Bændablaðið - 14.03.2019, Síða 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. mars 201940
Á yfirstandandi ári stendur fyrir
dyrum að hefja fyrri endurskoðun
Samnings um starfsumhverfi
nautgriparæktar. Þegar hefur
verið framkvæmd skoðanakönnun
meðal mjólkurframleiðenda
um hvort þeir vilji viðhalda
óbreyttu kvótakerfi og þó að
verulegur misbrestur hafi verið á
undirbúningi við valkostagreiningu
vegna atkvæðagreiðslunnar, var
niðurstaðan afgerandi, kvótanum
í vil. Það skýrist svo í framhaldinu
hver afstaða ríkisvaldsins verður
í þessu efni.
Hvað sem því líður, er
nauðsynlegt að horfa til þess í
þessari endurskoðun hvernig
stuðningskerfið getur best staðið við
greinina og þá sem hana stunda á
tímum nýrra áskorana. Í því efni þarf
að horfa til þess hvar greinin vill vera
í lok samnings og hvaða viðhorfum
hún muni mæta á komandi árum.
Reyndar er núverandi samningur á
margan hátt vel útfærður hvað þetta
varðar og því ætti þessi endurskoðun
fyrst og fremst að snúast um að
fínstilla meginlínur hans. En fyrst
„að fortíð skal hyggja þegar framtíð
skal byggja“.
70% fækkun á 33 árum
Ekki þarf að fjölyrða um þá miklu
samþjöppun sem orðið hefur í
íslenskri mjólkurframleiðslu síðustu
áratugi. Sem dæmi má nefna, að við
stofnun Landssambands kúabænda
árið 1986 voru hér á landi 1820
mjólkurframleiðendur, sem
framleiddu um 110 milljónir lítra,
meðalnyt íslenskra kúa var þá 3.936
kíló mjólkur og meðal búið um 60
þúsund lítrar. Um síðustu áramót
voru framleiðendur orðnir 558,
framleiddu þeir um 152 milljónir
lítra á ársgrundvelli, meðalnyt
árskúa var komin í 6.516 kg og
meðalbúið er um 270 þúsund lítrar. Á
aldarþriðjungi hefur búunum fækkað
um tæp 70%, bústærðin rúmlega
fjórfaldast og meðalnytin aukist um
65% á hverja árskú. Þessar miklu
breytingar í fjölda framleiðenda
hafa fyrst og fremst verið drifnar
áfram með kvótaviðskiptum þar
sem kaupendur hafa, auk forgangs
að innanlandsmarkaði, náð um
leið til sín samsvarandi hluta
stuðningsgreiðslanna, enda hafa
þær lengst af verið beint tengdar
kvótanum. Sú stefna sem birst
hefur í samningum við ríkið hefur
reyndar líka verið nokkuð eintóna,
stuðlað skuli að aukini hagkvæmni
og samkeppnishæfni.
Aukin samkeppnishæfni?
Enginn vafi er á því að framangreind
þróun hefur skilað öflugum búum
með mun betri aðbúnaði og
vinnuaðstöðu. Uppbyggingunni og
tilheyrandi greiðslumarkskaupum
hefur þó fylgt mikil skuldsetning
og ef tekið er mið af niðurstöðum
ársreikninga sumra af stærstu
búunum er efnahagur þeirra á engann
hátt sjálfbær og má þar lítið út af
bregða, ef nokkuð. Þó að greining á
niðurstöðum búreikninga hafi verið
í fullkomnu skötulíki undanfarin ár,
má ætla að mjólkurframleiðslunni
hafi miðað lítt fram á veg í að auka
samkeppnishæfni sína, ef tekið er
mið af mun á afurðaverði hér og í
nálægum löndum.
Samfélagið hlýtur að gera þá
kröfu að aukin samþjöppun skili
sér í hagkvæmari búrekstri og lægra
afurðaverði. Samhliða þessari miklu
samþjöppun, hefur orðið veruleg
aukning á hlutfalli innfluttra aðfanga
til mjólkurframleiðslunnar. Fyrir
um 20 árum var kjarnfóðurgjöf
um 5-700 kg á árskú. Í dag er hún
nálægt því að vera 2.000 kg á árskú
að jafnaði. Eftir því sem best verður
séð nemur innflutningur kúafóðurs
um 50.000 tonnum á ári. Ef notuð
er gömul þumalputtaregla má gera
ráð fyrir að 2 kg mjólkur fáist fyrir
hvert kíló kjarnfóðurs. Samkvæmt
því er einungis þriðjungur hérlendrar
mjólkur framleidd á innlendu fóðri,
það sem útaf stendur á því uppruna
sinn á ökrum bænda í fjarlægum
löndum.
Það er afar brýnt að snúa þessari
óheillaþróun við og nýta betur okkar
gjöfula ræktunarland. Í þeim efnum
geta breyttar áherslur í stuðningskerfi
greinarinnar gegnt lykilhlutverki
og mikilvægt að þess sjái stað við
þessa endurskoðun. Umræða um
nautgriparækt í nágrannalöndunum
snýst að verulegu leyti um aukna
sjálfbærni og nýtingu innlendra
aðfanga, litið er á slíkt sem grundvöll
áframhaldandi velvildar í garð
greinarinnar. Það sama hlýtur að
eiga við hér á landi.
570 milljónir til 17 stærstu
Í fróðlegu erindi Jóns Baldurs
Lorange, forstöðumanns Búnaðar-
stofu, sem flutt var á aðalfundi
Félags kúabænda á Suðurlandi
fyrir skömmu, var birt yfirlit yfir
skiptingu stuðningsgreiðslna til
mjólkurframleiðenda, eftir bústærð.
Á árinu 2019 nema þær alls 6.898
milljónum kr. samkvæmt fjárlögum
yfirstandandi árs.
Í erindinu kom fram að 17 stærstu
framleiðendurnir fá um rúmlega 8%
af stuðningsgreiðslum samningsins
og af þessu má ennfremur ráða að
stærsti framleiðandinn fái 4 milljónir
kr á mánuði í stuðningsgreiðslur –
sem er við 0,7% þakið sem skilgreint
er í samningnum sem hámark á
stuðningi á sama aðila. Nútíma tækni
eykur mjög stærðarhagkvæmni í
mjólkurframleiðslu og því varla
óeðlilegt að þess sjáist stað í
stuðningsgreiðslum ríkisins.
Ógnanir og tækifæri í
umhverfismálum
Undanfarin 25 ár hefur yfirgnæfandi
meirihluti af heyfeng landsmanna
verið verkaður í plastpakkaðar rúllur.
Á skömmum tíma hefur umræða
um umhverfismál um allan heim
snúist mjög öndverð gegn plasti
og plastnotkun sem einni mestu
umhverfisvá samtímans. Bændur
hér á landi nota um 1.700 tonn af
rúlluplasti árlega og ekki er vafi á
því að draga verður stórlega úr þeirri
notkun á komandi árum. Lesendur
þessa pistils hafa eflaust orðið varir
við breyttar áherslur verslunarinnar,
varðandi poka þá sem viðskiptavinir
setja vörur sínar í við búðarborðið.
Til samanburðar þá var plastnotkun
til þess arna rúmlega 1/10 hluti þess
sem bændur nota utan um heyfeng
sinn. Tillaga um aðgerðaráætlun um
samdrátt í plastnotkun var samþykkt
á aðalfundi Búnaðarsambands
Eyjafjarðar á dögunum og hliðstæð
tillaga liggur fyrir aðalfundi LK.
Breytt heyverkunartækni mun kalla
á miklar fjárfestingar og í okkar
huga er ljóst að stuðningskerfi
landbúnaðarins verður hafa burði til
að taka á því mikilvæga verkefni.
Um mitt þetta ár verða síðan liðin
fjögur ár frá því að undanþáguákvæði
frá 6 mánaða lágmarks geymslurými
fyrir búfjáráburð, sem var að
finna í reglugerð nr. 804/1999
um varnir gegn mengun vatns af
völdum köfnunarefnissambanda
frá landbúnaði og öðrum
atvinnurekstri, féll endanlega úr
gildi. Bætt nýting búfjáráburðar er
mikilvægt hagsmuna-, umhverfis-
og ímyndarmál greinarinnar, en
nauðsynlegar úrbætur í þeim efnum
munu einnig kalla á umtalsverðar
fjárfestingar á næstunni.
Nýir tímar, ný hugsun
Í ljósi þess sem að framan greinir er
eðlilegt að horft verði til eftirtalinna
atriða við komandi endurskoðun
nautgripasamningsins:
• Niðurtröppun „Greiðslna út á
greiðslumark“ (A-greiðslur)
haldi sér eins og samningurinn
gerir ráð fyrir. Þannig
verði horfið að fullu frá
framseljanlegum stuðningi
í íslenskri nautgriparækt á
samningstímanum.
• Sett verði ákveðið hámark
þess sem hver framleiðandi
getur notið af „Greiðslum út á
innvegna mjólk“ (B-greiðslur),
t.d. allt að 40.000 lítrar á mánuði
eða að hámarki 480.000 lítrar
á ári. Þannig verði með mun
ákveðnari hætti takmarkað
hversu mikinn stuðning hver
einstakur framleiðandi getur
fengið af samningnum og
stærðarhagvæmni búana komi
þannig fram í ríkari mæli.
Jafnframt verði sú aukning
fjármuna sem samningurinn
gerir ráð fyrir inná þennan lið
endurskoðuð í samræmi við
breyttar tilfærslur milli einstakra
liða.
• Gripagreiðslur verði auknar
árið 2020 eins og samningurinn
gerir ráð fyrir, en standi síðan að
stofni til í stað.
• Auknir fjármunir verði látnir
renna í Framleiðslujafnvægislið
samningsins samhliða niður-
tröppun A-greiðslna, einkum
á seinnihluta samnings tímans
og þau tæki sem hann innifelur
útfærð:
• Útfærðar leiðir til að efla
markaðsstarf í mjólk og
nautakjöti
• Útfærðar skilvirkar leiðir
til að grípa inn í til að haga
gripafjölda í landinu eftir
markaðsaðstæðum hverju
sinni. Reynist framleiðsla
meiri en þörf er á, má til
dæmis greiða ásættanlegar
sláturuppbætur á kýr á 2. og
3. mjaltaskeiði sem komnar
eru innan við 150 daga frá
síðasta burði.
• Útfærðir verði aðlögunar
samningar sem kúabændum
býðst, kjósi þeir að hverfa úr
framleiðslu nautgripaafurða
og hefja annarskonar
starfsemi á jörðum sínum.
• Útfærðar verði leiðir
til að greiða stuðning
beint til kúabænda óháð
framleiðslumagni.
• Framlög vegna kynbótastarfs
verði að stofni til óbreytt.
• Fjárfestingastuðningur verði
aukinn og jafnframt opnað fyrir
styrkveitingar til uppbyggingar á
hagkvæmari og umhverfisvænni
aðstöðu til fóðuröflunar á
kúabúum. Þar verði m.a. horft
til þess að draga úr plastnotkun
og stuðla að aukinni hlutdeild
heimaflaðs fóðurs. Þá verði
reglur um hámarksstuðning
af þessum lið endurskoðaðar,
þannig að jafnræðis verði betur
gætt en nú er.
• Stuðningur við nautakjöts-
framleiðslu verði aukinn,
samhliða endurskoðun
úthlutunarreglna. Þar verði í
auknum mæli horft til þess hvort
um sé að ræða graðneyti, uxa
eða kvígu, auk samspils þunga/
lífaldurs við slátrun, með það að
markmiði að fá gripina yngri til
slátrunar en nú er.
Þakbrún við svörð
„Samningur um starfsskilyrði
mjólkurframleiðslu“, sem
samþykktur var á fyrri hluta árs
2004 og gilti með framlengingum
til ársloka 2016, fól í sér all nokkrar
breytingar frá því sem áður var á
forsendum þess heildarstuðnings sem
greinin naut. Grunn upphæðir voru
settar fastar og þær verðtryggðar, en
með 1% árlegri hagræðingarkröfu
䘀礀爀椀爀 戀渀搀甀爀
䠀︀爀يح猀琀椀搀氀甀爀
䠀䐀 㘀⼀㘀
䠀︀爀يح猀琀椀搀氀甀爀
䬀 㜀
刀礀欀猀甀最甀爀
一吀 ㈀㔀
匀瀀愀爀
䬀䴀 㜀 ⼀㈀
唀洀戀漀 漀最 ︀樀渀甀猀琀愀
LESENDABÁS
Til móts við nýja tíma
Baldur Helgi Benjamínsson. Jóhann Nikulásson. Sigurður Loftsson.