Fréttablaðið - 02.06.2020, Blaðsíða 4
Samkvæmt sáttinni bar
Tryggingastofnun að
greiða tveimur öryrkjum
samtals rúma fimm og hálfa
milljón króna.
Fáðu faglega aðstoð lyafræðings
Komdu eða pantaðu tíma í síma
515 5500 eða sendu póst á
lyfsalinn@lyfsalinn.is
Þekkirðu lyn þín?
LYFSALINN GLÆSIBÆ
Álfheimum 74 104 Reykjavík
Sími 517 5500
www.lyfsalinn.is
lyfsalinn@lyfsalinn.is
OPNUNARTÍMI
Mán.- fös.
kl. 08:30-18:00
GLÆSIBÆ
DÓMSMÁL Tveir öryrkjar sem gerðu
dómsátt við Tryggingastofnun rík
isins í apríl síðastliðnum eftir ára
löng málaferli tengd búsetuskerð
inum, þurftu að krefjast fjárnáms
hjá stofnuninni til að fá greitt sam
kvæmt sáttinni.
Ág reining ur inn ör y rk janna
við Tryggingastofnun laut að því
hvaða áhrif búset u tími erlendis
ætti að hafa á rétt til örorku líf eyris
frá Trygg inga stofn un en samkvæmt
ákvæði almannatryggingalaga
ráðast bætur meðal annars af lengd
búsetu hér á landi.
Um árabil túlkaði TR ákvæðið
þannig að við útreikning búsetu
hlutfallsins skyldi reikna tímann
frá upphafi örorkumats fram að 67
ára aldri að fullu sem búsetutíma
hérlendis.TR breytti túlkun sinni
án þess að lög hafi breyst og hóf að
miða við hlutfall búsetu utanlands
áður en örorkumat var gert.
Þessi breytta túlkun var borin
undir úrskurðarnefnd um almanna
tryggingar sem taldi ómálefnalegt
að óbreyttum lögum að breyta með
svo íþyngjandi hætti framkvæmd
sem ríkt hafði um árabil.
Þrátt fyrir úrskurðinn lét TR
ekki af hinni breyttu framkvæmd.
Öryrkjabandalagið krafðist þess
formlega að stofnunin leiðrétti
greiðslur til þeirra lífeyrisþega sem
þolað hefðu umræddar skerðingar
afturvirkt. Því var hafnað og vísað
til þess að niðurstaða úrskurðar
nefndarinnar væri byggð á mis
skilningi og taldi stofnunin sig þar
af leiðandi ekki bundna af úrskurð
inum þrátt fyrir að um æðra stjórn
vald sé að ræða.
Öryrkjabandalagið kvartaði
ítrekað til ráðuneytisins vegna
málsins án árangurs og var mál
öryrkjanna tveggja höfðað með
stefnu haustið 2016. Það komst hins
vegar hreyfing á málið með niður
stöðu Umboðsmanns Alþingis í
júní 2018, sem taldi umrædda
lækkun ekki hafa verið í sam ræmi
við lög. Þó leið um það bil eitt ár
þar til ráðherra tilkynnti að Trygg
inga stofnun gæti hafið end ur
greiðslurnar.
Með vísan til þessa var gerð dóm
sátt í máli stefnenda umræddra
dómsmála þess efnis að öll ár frá
fyrsta örorkumati verði reiknuð
sem búseta hér á landi í stað hlut
fallsreiknings eins og áður. Sam
kvæmt sáttinni bar TR að greiða
öryrkjunum tveimur samtals rúma
fimm og hálfa milljón króna. Veru
legur hluti þess er lögmannskostn
aður og dráttarvextir en kröfurnar
sjálfar voru töluvert undir einni
milljón í báðum tilvikum.
Tryggingastofnun lét hins vegar
hjá líða að gera upp við öryrkjana.
Þar sem fjárkrafa á grundvelli dóm
sáttar er aðfararhæf krafa leituðu
öryrkjarnir til sýslumanns. Í kröfu
þeirra segir: „Þar sem liðnir eru 15
dagar frá gerð réttarsáttarinnar og
framangreind skuld hefur enn ekki
verið greidd af hálfu gerðarþola, er
þess krafist að gert verði fjárnám
hjá gerðarþola til tryggingar skuld
inni.“
Það var ekki fyrr en sýslumaður
boðaði forstjóra Tryggingastofn
unar til formlegrar fyrirtöku um
fjárnámið í síðustu viku að stofn
unin gerði upp skuldirnar.
Málaferlunum er þó ekki lokið að
fullu því í dómsáttinni kemur fram
að ágreiningur ríki enn um hvort
greiðslur samkvæmt lögum um
félagslega aðstoð skuli einnig vera
háðar búsetuskerðingum og eru
aðilar sáttarinnar sammála um að
málið gangi til dóms um þann hluta
ágreiningsins.
adalheidur@frettabladid.is
Tryggingastofnun forðaði sér
undan fjárnámi sýslumanns
Sýslumaður boðaði forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins á fund vegna fjárnáms sem til stóð að gera hjá
stofnuninni sem ekki hafði gert upp við tvo öryrkja sem áttu rétt á greiðslum samkvæmt dómsátt sem
gerð hafði verið. Deiluefnið var um hvaða áhrif búseta öryrkja í útlöndum eigi að hafa á útgreiðslu bóta.
Áralöng barátta tveggja öryrkja við Tryggingastofnun fór fram víða um hið opinbera kerfi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BÍLAR Mikið hefur dregið úr áhuga
fólks og vörubílaframleiðenda á að
bjóða metanbíla. Sumir hafa gengið
svo langt að hætta að þróa þá.
„Stórir framleiðendur eins og
Daimler hafa til dæmis hætt slíkri
þróun og framtíðarorkugjafar vöru
og hópferðabifreiða frá Daimler
munu byggja á rafmagns og
vetnistækni, ekki jarðgasi,“ segir
Jón Trausti Ólafsson, formaður Bíl
greinasambandsins. Framleiðendur
fólksbíla séu almennt ekki að leggja
áherslu á metanbíla fyrir Evrópu.
Áform eru um aukna sölu á met
angasi hér og Sorpa er að opna stóra
gas og jarðargerðarstöð í því skyni.
Það eru helst framleiðendur eins
og Volvo, Iveco og Scania sem hafa
verið að þróa gasdrifna vörubíla í
samstarfi við ESB. Þeir hafa fengið
skattaívilnanir og niðurfellingu á
vegatollum. Samkvæmt rannsókn
Transport & Environment geta gas
drifnir vörubílar verið verri fyrir
umhverfið er allir þættir eru lagðir
saman. Þótt metan hafi að sumu
leyti mjög góð áhrif á umhverfið
er ekki hægt að segja að hérlendis
sé allt til staðar til að metanvæða
bílaflotann. Þótt talsvert hafi verið
lagt í vinnslu á hauggasi og vinnslu
á metani úr því, eru metanstöðvar
fáar. Aðeins örfáir metanknúnir
bílar eru í boði hérlendis um þessar
mundir. – ng
Bílaframleiðendur leggja ekki áherslu á framleiðslu metanbíla
SLYS Eldri karlmaður lést við sund
iðkun í Sundhöll Selfoss skömmu
fyrir hádegi í gær. Sjúkralið og lög
regla voru kölluð til og var sund
lauginni lokað meðan tilraunir til
endurlífgunar fóru fram, en þær
báru ekki árangur, að því er fram
kemur í tilkynningu frá lögreglu.
Sundlauginni var lokað um sinn
á meðan á rannsókn á vettvangi
stóð. Tilkynnt var um andlátið um
tveimur tímum síðar. Í tilkynningu
lögreglunnar á Suðurlandi kemur
fram að ekki sé unnt að veita frekari
upplýsingar að svo stöddu. – eþá
Lést í sundi
G-Tec Skoda einir metanbíla í boði.
SLYS Þyrla Landhelgisgæslunnar var
kölluð út í fyrrinótt ásamt björgun
arsveitum á Norðurlandi vegna full
orðins karlmanns sem var saknað.
Maðurinn hafði verið við veiðar
í Laxá í Aðaldal en hafði ekki skilaði
sér til baka að veiðitíma loknum í
fyrrakvöld og hófst leit um mið
nættið. Laust eftir klukkan þrjú í
fyrrinótt fannst maðurinn látinn
í ánni skammt frá þeim stað sem
síðast var vitað um ferðir hans.
Ekki er vitað um dánarorsök að svo
stöddu, að því er fram kemur í til
kynningu frá lögreglunni á Norður
landi eystra og mun rannsókn halda
áfram í dag. – eþá
Fannst látinn í
Laxá í Aðaldal
Eldri karlmaður lést við sundiðkun.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var
kölluð til leitaraðstoðar í fyrrinótt.
2 . J Ú N Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð