Slökkviliðsmaðurinn - 01.04.1988, Blaðsíða 12

Slökkviliðsmaðurinn - 01.04.1988, Blaðsíða 12
einnig atriði hvort húsnæðið er upphitað eða ekki. Hinum ýmsu tegundum kerfa hefur verið gefin nöfn, venjulega á ensku því flest eru þau upprunnin í Bandaríkjunum og Englandi. Nú er oft vandi að íslenska slík tækniorð en ég mun leitast við að gera það á eigin ábyrgð þannig að nafnið gefi til kynna tegundina eftir eðli kerfisins, en enska nafnið fylgir með. 1. Blaut kerfi (Wet system) 2. Þurr kerfi( Dry system) 3. Flóð kerfi (Deluge system) 4. Forhlaups kerfi (Pre-action system) 5. Takmörkuð kerfi (Limited water supply system) 6. Útanhúss kerfi (Outside system) 7. íbúðarkerfi (Residetil sprinkle) 1. Blaut kerfi eru eins og nafnið bendir til, fyllt vatni að hverjum úðastút og úða vatni um leið og stúturinn opnast. Þessi kerfi eru algengust enda einföldust og fljótvirkari, en gallinn er sá að þau þola ekki frost, nema ef til vill lítill hluti kerfisins sem er þó hliðtengd- ur á sérstakan máta aðalkerfinu og fylltur með frostlegi. 2. Þurr kerfi eru eins og hin utan þess og að ekki er í þeim vatn fyrr en eftir að úðastútar þeirra opnast. í þeim kerfum er hafður loftþrýstingur, sem heldur lokuðum vatns- lokanum þar til að lokinn megi opnast. Þessi kerfi þola frost, utan aðallokinn og inntöku- stofninn en þeir eru þá hafðir í sér herbergi eða rými sem er upphitað. Þessi kerfi eru seinvirkari en þau blautu því venjulega tekur nokkurn tíma fyrir vatnið að ryðja loftinu út úr rörunum og komast að úðastútunum sem hafa opnast. Venjulega er sjálfvirk loftdæla tengd við kerfið, til að halda í því eðlilegum loftþrýstingi. Bili þessi loftdæla, fer í gang viðvörunarboði, því komist vatn inn í kerfið og það nær að frjósa er voðinn vís. Þau kerfi eru því flóknari en þau blautu, eru viðhalds- og eftirlitsfrekari og þar að auki er stærð þeirra takmörkuð, þ.e. eitt þurrt kerfi getur ekki varið eins stórt rými og eitt blautt. 3. Forhlaups kerfi má segja að sameini kosti hinna tveggja, þ.e. þau eru normalt þurr en fyllast vatni áður en bræðivar frysta úðastúts opnast. Dreifing vatnslagna og úðastúts er hin sama og fyrir blaut kerfi. Istað þess að opnun bræðivars í úðastút orsakaði gangsetn- ingu hinna kerfanna þá er aðalvatnsloki kerfisins tengdur brunaviðvörunarkerfi, sem ýmist virkar frá hita, reyk eða eldskynjurum og opnast um leið og það kerfi fer í gang. Vatn streymir inn í allar leiðslur og er DEFLECTOR DEFLECTOR SCREW FRAME FEMALE LEVER ROLLER KEY. LINK PLATES FUSIBLE LINK AUTO- MATIC SPRINKLER. gjarnan komið á sinn stað opnist úðastútur, en bræðivör þeirra eru seinvirkari en skynjar- ar viðvörunarkerfa. Þessi kerfi eru helst 'notuð á stöðum sem eru viðkvæmir fyrir vatnsskaða t.d. töflu eða rafeindarými, söfn o.s.fr.v. þar sem möguleikinn einn á móti milljón er jú fyrir hendi að úðastútur bili eða vatnslögn. En þau eru dýrari, viðhalds- og eftirlitsfrekari en hin tvö. 4. Flóð kerfi eru uppbyggð á sama máta og með tilheyrandi vatnslögnum og úðastútum. En úðastútarnir eru ekki með bræðivar, heldur eru þeir allir opnir þannig að þegar kerfið fer í gang úðast vatn úr öllum stútum í senn sannkallað flóðkerfi. Þar sem allir stútar eru opnir þarf venjulega geysilegt vatnsmagn til að allstaðar úðist jafnt, því eru gjarnan samfara þessum kerfum sérstök vatnsdælustöð og mjög afkastamikið vatns- veitukerfi eða jafnvel sérstakur vatnsforða- tankur. Gangsetning flóðkerfa er á þann veg að meðfram vatnsdreifikerfinu í loftrými þess sem verja skal eru hita eða eldskynjarar sem tengdir eru sérstökum búnaði er opnar fyrir vatnið, setur dælurnar og viðvörunar- kerfi rýmisins í gang og sendir boð á varðstöð. Þessi kerfi eru notuð á stöðum þar sem hætta er á að ef eldur verður laus á annað borð þá verður hann mjög stór strax í upphafi, t.d. í flugskýlum, í efnaiðnaði með mikið af mjög eldfimum efnum o.s.frv. 5. Takmörkuð kerfi eru eins og nafnið bendir til, takmörkuð að því leyti að vatnsbirgðir eru nýjar. Þau eru notuð þar sem nægjanlegt vatn frá veitu eða kælikerfum er ekki fyrir hendi. Úðakerfið sjálft getur verið ýmist SLÖKKVILIÐSMAÐURINN

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.