Fréttablaðið - 22.05.2020, Blaðsíða 32
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Árna
Helgasonar
BAKÞANKAR
COLLAB
ÁSTARALDIN &
LÍMÓNU 330 ML
249
KR/STK
756 KR/L
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 11–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is
magnifique
york
ligne
classico magnifique
york
ligne
classico
magnifique
york
ligne
lassico magnifique
york
ligne
classi o
5 STJÖRNU HÓTELRÚMIN frá Serta eru framleidd til að fullnægja
ýtrustu kröfum. Fjaðrandi botn gefur 5 svæða heilsudýnunni óvið
jafnanlega fjöðrun og stuðning, lúxus yfirdýnan lagast að þér og
þér líður eins og þú svífir. Velkomin í þitt 5 stjörnu heilsurúm,
heima hjá þér – allar nætur – alltaf.
CLASSICO, YORK OG LIGNE eru með Serta Splendid Royal heilsu
dýnu frá Serta. Hún er fimm svæðaskipt pokagormadýna með
góðum stuðningi við bak en mýkra gormakerfi á axla- og mjaðma-
svæði. Hægt er að velja um tvo stífleika á dýnunni eftir því hvað
hentar hverjum og einum. Yfirdýnan er millistíf, úr kaldpressuðum
svampi og vinnur vel á móti fjöðruninni í botni og dýnu.
MAGNIFIQUE rúmið er með Serta Royalty Superior heilsudýnu
sem sker sig frá Splendid Royal m.a. með því að vera með tvískiptu
gorma kerfi og aukinni kantstyrkingu.
Áklæðið á rúmunum er slitsterkt bómullaráklæði, ofnæmisfrítt og
andar einstaklega vel. Það er fáanlegt í nokkrum litum sem eru
mismunandi eftir rúmgerðum. Hægt er að velja mismunandi fætur
og einnig eru fáanleg náttborð í stíl.
FIMM STJÖRNU LÚXUS HÓTELRÚM
– HEIM TIL ÞÍN –
Fimm stjörnu Hótel -rúmalínan frá Serta er kominn aftur og fæst á tilboðsverði í Betra Baki
auk þess að nótt á Reykjavik Nordica ásamt morgunverði fyrir tvo og aðgangi að
Hilton Reykjavik Spa fylgir kaupum á Serta fimm stjörnu hótelrúmi.
Tilboðsverð: 296.650 kr
Verð frá: Classico 160 x 200 cm (botn, fætur, dýna, yfirdýna og gafl)
Fullt verð: 349.000 kr. (með Hilton Reykjavik Nordica kaupauka 385.000 kr.)
Nótt fyrir tvo á Hilton Reykjavik Nordica, ásamt
morgunverði og aðgangi að Hilton Reykjavik Spa,
fylgir kaupum á Serta fimm stjörnu hótelrúmi.
Verðmæti: 36.000 kr.
SERTA ER OPINBER SAMSTARFSAÐILI
HILTON WORLDWIDE HÓTELKEÐJUNNAR
HAFÐU FJÖLPÓSTINN
ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU
Auglýsingaefnið lendir á
eldhúsborðinu þegar
blaðið er opnað!
Kannaðu dreiileiðir og verð í
síma 550 5050 eða sendu
tölvupóst orn@frettabladid.is.
*Prentmæling Gallup, 12 - 80 ára, okt. - des. 2019.
Mannnöldatölur Hagstofu Íslands 2019
Eitt af því sem mér fannst eftir-tektarvert hjá þríeykinu, sem stjórnaði landinu okkar í mars
og apríl, voru viðbrögð þeirra við
gagnrýni. Þau hvöttu til hennar og
sögðu að hún hjálpaði þeim.
Þetta er sjaldgæft viðhorf í dag. Við
höfum sífellt minni þolinmæði fyrir
gagnrýni eða öðrum skoðunum.
Útlagar umræðunnar, þetta þrjóska
fólk með eigin rannsóknir í alls
konar málum, á erfitt uppdráttar.
Sérstaklega á þetta við ef unnin
hefur verið skýrsla fræðimanna um
málið. Skýrslur eru nútímaútgáfan
af sannleikanum.
Ekki misskilja mig, ég er almennt
ekki sammála útlögum umræðunn-
ar. Þegar þríeykið varð fyrir gagn-
rýni þá fannst mér nánast eins og
það væri verið að ráðast á foreldra
mína, svo mikið var ég ósammála.
Og jafnfreistandi og það er að grípa
til aðgerða, láta opinbera aðila
berjast gegn upplýsingaóreiðu, þá
er staðreyndin sú að umræðan sjálf
leysir þetta best. Fyrir hvern Frosta
Sigurjónsson og hans snöggsoðnu
sóttvarnaþekkingu var töluvert
stærri hópur sem tók til varna, fór
ofan í hans málflutning og hrakti.
Tilburðir til að útiloka „rangar“
skoðanir bíta yfirleitt í skottið á sér
og ýta jafnvel undir skoðanirnar
sem verið að berjast gegn. Tals-
menn þeirra breytast allt í einu úr
því að vera virkir í athugasemdum
yfir í að verða virtir andófsmenn
sem ráðandi öfl reyna að þagga
niður í. Sem gerir þá aftur áhuga-
verðari.
Jafnvel besta ríkisstjórn í heimi
þarf öfluga stjórnarandstöðu sem
heldur henni við efnið. Sama á
við um skoðanir. Hinar ríkjandi
skoðanir hverju sinni þurfa sína
stjórnarandstöðu. Almenningur
hefur aldrei verið í betri stöðu til að
afla sér upplýsinga og á endanum
er það í okkar höndum að mynda
okkar skoðanir.
Útlagar
umræðunnar