Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Qupperneq 6
skýrslu stjórnar eftir síðasta starfsár og kom
m.a. fram hjá honum að haldnir hafa verið 14
stjórnarfundir auk ýmissa annarra funda,
m.a. með B.M.S.R., félagsmálaráðherra, auk
þess sem stjórnarmenn voru í fræðslunefnd á
vegum B.M.S.R. og nefnd er skipuð var af
félagsmálaráðherra til að gera drög að
reglugerð um öryggi og hlífðarfatnað
slökkviliðsmanna en auk þess hefðu
stjórnarmenn heimsótt slökkviliðin í Stykkis-
hólmi, Siglufírði, Skagaströnd, Akureyri og
Húsavík. Þá hefði stjórnin komið saman til að
gefa umsögn sína um ýmis mál er henni hafa
borist. Þá hafa tveir stjórnarmenn L.S.S.
einnig átt sæti í ritnefnd Slökkviliðsmanns-
ins. Þá sat Guðmundur Jónsson formaður
ráðstefnu þá er B.M.S.R. boðaði til á síðasta
vori um brunatæknilega hönnun er haldin var
að Hótel Loftleiðum. Þá sendi stjórnin út
undirskriftarlista þar sem mönnum var m.a.
gefinn kostur á að rita nafn sitt á áskorun til
félagsmálaráðherra um að B.M.S.R yrði rekin
áfram sem sjálfstæð stofnun og bárust til baka
um 300 undirskriftir og voru þær afhentar
ráðherra ásamt bréfi frá stjórn L.S.S. Þá
gagnrýndi Agúst Félag slökkviliðsmanna í
Skagafirði fyrir að senda bréf til ráðherra þar
sem segir að ekki hafi verið samstaða á síðasta
þingi L.S.S. um ályktun þá, er send var frá
þinginu um málefni B.M.S.R. Þaðkemur fram
á upptöku frá þinginu að enginn greiddi
atkvæði á móti ályktuninni og að hún hefði
verið samþykkt samhljóða og að svona
vinnubrögð væru ekki sæmandi slökkviliðs-
mönnum. Þá kom fram að Höskuldur
Einarsson hefði setið ráðstefnu í Gautaborg í
Svíþjóð um eldvarnir og fleira, en hann fór
einnig til Oslóar til að kynna sér starfsemi skóla
þess, er rætt hefur verið mikið um að geti orðið
fyrirmynd að skóla hér heima. Að lokum sagði
Ágúst að greinilegt væri að það stefndi í rétta
átt í málefnum slökkviliðsmanna og yrði næsta
stjórn sambandssins að reyna að ýta á eftir
þeim málum sem þjónuðu hagsmunum
slökkviliðsmanna í landinu.
7. Reikningar L.S.S. og Slökkviliðs
mannsins.
Höskuldur Einarsson las upp reikninga
blaðsins og sambandsins og kom fram að
nokkur félög eru farin að bera nokkuð langan
skuldahala en reikningarnir voru lagðir fram
fjölritaðir og endurskoðaðir. Urðu nokkrar
umræður um skýrslu stjórnar og reikninga
sambandsins og tóku meðal annarra til máls
Gísli Lórenzson, Ársæll Jónsson, Þorbjörn
Sveinsson og fleiri.
Síðan var skýrsla stjórnar og reikningarnir
borin undir atkvæði og voru samþykkt
samhljóða.
8. Onnur mál:
Gísli Lórenzson frá Akureyri tók til máls og
ræddi störf sín í nefnd þeirri er hann sat í á
vegum félagsmálaráðherra og mikið hefur
verið rætt um og kom Gísli víða við. Hann
gagnrýndi harðlega þau öfl innan raða
slökkviliðsmanna er sífellt væru að vinna gegn
vilja flestra slökkviliðsmanna í landinu og
nefndi þá sérstaklega Félag tæknimanna í
brunamálum, Félag slökkviliðsmanna í
Skagafirði og fleiri. Gísli taldi það alls ófært, að
meðan stjórn L.S.S. væri að vinna að þeim
samþykktum sem gerðar hafa verið á mörgum
þingum L.S.S. væru þessir aðilar aðsenda bréf
til ráðherra sem væru í andstöðu við þessa
stefnu Landssambandsins og væri það
slökkviliðsmönnum til vansæmdar. Þá ræddi
Gísli nokkuð fræðslumál og kom fram að
nefndin hefði talið að aukin menntun
slökkviliðsmanna væri nauðsynleg.
Einnig tóku til máls Pétur V. Ólafsson, Stefán
Steingrímsson og Jónas Marteinsson, og
töluðu um fræðslumál og einnig tóku til máls
Höskuldur Einarsson, Þórir Gunnarsson,
Sigurbjörn Jónsson, Eggert Vigfússon og fl. og
ræddu um skýrslu þá er Gísli gaf og voru
honum þökkuð mjög vel unnin störf.
Að þessum umræðum loknum var þingi
frestað en nefndarstörf hófust og störfuðu
nefndir til kl. 18:30.
4 SLOKKVILIÐSMAÐURINN