Bændablaðið - 14.03.2019, Síða 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. mars 2019 7
LÍF&STARF
Mesti kynbótahrúturinn
Að Dreka standa sterkar ættir sem byggja á hinni öflugu fjárrækt heima í Hriflu í bland við ýmsa af
fremstu kynbótahrútum landsins. Bæði faðir hans og móðurfaðir hafa verið heiðraðir sem úrvalsgripir
sæðingastöðvanna en Dreki er sonur Grábotna 06-833 frá Vogum 2 og dóttursonur Borða 08-838
frá Hesti. Þá þarf ekki að rekja ættir hans langt aftur til að finna þá Hyl 01-883 og Svaða 94-998 og
má því segja að talsvert „Hestsblóð“ renni um æðar Dreka.
Dreki var valinn til notkunar á sæðingastöð sumarið 2015. Hann fékk strax góðar viðtökur hjá
bændum vítt og breitt um landið og hefur ávallt verið í hópi mest notuðu stöðvahrútanna þá fjóra
vetur sem hann hefur þjónað þar. Samkvæmt Fjárvís.is hafa verið skráðar um 4.400 sæddar ær við
Dreka. Mögulega getur sá hópur átt eftir að stækka en Dreki er enn við ágæta heilsu.
Afkvæmi Dreka eru jafnan þroskamikil, bollöng með þykkan bakvöðva, góð lærahold og hóflega feit.
Hann stendur nú í 110 stigum fyrir gerð samkvæmt BLUP kynbótamati og 115 stigum fyrir fitu. Sem
ærfaðir hefur hann reynst ákaflega farsæll. Dæturnar eru ríflega í meðallagi frjósamar en styrkleiki
þeirra fellst þó öðru fremur í frábærri mjólkurlagni. Fyrir þann eiginleika skartar hann 114 stigum
sem er framúrskarandi gott fyrir svo mikið reyndan hrút en matið byggir á uppgjöri fyrir 855 dætur.
Ættbogi Dreka er orðinn gríðarstór. Framleiðsluárið 2018 átti hann um 340 syni í notkun á landinu
og er því í hópi þeirra hrúta sem eiga hvað flesta syni í notkun um þessar mundir. Þá hafa tveir
synir hans þjónað á stöðvunum, þeir Drangi 15-989 frá Hriflu og Fáfnir 16-995 frá Mýrum 2,“ segir
í umsögn faghópsins.
Dreki og Mávur eru verðlauna-
hrútar sæðingastöðvanna
Á opnum fagráðsfundi í sauðfjárrækt sem
haldinn var í Bændahöllinni föstudaginn
1. mars voru ræktendum þeirra sæðinga
stöðvahrúta sem skarað hafa fram úr
veitt verðlaun. Dreki frá Hriflu (13953) í
Þingeyjarsveit var útnefndur besti reyndi
kynbótahrúturinn og Mávur frá Mávahlíð
(15990) í Fróðárhreppi á Snæfellsnesi var
valinn besti lambafaðirinn.
Fyrir Dreka tóku þau Vagn Sigtryggsson og
Margrét Snorradóttir á móti verðlaunum, en
fyrir Máv þau Herdís Leifsdóttir og Emil Freyr
Emilsson.
Sæðingastöðvarnar gefa verðlaunin en
faghópur sauðfjárræktar hjá Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins velur hrútana út frá árangri
þeirra. Það var Eyþór Einarsson, ábyrgðarmaður
í sauðfjárrækt hjá Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins, sem kynnti skilyrðin sem
stuðst var við þegar bestu hrútarnar eru valdir
og afhenti verðlaunin.
Árni Brynjar Bragason, sem er í faghópnum
ásamt Lárusi G. Birgisson og Eyjólfi Ingva
Bjarnasyni og Eyþóri, fór svo yfir rökstuðninginn
fyrir vali hans. /smh
Varla er annað tækt en að birta annan þátt úr „Bændarímu í Svarfaðar dalshreppi“ eftir Harald
Zophoníasson frá Jaðri við Dalvík.
Þó nokkuð sé umliðið frá því þetta var
kveðið, er enn í dag að finna ábúendur í
dalnum sem eru beinir afkomendur þeirra
ábúenda sem ríman var ort til. Vísur þessa
þáttar eru ortar undir öðrum hætti en fyrri
þátturinn, því nú er ort undir ferskeyttum
hætti:
Fyrsta þá í þulu brags
Þverá góða nefni.
Býr í skjóli heillahags
Helgi þar við efni.
Hagur vel, með góðlátt geð
geira- skemmtir höðum,
Sveinbjörn blóma bestum með
býr á Hreiðarsstöðum.
Á æskuskeiði Ingimar
ötull, lund með glaða,
byggir kátur, keppinn, snar,
kotið-Hreiðarsstaða.
Næstan Ármann nefna má,
nýtum gæddan burðum.
Heldur bjóður seima sá
sæmdarbú á Urðum.
Vel er látinn lýðum hjá
lundur plátu glaður;
situr státinn Auðnum á
Ágúst, kátsinnaður.
Vinnuiðinn, hugarhreinn,
hatar styggð og reiði,
góður smiður, glaður Sveinn
gætir bús á Skeiði.
Rögnvaldur með ráðin snör
rétt að mörgu hyggir.
Smár að vexti vopnabör
vel í Dæli byggir.
Unir Vigfús amafrí
-orð fer gott af halnum-
frjáls á Þverá frammi í
fagra Skíðadalnum.
Ei skal grenna óðarþátt,
orðin renna hröð af munni,
breyti ég enn um bragarhátt
byrja senn á nýhendunni.
Árni ósjúkur, sinnisrór,
svalt þó fjúki lífsins veður.
Býr á Hnjúki baugaþór
blíðri dúka eyju meður.
Í Hofsárkoti hringagrér,
heiðursdrengur, sannur, valinn,
stilltur vel og sterkur er
Stefán fyrir búi talinn.
Öruggt heldur, hugprúður
á Hofsá- rétt við iðu strauma
-þróttarefldur Þorleifur
þrekinn bús um stjórnartauma.
Dýrrar sæmdar klæddur kjól
Kristján gleður landsins mengi.
Hann á bröttum Brautarhól
búið hefur vel og lengi.
Iðinn, lengi yrkir frón,
auðugur af þjóðarlofi,
góður drengur, glaður Jón
Gíslasonur, býr á Hofi.
Hánefsstaða húsbóndinn
heitir Pétur-greinir baga-.
Vel hann styður velgengnin.
Verði svo um alla daga.
Á Sökku stundar sæmdarbú,
-sýnu að hlúir móðurfróni-
Gunnlaugur með góðri frú.
Gæfan holl þeim báðum þjóni.
Hlíðum fjalla háum nær,
heimsins fjarri tízku-glamri,
bú sitt stundað stilltur fær
sterkur Gunnlaugur á Hamri.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
Dreki 13-953 frá Hriflu. Mynd / Sigurjón Einarsson
221MÆLT AF
MUNNI FRAM
Mávur 15-990 frá Mávahlíð. Mynd / Herdís Leifsdóttir
Árni Brynjar fer yfir rökstuðninginn fyrir vali faghópsins á besta lambaföðurnum. Myndir / smh
Besti lambafaðir sæðingastöðvanna
Valið á Mávi byggir á niðurstöðum úr lambaskoðunum og kjötmati haustið 2018.
„Mávur er sonur Blika 12-001 frá Mávahlíð sem var sonur Gosa 09-850 frá Ytri-Skógum.
Móðir hans Dröfn 12-008 var tvílembd gemlingur síðan þrisvar verið þrílembd annars
tvílembd og er með 6,9 í afurðaeinkunn. Tíu af fimmtán lömbum hennar hafa verið valin
til lífs. Dröfn er dóttir Hróa 07-836 frá Geirmundarstöðum. Mæður foreldra Mávs rekja
uppruna sinn að miklu leyti í þá öflugu hjörð sem verið hefur í Mávahlíð í áratugi. Þar er
þó einnig skammt í stöðvahrúta s.s. Abel 00-890 frá Ósabakka, Túla 98-858 frá Leirhöfn
og Þrótt 04-991 frá Staðarbakka.
Mávur var fenginn til notkunar á sæðingastöðvunum haustið 2017 að aflokinni
afkvæmarannsókn fyrir úrvalshrúta á Snæfellsnesi sem fram fór að Gaul í Staðarsveit.
Mávur sýndi þar mjög skýra yfirburði sem lambafaðir. Mávur hefur verið tvo vetur í notkun
á stöðvunum og bæði árin verið meðal þeirra hrúta sem bændur hafa sótt mikið í að nota.
Afkvæmi Mávs er ákaflega jafnvaxin og sameina afar vel góða gerð, hóflega fitu og
ágætan vænleika. Allmörg þeirra hafa erft hreinhvíta og kostaríka ull föður síns og hann
því einnig öflugur kynbótahrútur hvað ullargæði varðar. Mávur stendur nú í 116 stigum
í kynbótamati fyrir gerð og 118 stigum fyrir fitu. Í uppgjöri fjárræktarfélaganna 2018 fær
hann 119 í fallþungaeinkunn fyrir afkvæmi sín.
Mávur er frábær lambafaðir gagnvart öllum helstu eiginleikum sem horft er til við
líflambaval og ber með sóma nafnbótina „besti lambafaðirinn“ framleiðsluárið 2018,“
segir í umsögn faghópsins.
Páll Stefánsson frá Sauðfjársæðingastöð Suðurlands, Árni Brynjar
Bragason, Herdís Leifsdóttir, Emil Freyr Emilsson og Eyþór Einarsson.
Árni Brynjar Bragason, Eyþór Einarsson, Vagn Sigtryggsson, Margrét
Snorradóttir og Páll Stefánsson frá Sauðfjársæðingastöð Suðurlands.