Fréttablaðið - 22.05.2020, Blaðsíða 28
MARKMIÐ
SWIMSLOW ER
AÐ STÆKKA
HEIMINN Í
KRINGUM
SUNDFERÐINA
SEM ATHÖFN
OG AÐ
UNDIRSTRIKA
UPPLIFUNINA
EFTIR AÐ
KOMIÐ ER UPP
ÚR VATNINU.
Efni sundbolanna og framleiðsla
þeirra fer fram í sama héraði á Ítalíu
og sérstök áhersla er lögð á að lág-
marka áhrif á umhverfið. Þráðurinn
sem er í efni sundbolanna er unninn
úr notuðum teppum og fiskinetum.
Sumarplanið hjá Swimslow er að mynda í sundlaugum víðsvegar um landið
og er Erna því mjög spennt fyrir komandi sundsumri. MYNDIR/MARSÝ HILD
Erna Bergmann hefur lengi verið viðloðandi tískubransann hérlendis en árið 2017 stofnaði hún sundfatamerkið Swimslow. Merkið hefur
vakið athygli innanlands sem utan
fyrir klassíska og fágaða hönnun og
þá áherslu sem lögð er á sjálf bæra
og umhverfisvæna framleiðslu.
Það þótti sérstaklega viðeigandi að
heyra í Ernu nú þegar sundþyrstir
Íslendingar fá loks að dýfa tánum
aftur í laugina.
„Já, ætli það sé ekki rétt að ég
hef komið víða við,“ svarar Erna
þegar hún er innt eftir yfirgripi yfir
ferilinn innan tískubransans hér-
lendis. „Ég lærði fatahönnun í LHÍ
og fór síðan í meistaranám í hönnun
við sama skóla. Ég hef verið listrænn
stjórnandi hjá fatamerkinu Eyland
og stíliserað og stjórnað mynda-
tökum fyrir önnur fatamerki, tón-
listarmyndbönd, auglýsingar og
gert búninga í bíómynd. Ég stofnaði
Tímaritið Blæti árið 2016 með vin-
konu minni Sögu Sig og höfum við
gefið út þrjú tölublöð síðan,“ segir
Erna.
Vonast eftir meiri grósku
Erna hefur verið ein af þekktustu
stílistum landsins síðasta áratug-
inn.
„Ég byrjaði að aðstoða Öldu Guð-
jóns stílista hjá Snyrtilegum klæðn-
aði þegar ég var að vinna í second
hand versluninni Spúútnik fyrir allt
of mörgum árum. Þannig byrjaði
stílistaævintýrið og þróaðist mjög
lífrænt næstu ár á eftir. Ég hef núna
unnið sem stílisti í og með síðustu
fimmtán árin. Það var aldrei eitt-
Með sjálfbærni
að leiðarljósi
Erna Bergmann hannar sundboli undir
merkinu Swimslow. Hún hefur umhverfis-
sjónarmið að leiðarljósi við framleiðsluna.
Síðar í sumar stefnir Erna á að halda sýn-
ingu í einum af sundlaugum borgarinnar.
hvað sem ég ætlaði mér að gera. Það
starf bara valdi mig ef svo má segja.“
Hún starfaði á lengi í tískuvöru-
versluninni KronKron og tók þátt í
að hanna þeirra fyrstu fatalínu eftir
útskrift úr Listaháskólanum.
„Andinn innan hönnunar- og
„tískuheimsins” á Íslandi var svo-
lítið öðruvísi en hann er í dag. Það
ríkti mikil jákvæðni og mikil upp-
sveifla var í gangi. Það var mikil
gróska í gangi fyrir tæpum áratug
síðan, en því miður eru margir af
þeim hönnuðum sem voru starf-
andi á þessum tíma hættir með
fatamerki sín. Það er mín von að
þessir fordæmalausu tímar sem
við erum að upplifa núna, geti orðið
jákvæð innspýting inn í íslenska
fatahönnunargeirann því það er
oft á svona tímum sem nýir hlutir
fara að gerjast,“ segir hún.
Sund er athöfn
Þegar Erna fór að velta fyrir sér eigin
línu segist hún hafa áttað sig á því að
hana langaði til að fókusera á einn
hlut og gera hann mjög vel.
„Þannig gæti ég svo mögulega
leyft merkinu að stækka og vaxa
náttúrulega. Sundbolir urðu fyrir
valinu því ég stunda mikið sund
og átti erfitt með að finna mér
sundföt sem mér líkaði. Markmið
Swimslow er að stækka heiminn í
kringum sundferðina sem athöfn
og að undirstrika upplifunina eftir
að komið er upp úr vatninu,“ segir
Erna.
Erna segist leggja mikla áherslu á
sjálf bærni Swimslow.
„Sundbolirnir eru hannaðir á
Íslandi og framleiddir á Ítalíu úr
endurunnum gæðaefnum. Efni
sundbolanna og framleiðsla þeirra
fer fram í sama héraði á Ítalíu með
áherslu á lágmarks áhrif á umhverf-
ið. Þráðurinn í efni sundbolanna
er unninn úr notuðum teppum
og fiskinetum sem er bjargað úr
sjónum. Hugmyndafræði Swim-
slow sprettur út frá baðmenningu
Íslendinga og trúir Swimslow ekki á
eina sundfataárstíð. Sundföt eiga að
notast allt árið um kring,“ segir hún.
Stefnir á erlendan markað
Hún segist huga vel að smáatrið-
unum við hönnunina.
„Ég vel alltaf gæði fram yfir magn.
Sundbolirnir eru saumaðir og fram-
leiddir hjá litlu frábæru fjölskyldu-
fyrirtæki sem er nokkra kílómetra
frá efnaverksmiðjunni og gæðin
ráða ríkjum. Sundbolirnir eru svo
seldir í fjölnota pokum úr endur-
unnu efni sem nýtist síðar í bað-
ferðirnar. Auk þess eru þvottaleið-
beiningar inni í bolunum þar sem
neytendur eru hvattir til þess að
hugsa vel um flíkina til þess að ná
hámarksendingartíma hennar.“
Þessa stundina er helsta markmið
Swimslow að komast á erlendan
markað að sögn Ernu.
„Fókusinn er að koma vörum
merkisins í sölu út fyrir landstein-
ana. Við tókum til að mynda þátt
í fyrstu sjálf bæru sölusýningunni
á tískuvikunni í Kaupmannahöfn
í janúar 2020. Einnig erum við að
vinna bókverk um baðmenningu
Íslendinga þar sem Swimslow er í
aðalhlutverki, þróa nýja vörulínu
í kringum baðferðir og leggja drög
að sýningu í einni af sundlaugum
borgarinnar síðar í sumar,“ segir
hún.
Erna ætlar að njóta sumarsins
með 10 mánaða stráknum sínum
og hinum börnunum þremur ásamt
því að vinna samhliða að uppbygg-
ingu Swimslow.
„Tímaritið Blæti fór í fæðingar-
orlof með mér. En það er aldrei að
vita nema við Saga Sig tökum upp
þráðinn og gefum út fjórða tölu-
blaðið vorið 2021. Sumarplanið
hjá Swimslow er að mynda í sund-
laugum víðs vegar um landið og er
ég því hrikalega spennt fyrir kom-
andi sundsumri.
Þetta verður sundsumarið mikla
og því mikilvægt að geta klæðst fal-
legum sundfatnaði í leiðinni og enn
þá mikilvægara að íslenskar konur
geti klæðst íslenskri gæðahönnun í
laugum landsins.“
Hægt er að skoða Swimslow
nánar á swimslow.com.
steingerdur@frettabladid.is
2 2 . M A Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R24 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ