Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Page 9
Frá sýningu innflytjenda á þinginu.
Meðstjórnendur:
Olafur Sigurðsson, Reykjavíkurflugvelli
Jón Ólafur Sigurðsson, ísafirði
Sigurbjörn Jónsson, Akranesi
Endurskoðendur:
Marinó Bóas Karlsson, Reykjavíkurflugv.
Arni H. Gunnarsson, Reykjavíkurflugv.
Til vara:
Hörður Helgason, Reykjavíkurflugvelli.
Engin önnur tillaga um menn í stjórn kom
fram og var því listi kjörnefndar sjálfkjörinn
við mikið lófaklapp þingfulltrúa.
l^.Önnur mál:
Undir liðnum önnur mál tóku margir til máls
og þar á meðal Karl Taylor, Jón Armann
Jónsson, Guðbrandur Bogason, Vilhjálmur
Arngrímsson og fleiri og ræddu þeir m.a.
fræðslumálin og einnig urðu kjaramálin mikið
rædd og kom fram mikill vilji manna um
nánara samstarf og einnig hvort L.S.S. ætti
ekki að fara að vinna miklu meira að
kjaramálum, bæði atvinnu- og lausráðinna
slökkviliðsmanna. í framhaldi af þessum
umræðum um kjaramál var borin fram
eftirfarandi ályktun:
„9. þing Landssambands slökkviliðsmanna
haldið að Hótel Esju í Reykjavík dagana 3. og 4.
október s.l. ályktar að kjör atvinnuslökkviliða_ í
landinu hafi dregist úr hófi afturúr því sem gerist
hjá þeim stéttum sem slökkviliðsmenn geta borið
sig saman við.
Frá sýningu innflytjenda á þinginu.
Þingið leggur til, að gerð verði athugun á raun-
verulegu gildi í starfi allra atvinnuslökkviliða í
landinu, sem síðan yrði lagt til grundvallar í
væntanlegum samningaviðræðum við viðkom-
andi aðila um kaup og kjör þeirra.
Þingið felur stjórn L.S.S. að styðja á allan hátt
sem frekast er unnt við bakið á atvinnuslökkvi-
liðsmönnum í kjarabaráttu þeirra sem framundan
er.“
Þessi ályktun var rædd en síðan borin undir
atkvæði og samþykkt samhljóða.
Að lokum tók nýkjörinn formaður L.S.S. Hösk-
uldur Einarsson til máls og þakkaði það traust er
sér væri sýnt með þessari kosningu og hann
hlakkaði til að takast á við þau verkefni er hans
stjórnar biði. Einnig þakkaði hann þingfulltrúum
góðan málflutning og góða vinnu og taldi þetta
þing hefði skilað mikilli vinnu og vissi stjórnin nú
að hún hefði stuðning flestra slökkviliða í landinu
og gæti þar af leiðandi starfað af alefli að þeim
málum sem þingið hefði skilað af sér.
14. Þingslit.
Þórir Gunnarsson þingforseti tók að síðustu til
máls og þakkaði fulltrúum góða þingsetu og
góðan málflutning og óskaði fulltrúum góðrar
heimferðar og heimkomu og sleit síðan þessu 9.
þingi L.S.S.
Þessi grein er aðeins úrdráttur úr fundargerð en
ekki er hægt að birta hana hér í heild vegna pláss-
leysis.
SLÖKKVILIÐSMAÐURINN 7