Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Side 49
snertast, tekur í sig hita þangað til báðir hlutir
hafa sama hitastig.
geislun
Sólarhitinn gerir brátt vart við sig eftir að sólin
er komin upp. Þegar sólin sest, byrjar jörðin aftur
að kólna með svipuðum hraða. Við berum
sólhlífar til að skýla okkur fyrir sólarhitanum. Ef
slökkviliðsmaður úðar vatni milli síns og eldsins,
finnur hann að hitinn af eldinum minnkar. Þar
sem loft leiðir nánast ekki hita er augljóst að hiti
getur ferðast þar sem efni er ekki til. Þessi tegund
hitaflutnings er nefnd hitageislun. Hita- og
Ijósbylgjur eru mjög áþekkar í eðli sínu en
mismunandi að lengd. Hitabylgjur eru lengri en
Ijósbylgjur og eru stundum nefndar innrauðir
geislar. Hitabylgjur fara í gegnum geiminn
þangað til þær koma að þéttum hlut. Þegar
hluturinn verður fyrir hitageislun, geislar hann
hitanum aftur frá yfirborði sínu. Hitaflutningur
með geislun er sýndur á mynd 17. Hitageislun er
ein af meginorsökum eldsútbreiðslu og er því
krafist skjótra varnaraðgerða á þeim stöðum, sem
verða fyrir sterkri geislun.
HITASTREYMI
Þegar vatn er hitað í gleríláti er hægt að skoða
hreyfingarnar inni í ílátinu gegnum glerið. Ef sag
er sett út í vatnið verða hreyfingarnar augljósari.
Því heitara sem vatnið verður þeim mun meira
verður útþennsla þess og jafnframt léttist það.
Þetta skýrir hreyfingar þess upp á við. A sama
hátt hitnar loft nálægt ofni með hitastreymi; það
þennst út, léttist og hreyfist upp á við. Þegar heita
loftið fer upp, kemur kalt loft þess í stað neðan til í
vistarverunni. Þegar vökvar og lofttegundir eru
hitaðar, byrja þessi efni að hreyfast innbyrðis.
Þessi hreyfing er ólík mólekúlhreyfingunum, sem
áður var getið, og er nefnd hitastreymi.
Hitastreymi er mikilvægari hvað snertir
eldsatlögu og reyklosun en báðar þær aðferðir,
sem getið var um við útbreiðslu hitans.
Hitastreymi er því skilgreint sem flutningur á hita
með hreyfingum lofts og vökva. Heitt loft í
byggingu þenst út og stígur upp. Af þessari
ástæðu er eldsútbreiðsla með hitastreymi
mestmegnis upp á við, þótt loftstraumar geti flutt
hitann í allar áttir. Loft, sem streymir upp á við,
ÚTIHURÐIR
ÁÆTLUN AKRABORGAR
í janúar, febrúar, mars, nóvember og
desember:
Frá Akranesi
Kl. 8,30
— 11,30
— 14,30
— 17,30
FráReykjavík
Kl. 10,00
— 13,00
— 16,00
— 19,00
I apríl og október verða kvöklferðir á sunnudögum. — f
maí, júni og september verða kvöktferðir á föstudögum
og sunnudögum. — f júli og ágúst verða kvöldferðir alla
daga, nema laugardaga.
Kvöldferðlr eru frá Akranesi kl. 20,30
ogfráReykjavikkl. 22,00.
Afgreiðsla Akranesi simi 2275
Skrifstofan Akranesi simi 1095
Afgreiðsla Rvíksími 16050
Símsvari í Rvíksími 16420
SLÖKKVILIÐSMAÐURINN 47