Slökkviliðsmaðurinn - 01.04.1988, Qupperneq 13

Slökkviliðsmaðurinn - 01.04.1988, Qupperneq 13
blautt, þurrt eða forhlaupskerfi og hannað samkvæmt sömu kröfum, en slík kerfi eru ekki viðurkennd nema fyrir rými eða hús með tiltölulega litlu brunaálagi. Vatnsforði slíkra kerfa er þá hafður í þrýstitank þ.e. sterkbyggður vatnstankur fylltur að 2/3 hlut- um með vatni, afgangurinn 1/3 er loft undir þrýstingi minnst 75 pund(psi) eða nægjanlega mikill til,að þegar tankur er orðinn tómur, sé minnst 15 punda þrýstingur við næsta úðastút. 6. Utanhúss kerfi eru líklega enn eldri en úðakerfi. Hugmyndin að þeim er sú að væta útveggi og þakskegg timburhúsa eða steinveggi þar sem eldur í nærliggjandi húsum geti stofnað til hættu. Sérstakir úða- stútar eru notaðir í þessum tilgangi mismun- andi þó eftir því hverskonar vörn á að veita. Svona kerfi geta reynst vatnsfrek ef um stóra fleti er að ræða því allir eru úðastútarnir opnir, en þar sem eingöngu á að verja glugga má nota litla stúta. Ekkert vatn er eðlilega í leiðslunum heldur er vatni hleypt á, ýmist sjálfkrafa með viðeigandi hitaskynjurum eða handstýrt. Vatni er ýmist dælt í kerfið með slökkviliðsbílum, sem taka vatn úr bruna- hana eða vatnsbóli, eða þá að kerfið er tengt vatnskerfi hússins sé það nægjanlega öflugt. 7. íbúðar kerfi eru hið nýjasta í bransanum. Tilurð þeirra, eins og þau eru í dag er árangur um 15 ára umræðu og þróunar. 1973 var sérstakri stjórnskipaðri nefnd ætlað að leita ráða vegna hins gífurlega vanda, sem Bandaríkjamenn áttu við að etja gagnvart fjölda dauðsfalla í íbúðabrunum. Dánartölur hjá þeim í íbúðarbrunum voru um tífallt hærri en hjá Evrópubúum en þó ekki nema tvöfallt fleiri í Kanada. Árangur af tillögu þessarar nefndar hlýtur að teljast furðu góður en dauðsföllum í íbúðarhúsum hefur fækkað um 25-30% á tímabilinu. Líklegt er talið að almenn fræðsla eigi mestan þátt £ árangrinum, sem var ein af tillögum nefndar- innar, því næst hinir ódýru batterídrifnu reykskynjarar, en notkun þeirra hefur verið lögleidd í sumum fylkjum Bandaríkjanna enda er árangur þar ótvíræður. En tillaga nefndarinnar var að hannað skyldi sérstakt vatnsúðunarkerfi, sem hentaði í íbúðarhús. Pað var ekki fyrr en upp úr 1980, sem rannsóknir og þróun gáfu af sér forvera þess íbúðavatnsúðunarkerfis sem fáanlegt er í dag. Aðalvandinn sem við var að glíma var að hinir hefðbundnu úðastútar voru of sein- virkir og vatnsfrekir til að hægt væri að nota þá við þær aðstæður sem eru í íbúðarhúsum þ.e. tregt vatn og gjarnan mjög hröð hitaupp- SLÖKKVILIÐSMAÐURINN S ?

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.