Bændablaðið - 14.03.2019, Side 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. mars 2019 39
Draghálsi 14 - 16 · S ími 4 12 12 00
www.isleifur.is
Ný og handhæg kaldavatnsdæla
Scala2 er að fullu sambyggð vatnsdæla sem skilar jöfnum
vatnsþrýsting í alla krana.
Einföld lögun og lausn sem er auðveld í uppsetningu.
Með forstilltri dælu, stýrir Scala2 afköstum miðað við rennsli.
Skala2 er með vatnskældum mótor, sem gerir hana afar hljóðláta.
Niðurstaðan er hámarks þægindi með lámarks fyrirhöfn.
Scala2 3-45
Straumhvörf í neysluvatnsdælum
Scala2 3-45
Toyota Land Crusier 150 sameinar betur en flestir bílar eiginleika rúmgóðs
fjölskyldubíls og dugandi fjallabíls. Með AT33 lausninni getur Arctic Trucks
gert bílinn þinn að öflugum ferðabíl sem opnar þér nýja möguleika til
ferðalaga og veitir þér tækifæri til að njóta íslenskrar náttúru á þægilegri máta.
Ekki skemmir fyrir að bíllinn verður bæði glæsilegri og kraftalegri útlits!
Ert þú ferðafær?
EXPLORE WITHOUT LIMITS
®
ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF.
KLETTHÁLSI 3
110 REYKJAVÍK
SÍMI: 540 4900
NETFANG: info@arctictrucks.is
www.arctictrucks.is
Arctic Trucks býður einnig stærri
lausnir fyrir Land Cruiser 150,
svo sem AT35, AT38 og AT44.
Nánar á www.arctictrucks.is.
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Vottaður hífi- og festingabúnaður
Námskeið um notkun á hífibúnaði
Skoðanir og eftirlit á hífibúnaði
Hífi- og festingabúnaður
Maríulyklar (Primula) eru
stór ættkvísl blómfagurra
plantna sem hafa verið vinsælar
garðplöntur í aldanna rás.
Eftirsóknarverð blómin eru
gríðarlega fjölbreytt á litinn og
margir safna ólíkum litbrigðum
tegunda innan ættkvíslarinnar.
Yfir 500 tegundir eru í
ættkvíslinni og mikill áhugi víða
á kynbótum til að búa til ný yrki.
Nú þegar vorið er að nálgast færast
þessi fallegu blóm úr uppeldi í
íslenskum gróðrarstöðvum yfir í
híbýli landsmanna. Einkum og sér í
lagi er það tegundin laufeyjarlykill,
Primula vulgaris, og yrki af honum
sem koma á markað mjög snemma
á vorin, sem vetrarblómstrandi
maríulyklar eða prímúlur.
Uppruni laufeyjarlykils
Laufeyjarlykill er evrópsk tegund
og sá maríulykill sem byrjar
einna fyrst að blómstra á vorin,
jafnvel í mars-apríl. Tegundin
sjálf er gulblómstrandi. Nokkrar
undirtegundir laufeyjarlykils er
að finna austur um og yfir í Asíu
og koma þar inn fleiri blómlitir.
Laufeyjarlykillinn þrífst best í
hæfilega rökum jarðvegi, hvorki
of blautum né þurrum. Hann þarf
ekki sól allan daginn og líður vel
í hálfskugga.
Heiti ættkvíslarinnar, Primula,
er dregið af latneska orðinu primus
sem þýðir að vera fyrstur, í tilfelli
maríulykla að þeir eru fyrstir til
að blómstra snemma vors. Ein
smágerð tegund af maríulykilsætt,
maríulykill (Primula stricta) lifir
villt á Íslandi en er afar sjaldgæf
og talin í hættu á að hverfa úr
íslenskri náttúru. Önnur tegund,
Davíðslykill (Primula egalikensis),
hefur fundist á Íslandi en er nú
talin útdauð hér.
Útlitseinkenni
Laufeyjarlykill er með heil, aflöng
laufblöð sem sitja í jarðlægri
hvirfingu og blómin koma upp á
10–15 cm háum stilkum, nokkur
blóm í knippi á hverjum stöngli.
Blómin geta verið einlit eða í fleiri
litum, blómlitir skærir og á hverju
ári koma fram ný og skemmtileg
yrki sem heilla garðeigendur.
Góð bæði inni og úti
Yfirleitt tengir fólk að
laufeyjarlykill sé útiblóm en hann
má einnig nota sem inniplöntu.
Hann er þá í sölu á útmánuðum og
fram á sumar. Laufeyjarlykillinn
verður yfirleitt aðeins einær sem
inniplanta en gefur mikla gleði
í lok vetrar með sínum marglitu
blómum. Það getur verið erfitt að
halda honum á lífi eftir að blómin
hafa sölnað og því tilvalið að
gróðursetja hann úti að því loknu,
þá er hann líklegur til að tækla
aðstæðurnar sjálfur sem útiplanta.
Inniprímúlur verða endingar-
betri ef þær eru hafðar á svölum
stað í vægum skugga, td. á borði
í stofu eða eldhúsi fremur en
í gluggakistu yfir ofni og ekki
látnar þorna, þá verða þær litrík
síðvetrarblóm í heimahúsum.
Laufeyjarlykill nær sjaldnast
að lifa af veturinn nema í allra
skjólbestu görðum og verður
þá yfirleitt ekki langlífur. Hins
vegar nýtist hann mjög vel eins
og sumarblóm í ker og potta
snemma vors, þegar fáar aðrar
tegundir eru farnar að huga að
blómgun og garðeigendur orðnir
langeygir eftir blómum. Það er því
tilvalið að gleðja augun og andann
með laufeyjarlykli, þessum litríku
síðvetrarblómum.
Sigríður Embla
Heiðmarsdóttir, nemandi á
Garðplöntuframleiðslubraut
Garðyrkjuskóla LbhÍ,
Reykjum.
GARÐYRKJUSKÓLI LBHÍ REYKJUM
Maríulyklar, litríkt
síðvetrarskraut
Primula plöntur í Garðheimum.
Myndir / Guðríður Helgadóttir.
Gul Primula.
Bleik Primula.