Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Side 30
KÁTIR VORU KARLAR
Akraborgin kl. 10 laugardagsmorguninn 31.
október.
Hópur slökkviliðsmanna af Keflavíkurflugvelli
alls 23 manns gengur um borð, fljótlega verður
vart tveggja blaðasnápa frá Landssambandi
slökkviliðsmanna.
Eins og augljóst er, er ferðinni heitið til
Akraness, tilgangurinn er að heimsækja slökkvi-
lið Akraness.
Allt frá því í októberbyrjun hafði verið gælt við
þá hugmynd að heimsækja eitthvert slökkviliðið í
grendinni, minnugir þess að aðrar heimsóknir
okkar til annarra slökkviliða færðu okkur ekki
bara ánægjuna af að hitta og ræða við starfsfélaga
okkar, heldur einnig ómældan fróðleik um
viðkomandi stað og starfsaðstöðu slökkviliðs-
manna þar.
Um það leyti sem Akraborgin lagði að bryggju,
var svipast um hvort einhver kunnugleg andlit
sæust, ekki bar á öðru, þarna voru Stefán, Ársæll
og Þórhallur mættir auk fleiri slökkviliðsmanna
til móttöku okkar.
Er gengið var frá borði urðu fagnaðarfundir,
því margir okkar þekktust frá fyrri tíma.
Var okkur skipt niður í bíla félaga okkar og ekið
sem leið lá í byggðarsafn Akraness og dvalið þar
næsta klukkutímann. Óhætt er að segja að
byggðarsafn Akraness er til fyrirmyndar og mikil
vinna hefur verið lögð í söfnun muna frá fyrri tíð.
Hádegisverður var snæddur að Stilliholti og
var okkur síðan ekið vítt um bæinn, sagt frá og
sýndir þeir staðir þar sem eldsvoðar höfðu átt sér
stað.
Aðeins var degi tekið að halla er komið var í
slökkvistöð Akraness og þvílík slökkvistöð. Björt,
rúmgóð og hreinleg með afbrigðum, slökkvibílar
allir í góðu standi, greinilegt að umsjónarmaður
hússins situr ekki aðgerðarlaus.
í slökkvistöðinni var boðið upp á kaffi og
bakkelsi. Ræddust menn þar við í bróðerni, skipt-
ust á skoðunum og sögðu frá reynslu sinni.
Kl. 5.30 lagði Akraborg frá með ánægða
slökkviliðsmenn, ánægða vegna þess hve ferðin
tókst vel, ánægða vegna þessa tækifæris að fá að
kynnast félögum okkar af Skaganum.
Við kunnum slökkviliðsmönnum Akraness
bestu þakkir fyrir móttökuna, vonandi hafið þið
tækifæri til að líta við hjá okkur bráðlega.
Akraborgin nálgast Reykjavík, frá borði hljóm-
ar kröftugur söngur. „Og allir komu þeir aftur og
enginn þeirra dó“. Karlakór Akraness átti ekki
leið til Reykjavíkur þennan dag.
K arl T*QTr1/>r
Félagar í S.S.K. fyrir framan Byggðasafn Akraness.
28 SLÖKKVILIÐSMAÐURINN