Slökkviliðsmaðurinn - 01.04.1988, Síða 17
Tekið skal fram, að um það var samið við
Höskuld að hann kæmi út blaðinu og tæki
hagnaðinn í laun fyrir, ef hagnaður yrði. Enn
einu sinni naut L.S.S. starfskrafta Höskuldar
svo um munaði. í apríl tók Jóhann Ragnars-
son í slökkviliði Vestmannaeyja að sér að
koma út næsta blaði. Vinna við blaðið er vel
á veg komin og væntum við þess að það komi
út fljótlega.
í framhaldi af því að ályktunum síðasta
þings var komið til viðkomandi aðila var
milliþinganefnd sem kosin var um launamál
kölluð til starfa. Ekki var sérstakur formaður
kosinn í nefndinni en undirritaður óskaði
eftir því við Guðbrand Bogason, að hann
annaðist verkstjórn í störfum nefndarinnar.
Nefndin hefur unnið vel og samviskusam-
lega, en hér er um slíkt stórmál að ræða, að
stjórnin ákvað að hafa um það sérstaka
dagskrá hér á þinginu á morgun. Nefndin var
skipuð þeim Guðbrandi Bogasyni frá
Reykjavík, Jóhanni Björnssyni frá Hafnar-
firði og Guðbjarti Greipssyni frá Keflavík-
urflugvelli.
Slökkviliðsmenn leituðu lítið sem ekkert
eftir aðstoð frá L.S.S. ef frá eru taldar óskir
um launatöflu, en þær hafa verið gerðar
tvisvar sinnum. Þó hafði L.S.S. afskipti af
málum tveggja slökkviliða, þar er að segja
húsnæðisvanda slökkviliðs Grindavíkur og
þeirri furðulegu stöðu sem kom upp í
Ólafsvík þegar stóð til að selja nýja bílinn
þeirra. Við fórum á tvo fundi til Grindavíkur,
fyrst með bæjarstjóra og varaslökkviliðs-
stjóra og Halldór Vilhjálmsson fór síðan á
fund með slökkviliðsmönnum. Var því miður
ljóst að alvarlegur trúnaðarbrestur var orðin
á milli bæjarstjórnar og slökkviliðsmanna
með þeim afleiðingum að flestir slökkviliðs-
menn hættu í slökkviliðinu. Þar er sorglegt til
þess að vita, að í svona máli stendur bruna-
málastofnun hjá og hefst ekki að. í Ólafsvík
fór betur en á horfðist og er það fyrst og
fremst Inga R. Helgasyni forstjóra Bruna-
bótafélags Islands að þakka. Er vel við hæfi
að ljúka þessari skýrslu stjórnar á að segja
frá því, að Inga R. Helgasyni veittum við
viðurkenningu L.S.S. fyrir störf hans í sjtórn
B.M.S.R. Ingi er fyrsti aðilinn utan L.S.S.
sem fær þessa viðurkenningu.
Stjórnarfundir voru 14 á þessu ári og voru
þeir yfirleitt full setnir ef frá er talinn
Kristján Finnbogason á ísafirði. Kristján
fékk fundargerðir vestur og gat þannig fylgst
með málum. Þá eignaðist skrifstofan síma
með hátalara sem auðveldaði mjög stjórnar-
fundi. Ég undirritaður hefur verið iðinn við
að fela meðstjórnendum mínum að vinna
verkin. Satt besta að segja undrast ég þolin-
mæði þeirra og umburðarlyndi í minn garð.
Þeir hafa reynst mér frábærlega vel á þessu
starfsári og er mér efst í huga þakklæti til
þeirra allra.
Guðmundur Helgason
ELDVÖRN
Við framleiðum frábærar eldvarnarhurðir sem smíðaðar eru eft-
ir sænskri fyrirmynd og eru eins vandaðar af efni og tæknilegri
gerð og þekking framast leyfir. Eldvarnarhurðir eru sjálfsagðar
fyrir miðstöðvarklefa, skjalaskápa, herbergi sem geymd eru í
verðmæti og skjöl, milli ganga í stórhýsum, sjúkrahúsum og
samkomuhúsum, þar sem björgun mannslífa getur oltið á slíkri
vörn gegn útbreiðslu elds.
Eldvarnarhurðir GLÓFAXA eru viðurkenndar af Brunamála-
stofnun ríkisins.
rLv Glófaxi hf.
Ármúla 42 Sími 34236
SLÖKKVILIÐSMAÐ URINN