Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Qupperneq 33

Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Qupperneq 33
opinberar tölur sýna miðað við reynslu annarra. Eg er ekki að reyna að leiða að því rök að þáttur brennuvarga í brunatjóni sé eins ríflegur og hjá bandaríkjamönnum eða öðrum þjóðum, heldur hitt að full ástæða er til að gefa þessum þætti í brunamálum töluvert meiri gaum. Ikveikjur eru nær alltaf af mannavöldum, oftast sökum gáleysis og eða þekkingaleysis í umgengni uni hluti. Aðstæður sem valdið geta íkveikju eða beinlínis viljandi kveikt í vegna einhverra mannlegra eða ómannlegra hvata eða vítavert Sáleysi, og þá er atvikið orðið sakamál. Þátt brennuvarga ræðum við síðar en spáum nánar í hinn. Mjög æskilegt er að allir eldar séu rannsakaðir °g gerðar skýrslur um öll atvik sem máli skipta, skýrslur síðan sendar aðila sem safnar þeim og vinnur úr þeim þær upplýsingar sem að gagni mættu koma. Brunamálastofnun ríkisins væri eðlilegasti aðili hér á landi til að vinna úr slíkum skýrslum. Á grundvelli þeirra upplýsinga sem birtast í umræddum skýrslum og auðvitað reynslu annarra er síðan hægt að byggja raunhæfar reglugerðir um eld og eldvarnareftirlit miðað við íslenskar aðstæður. Þau atriði sem þarf að grennslast fyrir um við brunarannsóknir til að sem mest gagn fáist af eru: 1. Hvað olli íkveikjunni? 2. Hvers vegna? 3. Hver ber ábyrgð á atvikinu? 4. Hvernig kviknaði í? 5. Hvaða aðstæður ollu útbreiðslu? 6. Hvað er hægt að gera til að fyrirbyggja endurtekningu annars staðar? 7. Hver var skaðinn? Erfíðasta atriðið við að eiga er venjulega það fyrsta - orsökin - því í flestum tilfellum eyðir eldurinn þeim sönnunargögnum, sem fyrir hendi voru. Því er mjög oft djúpt á þeim firesnow og ginge SLÖKKVITÆKI Þurrdufts- Froðu- Vatns- Kolsýru- 09 Halon- tæki Sjálfvirk slökkvikúla 5,4 kg halon opnast við 74°C Reyk skynjarar Örunaboðar Brunateppi Brunaslöngur 1 1/2”,2” Nælon með gúmí innleggi STORZ-SLÖNGUTENGI STORZ-Y-TENGI STORZ-BOTNSIGTI SLÖNGUKLEMMUR nota hinir vandlátu. Stærðirfrá 1/4” til 12” Einnig ryðfríar. Brunaaxir Skaft: 95 sm, 2150 g Skaft: 40 sm, 650 g Ananaustum Sími 23855 SLÖKKVILIÐSMAÐURINN 31

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.