Fréttablaðið - 22.05.2020, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 22.05.2020, Blaðsíða 11
Í DAG Þórlindur Kjartansson Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins verða birtar á vef sjóðsins, frjalsi.is, tveimur vikum fyrir ársfund. Á fundinum verður kosið um tvo aðalmenn og einn varamann í stjórn til þriggja ára. Framboð til stjórnar þarf að liggja fyrir eigi síðar en 14 dögum fyrir ársfund. Senda skal tilkynningu um fram- boð auk nauðsynlegra gagna á netfangið arsfundur@frjalsi.is. Nánari upplýsingar um fundinn, reglur um framkvæmd árs- fundar og þau gögn sem frambjóðendur þurfa að skila inn til að staðfesta framboð sitt má finna á frjalsi.is/arsfundur. Hægt er að skrá sig á fundinn á frjalsi.is/arsfundur. Ársfundur Frjálsa verður haldinn þriðjudaginn 23. júní nk. kl. 17.15 í Silfurbergi í Hörpu. – – – Hjá Frjálsa er sjóðfélagalýðræði. Sjóðfélagarnir kjósa í stjórn og stjórnin er alfarið skipuð sjóðfélögum. Frjálsi býður upp á hagstæð sjóðfélagalán. Á Mínum síðum á frjalsi.is er hægt að nálgast stöðu- og hreyfingaryfirlit, skipta um fjárfestingarleið, afpanta pappírsyfirlit, sækja um útgreiðslu og fleira. Frjálsi leggur áherslu á að þú hafir val og sveigjanleika í tengslum við lífeyrissparnaðinn þinn. Hjá Frjálsa býðst þér að velja á milli fjölbreyttra fjárfestingarleiða fyrir skyldu- og viðbótarsparnað sem mæta ólíkum þörfum m.t.t. aldurs og viðhorfs til áhættu. Investment & Pensions Europe (IPE) er evrópskt fagtímarit um lífeyrismál. Nánar má kynna sér árlega samkeppni IPE á IPE.com/awards. 5.546 7,1% 2.951 1,6% Eignir umfram áfallnar skuldbindingar Í hlutfalli af áföllnum skuldbindingum Eignir umfram heildarskuldbindingar Í hlutfalli af heildarskuldbindingum Lífeyrisskuldbindingar skv. niðurstöðu tryggingafræðings 31.12.2019 Iðgjöld Lífeyrir Hreinar fjárfestingartekjur Rekstrarkostnaður Hækkun á hreinni eign á árinu Hrein eign frá fyrra ári Hrein eign til greiðslu lífeyris Yfirlit um breytingar á hreinni eign til greiðslu lífeyris fyrir árið 2019 20.970 -4.531 31.523 -489 47.474 237.001 284.474 74,1% 25,9% 18.791 60.075 3.956 Eignir í íslenskum krónum Eignir í erlendri mynt Fjöldi virkra sjóðfélaga1 Fjöldi sjóðfélaga í árslok Fjöldi lífeyrisþega2 Kennitölur 1 Meðalfjöldi sjóðfélaga sem greiddi iðgjald á árinu. 2 Meðalfjöldi lífeyrisþega sem fékk greiddan lífeyri á árinu. Eignarhlutar í félögum og sjóðum Skuldabréf Bundnar bankainnstæður Fjárfestingar alls Kröfur Handbært fé Eignir samtals Skuldir Hrein eign til greiðslu lífeyris 114.466 160.847 1.049 276.362 1.366 7.285 285.013 -539 284.474 Meginniðurstöður ársreiknings (í milljónum króna) Efnahagsreikningur 31.12.2019 Eignir 7,6% 7,4% 6,2% 8,7% 7,8% 6,9% 15,4% 10,4% 6,2% 16,7% 11,9% 11,7% Frjálsi 1 Frjálsi 2 Frjálsi 3 Frjálsi Áhætta Tryggingadeild (markaðsvirði) Tryggingadeild (bókfært virði) Sl. 5 árNafnávöxtun 2019 Eftir þínu höfði Í kvikmyndinni Dalalíf rakst önnur söguhetjan, Þór Magnússon, á góð-glaðan athafnamann inni á skemmtistað. Athafnamað-urinn Jónas Reynir—kall- aður JR—sat við snæðing og drakk kampavín. Hann drakk aldrei annað en kampavín, af því hann var nefnilega bindindismaður. Eins og algengt er með mislukk- aða athafnamenn sem eru á mörk- um þess að vera svikahrappar þá uppveðraðist Þór mjög yfir því að sitja í návígi við betur heppnaðan athafnamann. Þar sem JR skóflaði í sig ríkmannlegum matnum upp- lýsti hann að hann væri í felum undan því að þurfa að sitja undir ræðuhöldum í Seðlabankanum. JR var ekki mikið gefinn fyrir ræður, en þeim mun meira fyrir aðgerðir og framkvæmdir. „I love it,“ sagði hann af innlifun þegar hann fann fjósalyktina af sessunaut sínum og sagðist mundu gefa aleiguna til þess að komast út í sveit og fá að moka skít. Mislukkaði athafnamaðurinn sá strax tækifæri og skáldaði upp á staðnum hugmyndina um „Dala- líf,“ prógramm sem átti að gefa venjulegum borgarbörnum tæki- færi til þess að hamast í gagnlegri sveitavinnu og tengjast þannig bæði náttúru og frumatvinnuveg- um þjóðarinnar. Allt gegn hóflegu gjaldi, vissulega. „Peningar eiga aldrei að skipta neinu máli,“ sagði JR með augun geislandi af áhuga. „Alveg rétt hjá þér,“ samsinnti Þór. „Peningar skipta sko ekki neinu máli.“ „Af hverju segirðu að peningar skipti ekki neinu máli? Auðvitað skipta peningar miklu máli,“ kvað JR þá beint í kross við sjálfan sig. „Það er alveg rétt hjá þér líka,“ samsinnti Þór aftur. Í kófinu Kófið er stórkostlega lýsandi heiti á því ástandi sem samfélagið þarf að koma sér úr. Við höfum verið í einhvers konar kófi – andlegu svitakófi, móki. Tíminn hefur liðið undarlega. Bæði hratt og hægt. Það sem gerðist fyrir tveimur mánuð- um virðist hafa gerst fyrir áratug í öðrum heimi. Og samt þegar litið er til baka þá er eins og þetta hafi tekið af á örskotsstund. Efnahagslífið er í einhvers konar móki og það sama gildir um sálarlíf margra. Samfélagið fór í einhvers konar biðstöðu. Efna- hagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa aðallega miðast við að hlífa fólki og fyrirtækjum undan stormi sem enginn veit hvort eða hvenær muni slota. Fólkið hefur margt horfið inn í sjálft sig, horft meira á Netflix og hangið í samfélags- miðlum þar sem bæði bölsýni og kvíði hafa fengið að grassera eins og aldrei fyrr. Hvort tveggja er óeðlilegt ástand sem verður að linna. Samfélög og manneskjur eru ekki gerðar til þess að bíða enda- laust eftir því að lausnirnar birtist, þokunni létti eða veðrinu sloti. Engum líður vel í kófi. Líklega hefur hinum sætkennda JR liðið einhvern veginn þannig á barnum; hann var í einhvers konar móki, sem hann var að reyna að losna út úr. Honum fannst eins og himinninn væri að lokast yfir honum þrátt fyrir alla velgengn- ina. Ræðurnar í Seðlabankanum sem hann var að fela sig frá hafa Loftilla, dáðlausa lognmollu hrekjum líklega lagst yfir alla hans til- veru eins og búið væri að leggja sementspoka á bringuna og hann næði varla andanum. Það sem hann þráði var að komast í ferskt loft—með fjósalykt, og fá að moka skít og reka niður staura. Og það eru heldur ekki mörg dæmi um hamingjusamari menn á hvíta tjaldinu en Sigga Sigurjóns í hlutverki JR að reka girðingar- staura með berum höndum lengst ofan í jörðina á blíðviðrisdegi í íslenskri sveit, algjörlega laus við lognmolluna. Úr kófinu Kófinu verður að linna. Þótt að sumu leyti sé alveg hárrétt hjá JR að peningar skipti engu máli í því samhengi þá verður ekki fram hjá því litið að hann hefur algjörlega rétt fyrir sér þegar hann segir að peningar skipti einmitt mjög miklu máli. Það er undir okkur sjálfum komið, hverjum og einum og í hópum, að gæta að því að kófið valdi ekki of miklum andlegum skaða. Ráðin við því kosta yfir- leitt ekki mikla peninga, þótt þau krefjist fyrirhafnar. En hagkerfið keyrir á peningum. Það er orðið tímabært að þeir peningar sem settir eru út í hag- kerfið þjóni þeim tilgangi að koma samfélaginu aftur almennilega í gang—ekki í að bíða af sér ástand- ið. Það væri til dæmis áhugavert að eyða frekar 30 milljörðum í að senda háar ferðaávísanir til einstaklinga heldur en að eyða sömu upphæð í uppsagnarfresti hjá verkefnalitlum ferðaþjónustu- fyrirtækjum. Peningar geta haft mikil áhrif— til góðs eða ills. Úr því ríkið ætlar að taka að sér að eyða ævintýraleg- um fjármunum í að styðja atvinnu- lífið, þá ætti að nota þá í anda þess sem segir í ljóði Hannesar Hafstein um storminn og láta þá lífsanda starfandi hvarvetna vekja. S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11F Ö S T U D A G U R 2 2 . M A Í 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.