Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Side 48
réttu andartaki til að valda mjög hröðum bruna
þessara lofttegunda, en útþensla þeirra getur
orðið næg til að valda sprengingu. Slík sprenging
er venjulega kölluð reyksprenging. Kraftur
reyksprengingar er kominn undir stigi byrgingar,
magni heitra lofttegunda ásamt hraða og magni
þess ferska lofts, sem steymir að, eins og sýnt er á
mynd 15. Þessar aðstæður má gera hættulausar
með skynsamlegri reyklosun. Ef byggingin er
rofín á hæsta stað mögulegum, dragast heitar
lofttegundir og reykur út og minnka hættuna á
sprengingu.
9. LEIÐSLA HITANS
Hiti getur ferðast um brennandi byggingu með
einni eða fleirum fjögurra aðferða, sem venjulega
eru nefndar leiðni, geislun, steymi og
logasnerting. Þar sem hiti innan efnis orsakast af
mólekúlverkunum, verður hitinn meiri en
sveiflutíðni mólekúlanna eykst.
LÖGMÁL HITAFLÆÐIS
Þetta náttúrulögmál eðlisfræðinnar segir, að
hiti hafi tilhneigingu til að flæða úr heitu efni yfir í
kalt efni. Er þá gert ráð fyrir hæfni eins efnis til að
taka í sig hita úr öðru.
LEIÐNI
Ferill leiðninnar er yfírleitt fremur tengdur
hitaflutningi en loga. Hitamáleiðafráeinumhlut
til annars með beinni snertingu tveggja hluta eða
með milligöngu hitaleiðara. Teikningin í mynd 16
sýnir hitaflutning með leiðni. Magn og hraði
hitaflutnings með þessari aðferð er háð
leiðsluhæfni efnisins, sem hitinn fer í gegnum. Al,
kopar og járn eru góðir leiðarar. Önnur föst efm,
svo sem steinn og tré, eru slæmir leiðarar.
Trefjakennd efni svo sem lín, vefnaður og pappir
eru slæmir leiðarar.
Vökvar og lofttegundir leiða hita illa vegna
óbundinna hreyfínga mólekúla þeirra. Loft eru
mjög slæmur leiðari. Viss föst efni, sem skorin eru
í trefjar og pakkað í fóðringar, eru góð einangrun
vegna þess að efnið er sjálft slæmur leiðari og
loftrúm eru milli fóðringanna. Tvöfaldir veggir
bygginga með loftrúmi á milli tryggja betri
einangrun. Hinn kaldari af tveimur hlutum, er
46 SLÖKKVILIÐSMAÐURINN