Bændablaðið - 14.03.2019, Page 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. mars 201918
Landssamband hestamannafélaga
(LH) kynnti á blaðamannafundi
í Bláa Lóninu undir lok febrúar
landsliðshóp LH í hestaíþróttum.
Þetta er fyrsta skrefið í breyttum
áherslum LH í afreksmálum.
Hingað til hefur landslið
Íslands á HM verið valið út frá
svokölluðum lykli og úrtökumóti.
Á úrtökumótinu gátu 5 knapar
tryggt sér sæti í landsliðinu og
liðstjórinn valdi 2 í viðbót, var þá
m.a. litið til árangurs á Íslandsmóti
og keppnisárangurs íslenskra knapa
erlendis. Landsliðið var svo kynnt
rúmum mánuði fyrir HM og má
segja að landsliðið hafi verið virkt
í rétt rúma tvo mánuði sem er afar
stuttur tími og áherslan skiljanlega
einungis á þann viðburð.
Landsliðshópurinn verður
virkur allt árið
Breytingin sem LH hefur
gert á landsliðsmálum er að
landsliðshópur LH verður virkur
allt árið um kring og mun koma
að ýmsum viðburðum, mótum og
sýningum sem eru til þess fallnar að
efla hestaíþróttina og styrkja liðið
til árangurs.
Með því að halda úti virkum
landsliðshóp gefst tækifæri til að
sinna betur markvissu afreksstarfi
í hestaíþróttum þar sem áhersla er
lögð á knapann sem íþróttamann.
Meðal annars verður starfrækt
fagteymi sérfræðinga á heilbrigðis-
og íþróttasviði, sem verða
landsliðsknöpum innan handar í
sinni þjálfun. Ætlunin er að halda
áfram með þær mælingar sem LH, í
samstarfi við Háskólann í Reykjavík,
lét gera á landsliðsknöpum 2017 og
á afrekshóp ungmenna LH sl. ár.
Það sem felst í markvissu
afreksstarfi er meðal annars að
byggja upp afreksíþróttamenn,
afreksknapa í þessu tilfelli, með
langtímamarkmið í huga og skapa
umhverfi þar sem afreksknapi getur
bætt sig í sinni íþrótt, til að auka
líkur á enn betri árangri á komandi
stórmótum.
Sá landsliðshópur sem er virkur
ár hvert verður í forvali þegar
valdir eru keppendur fyrir Íslands
hönd á Heimsmeistaramót og
Norðurlandamót. Landsliðsþjálfari
getur þó tekið inn í liðið nýja knapa
sem sýnt hafa framúrskarandi
árangur í keppni, með skömmum
fyrirvara, ef hann telur að
það muni styrkja landsliðið.
Markvisst endurval knapa,
byggt á keppnisárangri og mati
landsliðsþjálfara, er þó sífellt í
gangi.
Sigurbjörn Bárðarson
landsliðsþjálfari
Sigurbjörn Bárðarson, sem
ráðinn var liðstjóri landsliðs
Íslands í janúar 2018, verður nú
titlaður landsliðsþjálfari líkt og
í öðrum íþróttagreinum. Arnar
Bjarki Sigurðarson, sem var
liðstjóri afrekshóps LH, verður
landsliðsþjálfari U-21 landsliðshóps
LH, það er næsta skref sem LH
tekur í afreksmálum og verður
U-21 landsliðið kynnt innan tíðar.
Sigurbjörn hefur yfirumsjón með
báðum hópum en mikið samstarf
verður á milli landsliðsþjálfaranna.
Heimsmeistaramót í Berlín
verður fyrsta stórverkefnið
Fyrsta stóra verkefni landsliðsins
er Heimsmeistaramót í Berlín í
byrjun ágúst. Þar munu keppa
sjö landsliðsknapar í flokki
fullorðinna, fimm knapar úr U-21
landsliðshópnum og fjórir titilhafar
sem munu verja heimsmeistaratitla
sína frá því á HM 2017 og eiga
því öruggt sæti í liðinu að þessu
sinni. Titilhafarnir eru Jakob
Svavar Sigurðsson, Gústaf Ásgeir
Hinriksson, Konráð Valur Sveinsson
og Máni Hilmarsson.
Valið á landsliðinu sjálfu,
þ.e. þeir sem verða valdir til að
fara á HM og keppa fyrir Íslands
hönd, verður einnig með breyttu
sniði. Miðað verður við árangur
m.a. á WorldRanking-mótum og
Íslandsmóti, en ekki haldin sérstök
úrtökumót eins og tíðkaðist áður.
Liðið verður tilkynnt fomlega í
Líflandi eftir Íslandsmót sem verður
haldið fyrstu helgina í júlí.
Knapar í landsliðshóp LH
eru skyldugir til að mæta á um
helming viðburða á dagskrá
landsliðsins, skyldumæting er
á ákveðna forgangsviðburði,
m.a. tiltekin WorldRanking-mót,
Íslandsmót og „Þeir allra sterkustu“
sem er fjáröflunarviðburður
landsliðsnefndar. Annað sem er á
dagskrá landsliðsins er t.d. mælingar,
fræðsla, undirbúningsfundir o.s.frv.
19 afreksknapar
Landsliðshóp LH skipa 19
afreksknapar í fremstu röð í
hestaíþróttum hérlendis og erlendis
og þrír titilhafar í ungmennaflokki
frá því á HM 2017 en þeir hafa ekki
fasta setu í landsliðshópnum enn
sem komið er en tilheyra hópnum
fram yfir HM.
Þeir 19 afreksknapar sem valdir
hafa verið í landsliðshópinn eru:
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir
Árni Björn Pálsson
Ásmundur Ernir Snorrason
Bergþór Eggertsson
Guðmundur Björgvinsson
Hanna Rún Ingibergsdóttir
Haukur Tryggvason
Helga Una Björnsdóttir
Hinrik Bragason
Hulda Gústafsdóttir
Jakob Svavar Sigurðsson,
titilhafi frá HM 2017
Jóhanna Margrét Snorradóttir
Jóhann Skúlason
Siguroddur Pétursson
Sylvía Sigurbjörnsdóttir
Teitur Árnason
Viðar Ingólfsson
Þórarinn Eymundsson
Þórarinn Ragnarsson
Titilhafar úr ungmennaflokki frá því
á HM 2017 eru:
Gústaf Ásgeir Hinriksson
Konráð Valur Sveinsson
Máni Hilmarsson
Í Fjölbrautaskóla Suðurlands
stunda 25 nemendur nám á
hestabraut. Um þriggja ára nám til
stúdents er að ræða, bæði bóklegt
og verklegt.
„Starfsemi brautarinnar gengur
mjög vel, ég heyri ekki annað en allir
nemendur séu mjög ánægðir og sáttir
við brautina og það erum við líka,
sem erum að kenna á henni. Við erum
með frábæra, duglega og skemmtilega
nemendur, betra verður það ekki,“
segir Áslaug Fjóla Guðmundsdóttir,
einn af kennurum á brautinni.
Stelpur eru í meirihluta nemenda,
sem koma víðs vegar að af landinu.
„Það er frábært fyrir hestakrakka að
geta farið í skóla til að einbeita sér að
áhugamáli sínu, lært um hestinn og
allt sem honum viðkemur við frábærar
aðstæður,“ bætir Áslaug Fjóla við.
Þrjár stúlkur valdar í landsliðið
Þá má geta þess að þrír af nemendum
brautarinnar hafa verið valdar í
landslið Íslands hjá hestamönnum
í U-21, en það eru þær Gyða
Sveinbjörg, Thelma Dögg og Glódís
Rún.
/MHH
HROSS&HESTAMENNSKA
Landsliðsstelpurnar, sem eru allar á hestabraut Fjölbrautaskóla Suðurlands, frá vinstri, Gyða Sveinbjörg, Glódís
Rún og Thelma Dögg. Hesturinn heitir Stormur, sem Gyða Sveinbjörg hefur m.a. verið með í skólanum.
Myndir / Magnús Hlynur Hreiðarsson.
Svanhildur Guðbrandsdóttir (t.v.), sem er frá Syðri-Fljótum í Skaftárhreppi
og Dagbjört Skúladóttir frá Þóroddsstöðum I í Ölfusi eru báðar að útskrifast
af hestabrautinni í vor. Þær ætla að hefja nám í Hólaskóla næsta haust í
reiðmennsku.
Áslaug Fjóla er einn af þremur
kennurum brautarinnar og kann
ákaflega vel við starfið.
Fjölbrautaskóli Suðurlands:
Tuttugu og fimm nemendur
stunda nám á hestabraut
Landsliðshópur Íslands í hestaíþróttum ásamt þálfurum.
Landslið Íslands í hestaíþróttum:
Skipað 19 afreksknöpum í fremstu röð
í hestaíþróttum hérlendis og erlendis