Bændablaðið - 14.03.2019, Blaðsíða 18

Bændablaðið - 14.03.2019, Blaðsíða 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. mars 201918 Landssamband hestamannafélaga (LH) kynnti á blaðamannafundi í Bláa Lóninu undir lok febrúar landsliðshóp LH í hestaíþróttum. Þetta er fyrsta skrefið í breyttum áherslum LH í afreksmálum. Hingað til hefur landslið Íslands á HM verið valið út frá svokölluðum lykli og úrtökumóti. Á úrtökumótinu gátu 5 knapar tryggt sér sæti í landsliðinu og liðstjórinn valdi 2 í viðbót, var þá m.a. litið til árangurs á Íslandsmóti og keppnisárangurs íslenskra knapa erlendis. Landsliðið var svo kynnt rúmum mánuði fyrir HM og má segja að landsliðið hafi verið virkt í rétt rúma tvo mánuði sem er afar stuttur tími og áherslan skiljanlega einungis á þann viðburð. Landsliðshópurinn verður virkur allt árið Breytingin sem LH hefur gert á landsliðsmálum er að landsliðshópur LH verður virkur allt árið um kring og mun koma að ýmsum viðburðum, mótum og sýningum sem eru til þess fallnar að efla hestaíþróttina og styrkja liðið til árangurs. Með því að halda úti virkum landsliðshóp gefst tækifæri til að sinna betur markvissu afreksstarfi í hestaíþróttum þar sem áhersla er lögð á knapann sem íþróttamann. Meðal annars verður starfrækt fagteymi sérfræðinga á heilbrigðis- og íþróttasviði, sem verða landsliðsknöpum innan handar í sinni þjálfun. Ætlunin er að halda áfram með þær mælingar sem LH, í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, lét gera á landsliðsknöpum 2017 og á afrekshóp ungmenna LH sl. ár. Það sem felst í markvissu afreksstarfi er meðal annars að byggja upp afreksíþróttamenn, afreksknapa í þessu tilfelli, með langtímamarkmið í huga og skapa umhverfi þar sem afreksknapi getur bætt sig í sinni íþrótt, til að auka líkur á enn betri árangri á komandi stórmótum. Sá landsliðshópur sem er virkur ár hvert verður í forvali þegar valdir eru keppendur fyrir Íslands hönd á Heimsmeistaramót og Norðurlandamót. Landsliðsþjálfari getur þó tekið inn í liðið nýja knapa sem sýnt hafa framúrskarandi árangur í keppni, með skömmum fyrirvara, ef hann telur að það muni styrkja landsliðið. Markvisst endurval knapa, byggt á keppnisárangri og mati landsliðsþjálfara, er þó sífellt í gangi. Sigurbjörn Bárðarson landsliðsþjálfari Sigurbjörn Bárðarson, sem ráðinn var liðstjóri landsliðs Íslands í janúar 2018, verður nú titlaður landsliðsþjálfari líkt og í öðrum íþróttagreinum. Arnar Bjarki Sigurðarson, sem var liðstjóri afrekshóps LH, verður landsliðsþjálfari U-21 landsliðshóps LH, það er næsta skref sem LH tekur í afreksmálum og verður U-21 landsliðið kynnt innan tíðar. Sigurbjörn hefur yfirumsjón með báðum hópum en mikið samstarf verður á milli landsliðsþjálfaranna. Heimsmeistaramót í Berlín verður fyrsta stórverkefnið Fyrsta stóra verkefni landsliðsins er Heimsmeistaramót í Berlín í byrjun ágúst. Þar munu keppa sjö landsliðsknapar í flokki fullorðinna, fimm knapar úr U-21 landsliðshópnum og fjórir titilhafar sem munu verja heimsmeistaratitla sína frá því á HM 2017 og eiga því öruggt sæti í liðinu að þessu sinni. Titilhafarnir eru Jakob Svavar Sigurðsson, Gústaf Ásgeir Hinriksson, Konráð Valur Sveinsson og Máni Hilmarsson. Valið á landsliðinu sjálfu, þ.e. þeir sem verða valdir til að fara á HM og keppa fyrir Íslands hönd, verður einnig með breyttu sniði. Miðað verður við árangur m.a. á WorldRanking-mótum og Íslandsmóti, en ekki haldin sérstök úrtökumót eins og tíðkaðist áður. Liðið verður tilkynnt fomlega í Líflandi eftir Íslandsmót sem verður haldið fyrstu helgina í júlí. Knapar í landsliðshóp LH eru skyldugir til að mæta á um helming viðburða á dagskrá landsliðsins, skyldumæting er á ákveðna forgangsviðburði, m.a. tiltekin WorldRanking-mót, Íslandsmót og „Þeir allra sterkustu“ sem er fjáröflunarviðburður landsliðsnefndar. Annað sem er á dagskrá landsliðsins er t.d. mælingar, fræðsla, undirbúningsfundir o.s.frv. 19 afreksknapar Landsliðshóp LH skipa 19 afreksknapar í fremstu röð í hestaíþróttum hérlendis og erlendis og þrír titilhafar í ungmennaflokki frá því á HM 2017 en þeir hafa ekki fasta setu í landsliðshópnum enn sem komið er en tilheyra hópnum fram yfir HM. Þeir 19 afreksknapar sem valdir hafa verið í landsliðshópinn eru: Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Árni Björn Pálsson Ásmundur Ernir Snorrason Bergþór Eggertsson Guðmundur Björgvinsson Hanna Rún Ingibergsdóttir Haukur Tryggvason Helga Una Björnsdóttir Hinrik Bragason Hulda Gústafsdóttir Jakob Svavar Sigurðsson, titilhafi frá HM 2017 Jóhanna Margrét Snorradóttir Jóhann Skúlason Siguroddur Pétursson Sylvía Sigurbjörnsdóttir Teitur Árnason Viðar Ingólfsson Þórarinn Eymundsson Þórarinn Ragnarsson Titilhafar úr ungmennaflokki frá því á HM 2017 eru: Gústaf Ásgeir Hinriksson Konráð Valur Sveinsson Máni Hilmarsson Í Fjölbrautaskóla Suðurlands stunda 25 nemendur nám á hestabraut. Um þriggja ára nám til stúdents er að ræða, bæði bóklegt og verklegt. „Starfsemi brautarinnar gengur mjög vel, ég heyri ekki annað en allir nemendur séu mjög ánægðir og sáttir við brautina og það erum við líka, sem erum að kenna á henni. Við erum með frábæra, duglega og skemmtilega nemendur, betra verður það ekki,“ segir Áslaug Fjóla Guðmundsdóttir, einn af kennurum á brautinni. Stelpur eru í meirihluta nemenda, sem koma víðs vegar að af landinu. „Það er frábært fyrir hestakrakka að geta farið í skóla til að einbeita sér að áhugamáli sínu, lært um hestinn og allt sem honum viðkemur við frábærar aðstæður,“ bætir Áslaug Fjóla við. Þrjár stúlkur valdar í landsliðið Þá má geta þess að þrír af nemendum brautarinnar hafa verið valdar í landslið Íslands hjá hestamönnum í U-21, en það eru þær Gyða Sveinbjörg, Thelma Dögg og Glódís Rún. /MHH HROSS&HESTAMENNSKA Landsliðsstelpurnar, sem eru allar á hestabraut Fjölbrautaskóla Suðurlands, frá vinstri, Gyða Sveinbjörg, Glódís Rún og Thelma Dögg. Hesturinn heitir Stormur, sem Gyða Sveinbjörg hefur m.a. verið með í skólanum. Myndir / Magnús Hlynur Hreiðarsson. Svanhildur Guðbrandsdóttir (t.v.), sem er frá Syðri-Fljótum í Skaftárhreppi og Dagbjört Skúladóttir frá Þóroddsstöðum I í Ölfusi eru báðar að útskrifast af hestabrautinni í vor. Þær ætla að hefja nám í Hólaskóla næsta haust í reiðmennsku. Áslaug Fjóla er einn af þremur kennurum brautarinnar og kann ákaflega vel við starfið. Fjölbrautaskóli Suðurlands: Tuttugu og fimm nemendur stunda nám á hestabraut Landsliðshópur Íslands í hestaíþróttum ásamt þálfurum. Landslið Íslands í hestaíþróttum: Skipað 19 afreksknöpum í fremstu röð í hestaíþróttum hérlendis og erlendis
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.