Slökkviliðsmaðurinn - 01.04.1988, Blaðsíða 32
aðstoða fyrrgreindan tæknimann við útgáfu-
starfsemi.
Ef fengist að ráða þessa tvo starfsmenn er
ég fullviss um að afköst innan stofnunarinnar
myndi aukast miklu meira en sem næmi
hlutfallslegri aukningu starfsmanna.
Að síðustu og ekki síst vil ég minnast á
tillögur nefndar þeirrar er skilaði tillögum
um fræðslu- og þjálfunarmál slökkviliðs-
manna. Ég er mjög ánægður með þessar
tillögur og mun reyna að framkvæma þær
eftir bestu getu eftir því sem aðstæður leyfa.
Ekki er því samt að neita að þar skiptir mestu
máli fjárhagur Brunamálastofnunar eins og
ég minntist á hér í upphafi þessa erindis.
Óska ég svo slökkviliðsmönnum allra
heilla í starfi sínu og þakka þeim vel unnin
störf.
Bergsteinn Gizurarson,
brunamálastjóri ríkisins.
Atvinnumenn í
stað áhugamanna
Nú um síðustu áramót voru stór þáttaskil í
sögu Brunavarna Suðurnesja. En þá var sett
upp fast slökkvilið. Fram að þessu hefur
slökkviliðið verið rekið sem útkallslið, og
notast hefur verið við símaboðunakerfi og
lúður.
Einnig hafa nú Brunavarnir Suðurnesja
tekið að sér alla sjúkraflutninga, en hingað til
hefur sá liður verið alfarið á vegum Heilsu-
gæslu Suðurnesja.
Ráðnir sem fastir starfsmenn hjá Bruna-
vörnum Suðurnesja eru því í dag 12 menn,
en þeir eru: Ingi Þór Geirsson, slökkviliðs-
stjóri sem reyndar hefur sinnt því embætti
um árabil. Jóhannes Sigurðsson aðstoðar-
slökkviliðsstjóri sem hefur einnig starfað í
mörg ár sem yfirmaður eldvarnareftirlitsins,
en starfaði áður sem eldvarnareftirlitsmaður
ásamt Jóhannesi. Lárus Kristinsson fluttist
til Brunavarna Suðurnesja, en hefur starfað í
mörg ár sem sjúkraflutningsmaður hjá
TIL SOLU
- LÍFLÍNUR
- SÚREFNISTÆKI
- Neyðarblikkljós
- ÖRYGGISBELTI
Spiromatic
- REYKKÖFUNARTÆKI
frá Interspiro AB
(A.G.A.)
PRÓFUN HF.
Fiskislóð 1 19 B - 121 Reykjavík
P.O. Box 1406 - Sími: 91-26085
Heilsugæslunni, einnig var Lárus slökkviliðs-
maður áður en hann hóf störf á sjúkrabílnum
og eldvarnareftirlitsmaður í Keflavík.
Ingimar Guðnason, Gísli Viðar Harðarson
og Hjörleifur Ingólfsson fluttust til til Bruna-
varna Suðurnesja, en hafa starfað sem
sjúkraflutningsmenn hjá Heilsugæslunni.
Baldur Baldursson, Örn Bergsteinsson,
Gylfi Ármannsson og Davíð Eyrbekk voru
nú fastráðnir en hafa um árabil verið í
útkallsliði Brunavarna Suðurnesja.
Auk þeirra var ráðinn Sigurgísli S. Ketils-
son, en hann starfar sem eldvarnareftirlits-
maður.
Aðsetur
Brunavarna
Suðurnesja
SLÖKKVILIÐSMAÐ URINN