Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Side 44

Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Side 44
við aðstöðu þessarar prófunarstöðvar mjög gaumgæfilega. Einnig skoðuðum við þar svokallaða „gasdrakt” en það er búningur fyrir slökkviliðsmenn er þurfa að kljást við kemisk efni margskonar. Búningur þessi er svipaður samfestingi nema úr gúmmí og til viðbótar kemur hetta sem síðan lokast að framan með andlits- maskanum, búningurinn er síðan tengdur reyk- köfunartækjum, þannig að á öllum búningunum er yfírþrýstingur. Vorum við sammála um að ekki væri forsvaranlegt annað en íslensk slökkvilið komi sér upp svona búningum að einhverju marki og þá sérstaklega atvinnuliðin. Dvöldum við þarna á stöðinni í dágóðan tíma og kunnum við Kjell og félögum hans bestu þakkir fyrir mót- tökuna. Föstudaginn 11.9. flugum við síðan yfir til Osló og strax eftir hádegi fórum við með lest til Grorud og tóku þar á móti okkur Folde rektor og yfir- kennari skólans. Ræddum við um samvinnu BMSR, L.S.S. og norska brunaskólans um skólamál og komu okkur viðtökur þeirra svo sannarlega á óvart, því eftir nokkrar viðræður lýstu þeir því yfir að þeir vildu gera allt sem í þeirra valdi væri til að aðstoða okkur, t.d. senda okkur öll sín kennslugögn og taka á móti nemendum á sína kúrsa og þjálfa kennaranema fyrir okkur og allt annað sem okkur gæti að gagni komið. Leist okkur mjög vel á þessa byrjun á íslenskum brunaskóla og héldum nokkru síðar glaðir og kátir inn til Osló. HEIMFERÐIN Laugardaginn 12.9. var síðan haldið til Kaup- mannahafnar og þar var svo slegið sér rækilega upp og haldið uppá árangursríka og ánægjulega ferð. Allar tryggingar hjá Sjóvá UMBOÐIÐ AKRANESI - SÍMI 2000 SOKKAR Framleiöandi: FATAGERÐIN hf. AKRANESI 42 SLÖKKVILIÐSMAÐURINN

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.