Slökkviliðsmaðurinn - 01.04.1988, Side 25
Reykköfunarnámskeið
á vegum L.S.S.
Nemendur ásamt kennurum.
Dagana 29., 30. og 31. febr. ‘87 var haldið
reykköfunarnámskeið um borð í Sæbjörg
skólaskipi Slysavarnarfélags íslands og hófst
það kl. 20:00. Námskeiðið setti núverandi
formaður L.S.S., Guðmundur Helgason og
byrjaði hann á að bjóða nemendur velkomna
og sagði þetta vera stóra stund hjá L.S.S.
Minntist hann einnig á sérskóla fyrir slökkvi-
liðsmenn sem því miður væri ekki sjáanlegur
í næstu framtíð en fylgjast yrði vel með þeim
málum og hrósaði hann Þóri og Höskuldi
fyrir þeirra baráttu í þeim efnum og sagði svo
að lokum að hann og aðrir í stjórn L.S.S.
vonuðu að þetta námskeið mætti vera okkur
til mikils gagns.
Byrjað var að fara yfir eðli elds og voru
það Höskuldur Einarsson og Þórir Gunnars-
son sem sáu um það. Þeir reyndu að koma
mönnum í skilning um hvað eldurinn væri í
raun hættulegur og að við gerðum okkur
grein fyrir hvað eldurinn væri mikill og reyna
að sjá hversu heitur hann væri eftir lit hans og
þá hversu mikið vatnsmagn þyrfti. Einnig var
farið í rétt slökkvistarf og rætt um helstu
slökkviefni sem eru vatn, (sjór), duft, kol-
sýra, froða, létt vatn og halon og við hvaða
aðstæður ætti að nota hvert um sig. Og um kl.
23:00 var tekin pása þangað til næsta morgun.
Kl. 08:00 var ræst og beið þá ljúffengur
morgunmatur á borðum og þegar menn
höfðu nærst var tekið við fyrri iðju ásamt
sömu kennurum en nú var farið í bóklega
reykköfun. Tekið var fyrir hlífðarfatnaður
reykkafara, reykköfunartæki og rétt öndun
SLÖKKVILIÐSMAÐURINN