund,
svo er saltað hrossakjöt í miklu
uppáhaldi.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Mjög eftirminnilegt
atvik í búskapnum er þegar ég var
að koma úr merkisafmæli hér í sveit
undir morgun.
Þá sá ég að Sæla var að kasta
honum Sæ okkar þannig að við gætum
fylgst með þeim merkisatburði.
Óhætt að segja að það hafi verið
með því eftiminnilegra hér.
Kjúklingaréttir og blómkál
Viltu byggja vöðva og missa fitu?
Þá þarftu prótein!
Það er mælt með um 30 g
af próteini á dag til að byggja
upp sterkan líkama. Prótein er
sameind úr amínósýrum. Það er
nauðsynlegt bæði fyrir til dæmis hár
og neglur og er mikilvægur þáttur í
vöðvauppbyggingunni.
Rannsóknir benda til þess að besta
leiðin til að fá nóg prótein er úr
mataræði og gott er að borða 20–30
grömm af próteini í hverri máltíð.
Matur sem inniheldur 30 g
af próteini
Beikon
7 þykkar sneiðar:
29,3 g prótein
Beikon er góð leið til að fá prótein, er
með mikið af kaloríum og mikið af
mettaðri fitu. Reyndar er það nánast
jafn mikill hluti af próteini og fitu!
Harðsoðin egg
5 stór egg:
31,5 g prótein
Egg eru frábær uppspretta af próteini.
Ef þú ert að reyna að minnka
hitaeiningar geturðu alltaf borðað
eggjahvítu, en þú þarft um það bil
átta af þeim til að fá sama magn af
próteinum.
Jarðhnetur
120 g
33 g prótein
Grillaðar kjúklingabringur
120 g
29,2 g prótein
Kjúklingur er vinsæll af góðri ástæðu.
Kjúklingabringur hafa mikið prótein
án þess að hafa mikið af kolvetnum
eða fitu. Hann er líka góð uppspretta
af vítamínum eins og B6.
Hunangsmandarínu-kjúklingur
Ótrúlega safaríkur, mjúkur og
ljúffengur kjúklingur sem er
fullkominn kvöldverður, tilbúinn á
innan við 40 mínútum!
› 1 heilt stykki kjúklingur (eða 8 læri)
› 3 msk. smjör
› 4 rif hvítlaukur, söxuð
› Salt og pipar eftir smekk
› 1/2 bolli af mandarínusafa (má nota
appelsínu ef fólk nennir ekki að kreista
mandarínur)
› 1/2 bolli sojasósa
› 2 matskeiðar hunang
› 1 matskeið hrísgrjónaedik
› Meðlæti að eigin vali
› 1/4 búnt kóríanderlauf í skraut
Aðferð
Hitið ofn í 220 gráður
Setjið kjúkling á bretti, hlutið niður
í bita.
Blandið saman smjöri og hvítlauk í
skál.
Losið skinnið aðeins af kjúklingnum
með fingrunum og smyrjið
hvítlaukssmjöri undir skinnið.
Dreifið restinni yfir kjúklinginn.
Kryddið með salti og pipar.
Blandið í skál mandarínusafa,
sojasósu, hunangi og hrísgrjónaediki.
Setjið mandarínublönduna yfir
kjúklinginn og setjið í ofninn.
Steikið kjúklinginn í 30–40 mínútur,
hellið yfir með pönnusafanum á
15 mínútna fresti. Haldið áfram að
steikja kjúkling þar til hitamælir, sem
er settur í þykkasta hluta brjóstsins,
nær 70 gráðum.
Flytjið kjúklinginn á bretti eða bakka
og látið hvíla í 8–10 mínútur. Skerið
kjúklinginn í sundur og framreiðið
með meðlæti og pönnusafanum sem
er aðeins búið að sjóða niður.
Fallegt að skreyta með nokkrum
sneiðum af mandarínum.
Hollari naggar
› 1 miðlungsstór bökunarkartafla
› salt
› Ferskmalaður svartur pipar
› 1/4 bolli af mjólk
› 1 msk. ósaltað smjör
›
› 1 msk. aukalega ólífuolía
› 1–2 kjúklingabringur eða afgangs
kjúklingakjöt
Aðferð
Skrælið kartöfluna og skerið í 1/2 tommu
stykki. Setjið kartöfluna í saltað vatn í
miðlungsstóran pott. Látið kartöfluna
sjóða og eldið þar til hún er soðin, í um
20 mínútur. Hellið vatninu af.
Blandið síðan saman með mjólkinni,
smjöri og salti og pipar eftir smekk.
Látið kartöfluna kólna.
Hitið ofninn í 210 gráður.
Setjið hvern kjúklingabita á disk,
gerið vasa með hnífi og skiptið
kartöflufyllingunni á milli bitanna og
veltið svo upp úr hveiti, egg og raspi
(eða muldu kornflexi) bakið í ofni
þar til kjúklingurinn er fulleldaður
(hægt að nota eldaða afganga þá er
eldunar tíminn styttri).
Framreiðið með dipp-sósu að eigin
vali.
Blómkáls Mac 'N' Cheese
› 1 höfuð blómkál
› salt, eftir smekk
› pipar, eftir smekk
› ¼ bolli sýrður rjómi eða grískt jógúrt
(60 g)
› ½ bolli rifinn cheddar-ostur (50 g)
› ferskt steinselja, söxuð
›
Aðferð
Skerið blómkál í bita.
Setjið blómkálið í sjóðandi vatni og
sjóðið í 5 mínútur.
Sigtaðu blómkálið og færðu aftur í
pottinn. Dragðu úr hitanum.
Setjið í salt, pipar og sýrðum rjóma og
hrærið þar til það er blandað saman.
Hrærið cheddar-osti þar til það er
brætt.
Takið af hitanum. Skreytið með
steinselju (flott er að framreiða inni
í tortillu-pönnukökuskál með salati).
Bjarni Gunnar Kristinsson
matreiðslumeistari
Eystra-Fróðholt