Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Side 20

Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Side 20
Fræðslusjóður Eins og framkemur ígrein fráþingi L. S. S. var samþykkt tillaga frá kjaranefnd að næsta stjórn L. S. S. beitti sérfyrir því að stofnaðir yrðu fræðslu- sjóðir í hverju aðildarfélagi fyrir sig. Stjórn L.S.S. vill því hér með beina því til stjórna aðildarfélaganna að þeir kanni hvort möguleiki og áhugi sé á stofnun slíkra sjóða. Til að auóvelda mönnum sem áhuga hafa viljum við hér með birta drög að reglugerðum fyrir slíka sjóði en að sjálfsögðu getur hvert félag samið sína reglugerð. M L gr. Sjóðurinn heitir Fræðslusjóður Félags Slökkviliðsmanna á----------Heimili hans og varnarþing er í-á-------- 2. gr. Tilgangur sjóðsins er að styrkja bæði félagið og félagsmenn til að afla sér fræðslu og kynnast nýjungum í vinnubrögðum við slökkvistörf t. d. með kynnisferðum bæði innanlands og utan og á annan þann hátt er að gagni gæti komið. 3. gr. Tekjur sjóðsins eru eftirfarandi til dæmis: 1) tillag slökkviliðsmanna 5 % af launum og á móti kemur 5% tillag frásveita-bæjar eða hreppsnefnd. 2) gjafir. 3) aðrir þeir fjármunir er til falla. 4) vextir. Sjóðinn skal ávaxta á hæstu mögulegum vöxtum. 4. gr. Stjórn sjóðsins skipa 3 menn. Slökkviliðsstjóri er sjálfskipaður formaður sjóðsins en aðrir stjórnarmenn skulu kosnir á aðalfundi félagsins. 5. gr. Sjóðurinn hefur sjálfstætt reikningshald og skulu reikningar hans miðast við almanaksárið. Endurskoðandi félagsins endurskoðar reikninga sjóðsins, og skulu þeir lagðir fyrir aðalfund. Stjórn L.S.S. er að sjálfsögðu tilbúin til að veita nánari upplýsingar og aðstoða félögin við að stofna þessa sjóði eftir bestu getu. En nú þegar eru tvö aðildarfélög með slíka s jóði og hafa þeir gefist mjög vel. srj6 r c S •Höfum til sölu sumarhús af ýmsum stærðum •Lönd undir sumarhús á einum fegursta stað, miðsvæðis í Borgarfirði. •Ýmsar byggingavörur, verkfæri, búsá- höld, reykskynjarar, slökkvitæki. Trésmiðja Sigurjóns og Þorbergs hf. Þjóðveg 13 - 300 Akranes - Símar: 93-1722 & 93-2722 18 SLÖKKVILIÐSMAÐURINN

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.