Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Blaðsíða 8
2-6 Yfirmönnumslökkviliðaá eldstað séskylt
að sjá til þess að slökkviliðsmenn undir hans
stjórn séu klæddir viðurkenndum göllum
samkvæmt 2-2.
Oryggis- og heilbrigðisnefnd skorar á stjórn
L.S.S. að vinna að gildistöku þeirrar
reglugerðar sem um hefur verið rætt og eftir
gildistöku, að sjá til þess að kosnir verði
trúnaðarmenn í hverju slökkviliði til að sjá til
þess að reglugerðinni verði framfylgt.
Um þessar tillögur öryggis- og heilbrigðis-
nefndar urðu talsverðar umræður og var að
lokum samþykkt tillaga frá Ágústi Magnússyni
að vísa þessum tillögum til næstu stjórnar
L.S.S. sem samræmdi síðan þessar tillögur
umsögn sinni um fyrrnefnd drög.
Var sú tillaga samþykkt samhljóða.
Kjaranefnd.
Reynir Sveinsson gerði grein fyrir störfum
kjaranefndar og lagði fram eftirfarandi
tillögur:
1. Að greitt verði til lausráðinna slökkviliðs-
manna eftir 11. launaflokki 3 þrep vegna útkalla
og æfinga miðað við kjarasamning B.S.R.B.
2. Að fastar ársgreiðslur til slökkviliðsstjóra
skulu hækka í sama hlutfalli.
3. Kjaranefnd vill beina því til næstu stjórnar
L. S. S. að stofnaðir verði fræðslusjóðir í hverju
aðildarfélagi fyrir sig. Hlutverk sjóðsins yrði að
fjármagna fræðslu félagsmanna eftir því sem
fjármagn sjóðsins leyfir hverju sinni. Tekjur
sjóðsins yrði aflað t.d. með því að hver félagi
greiddi sem svarar 5% af sínum launum og
launagreiðandi legði fram önnur 5% á móti.
Einnig kæmu aðrar leiðir til greina eftir
aðstæðum.
Slökkviliðsmenn hafa dregist verulega afturúr
í launakjörum miðað við þær stéttir er kallast
geta viðmiðunarstéttir slökkviliðsmanna. Þar
sem L.S.S. hefur í gegnum árin gefið út
einhliða launatöflu fyrir lausráðna slökkviliðs-
menn og yfirleitt greitt er eftir sér hún ekki
ástæðu tilannars en að hækka þessa töflu til
6 SLÖKKVILIÐSMAÐURINN
samræmis við þessa viðmiðunarhópa. Um
þessar tillögur urðu nokkrar umræður, en
síðan voru þær samþykktar samhljóða.
Laganefnd.
Laganefnd lagði fram tillögur um breytingar á
lögum L.S.S. og þá um kjörgengi og rétt til
þingsetu.
Tillögunum vísað til næstu stjórnar.
Félagsmála- og fræðslunefnd:
Félagsmála- og fræðslunefnd 9. þingsL.S.S.
leggur til við næstu stjórn L.S.S. að hún styðji
við þá stefnu sem Brunamálastofnun ríkisins
hefur tekið í fræðslumálum slökkviliðsmanna,
æskileg forgangsverkefni gætu verið sem hér
segir:
1. Þýðing og útgáfa á kennslugögnum frá
Norges Brannskole.
2. Það námskeiðahald sem B.M.S. hefur
undirbúið og framkvæmt verði framhaldið og
aukið.
3. Flýtt verði útgáfu nýrra reglugerða um
brunavarnir og brunamál, t.d. um bensín-
birgðastöðvar og hin ýmsu eiturefni.
Einnig leggur félagsmálanefnd til að stjórn
L.S.S. nýti blaðið „Slökkviliðsmaðurinn” til
að koma fræðslu og upplýsingum til starfandi
slökkviliðsmanna, og aðfélagar L.S.S. meðtaki
þessa fræðslu og styðji við bak ritnefndar i
þeim efnum.
Kjörnefnd:
Stefán Steingrímsson gerði grein fyrir störfum
kjörnefndar og lagði fram lista kjörnefndar um
næstu stjórn L.S.S. Sagði Stefán, að algjör
samstaða hefði verið í nefndinni um lista
þennann og vonast til að hann nái kosningu en
listann skipa:
Formaður:
Höskuldur Einarsson, R.V.K.
Varaformaður:
Ágúst Magnússon, Selfossi
Gjaldkeri:
Þorbjörn Sveinsson, Hafnarfirði
Ritari:
Jónas Marteinsson, Keflavíkurflugv.