Slökkviliðsmaðurinn - 01.04.1988, Blaðsíða 11
C: Brunaálag í húsnæðinu meira en uppruna-
leg hönnun gerði ráð fyrir.
D. Viðhald og eða eftirlit ábótavant.
Það er því Iykilatriði að kunnáttumenn
hanni þessi kerfi og geri á þeim raunhæfa
úttekt áður en þau eru tekin í notkun og í
beinu framhaldi af því sé viðhaft strangt og
markvisst eftirlit samkvæmt ýtrustu kröfum
Brunamálastofnunar Ríkisins.
Lýsing
Sjálfvirkt vatnsúðunarslökkvikerfi saman-
stendur af vatnslögn, sem tengist nægjanleg-
um vatnsforða og dreifist um húsnæðið,
samkvæmt ákveðnum stöðlum um gildleika
og fjölda úðastúta ræðst af því brunaálagi
sem gert er ráð fyrir í húsinu. Þar sem
stofninn kemur inn í húsið er flæðiskynjari,
sem gefur frá sér boð ef einn eða fleiri
úðastútar opnast. Venjulega tengist þessi
skynjari viðvörunarkerfi hússins ef það er
fyrir hendi, og setur það í gang eða þá að
hann tengist einhverri varðstöð t.d. slökkvi-
liði, lögreglu. Þá er ávallt bjalla utan á húsinu
sem drifin er með vatni, sem flæðiskynj ari
opnar fyrir um leið og vatn fer að hreyfast í
leiðslum. Úðastútarnir eru mjög vandlega
hannaðir. Helstu hlutar þeirra eru: Stútur
venjulega l/2“, bræðivar, sem heldur honum
lokuðum og síðan dreifiplata sem breytir
beinni vatnsbunu í ákveðið úðaform.
Bræðivarið er þannig gert að við ákveðið
hitastig bráðnar það og opnar stútinn. Hægt
er að velja um 7 mismunandi bræðimörk, frá
60°C og allt að 340°C. Það bræðimark sem
valið er ræðst af umhverfishita þeim sem
vænst er í rýminu. Hitastig hvers bræðivars
er venjulega stimplað í rammann sem það er
fest í, einnig er ákveðinn litakvóti fyrir hvert
hitasvið. T.d. er stútur með hvítum ramma
með bræðimark milli 80°C-107° en það er
lang algengasta sviðið. Dreifiplatan er ýmist
gerð þannig að stúturinn snýr upp og platan
dreifir bununni niður, en það er venjulega
gerðin og æskilegast, ef ekki er hægt að koma
þannig stútum við geta þeir snúið niður og
dreifiplatan sinnir sama hlutverki. Ástæðan
fyrir því að uppréttir stútar eru æskilegir er
sú, að með tímanum geta óhreinindi sest í
stútinn og stíflað hann, en með eðlilegu og
víðtæku eftirliti ætti það ekki að ske. Þá eru
einnig dreifiplötur sem dreifa úðanum út á
hlið þannig að staðsetja má stútinn út við
vegg og myndi hann síðan dreifa úðanum
samkvæmt ákveðnu munstri þaðan.
Mismunandi tegundir
Margar tegundir af vatnsúðunarkerfum
eru á markaðnum til að sinna hinum mismun-
andi þörfum. Augljóst er að gjörólíkar að-
stæður eru fyrir hendi í t.d. skrifstofuhúsn-
æði, stóru vöruhúsi eða flugskýli. Þá er
0PEN SPRJNKLIRS
OR NO'ZZLES
SL ÖKKVILIÐSMA Ð URINN
S /