Fréttablaðið - 02.06.2020, Blaðsíða 8
Að endurmeta yfir
200 þúsund fast-
eignir árlega er eitt stærsta
verkefni Þjóðskrár Íslands.
Margrét Hauksdóttir, forstjóri
Margir hafa komið
að þessum stóra
áfanga og lagt blóð, svita og
tár í það.
Margrét
Hallgrímsdóttir,
þjóðminjavörður
Því lægi efnið einfald-
lega með Krakkafréttum og
Stundinni okkar.
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 534 4433 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
VERÐ FRÁ: 11.990.000 KR.
JEEP® WRANGLER RUBICON
• BENSÍN 273 HÖ / DÍSEL 200 HÖ
• 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING
• ROCK-TRACK® FJÓRHJÓLADRIF
• SELECT-TRAC® MILLIKASSI
• TRU-LOCK® 100% DRIFLÆSINGAR AÐ FRAMAN OG AFTAN
• AFTENGJANLEG JAFNVÆGISSTÖNG AÐ FRAMAN
• HEAVY DUTY FRAM- OG AFTURHÁSING
• BAKKMYNDAVÉL MEÐ BÍLASTÆÐAAÐSTOÐ
FÁANLEGUR MEÐ 35”, 37” EÐA 40” BREYTINGU
Á ALVÖRU JEPPA MEÐ ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIFI
STAÐALBÚNAÐUR M.A.:
FERÐASTU UM ÍSLANDALLT
BÍLL Á MYND: JEEP® WRANGLER RUBICON 35” BREYTTUR
MENNING Forseti Íslands af henti
Þjóðminjasaf ni Íslands f y r ir
skemmstu hin íslensku safnaverð-
laun 2020, fyrir árangur í tengslum
við nýja Varðveislu og rannsóknar-
miðstöð Þjóðminjasafns Íslands og
handbók um varðveislu þjóðminja.
Miðstöðin var vígð á síðasta ári og
samkvæmt þjóðminjaverði eru ný
viðmið á sviði þjóðminjavörslu og
safnastarfs sett með starfseminni.
„Þetta er mikil hvatning og við
metum mikils að fá þessa viður-
kenningu frá fagaðilum á sviðinu,“
segir Margrét Hallgrímsdóttir, þjóð-
minjavörður. „Margir hafa komið að
þessum stóra áfanga og lagt blóð,
svita og tár í það.“
Í Miðstöðinni er sérútbúið hús-
næði til varðveislu og rannsókna
með varðveislurýmum, með hita
og rakastillingum, rannsóknar- og
kennsluaðstöðu og forvörsluverk-
stæðum. Þar er vel hugað að öryggi,
svo sem bruna-, jarðskjálfta- og inn-
brotsvörnum. Áður var stór hluti
safnkostsins í bráðabirgðaaðstöðu
sem ekki uppfyllti faglegar kröfur.
„Já, þrengslin voru of mikil,
varnir ekki nægar og ekki hægt að
stýra varðveisluskilyrðum eins og
nú. Nú á hver hlutur sinn stað og
við kjöraðstæður“ segir Margrét.
„Í Miðstöðinni er aðstaða til rann-
sókna og sérhæfðrar forvörslu.“
Nefnir hún sem dæmi að við-
kvæmar fornleifar sem þar geta
strax farið viðeigandi meðferð í
sérútbúinni aðstöðu með tækja-
búnaði til þess tryggja varðveisluna.
Svo sem ef víkingasverð finnst þá
geti það farið strax í þurra geymslu
til að það hrörni ekki. Einnig væri
hægt að mynda það á staðnum, en
ekki leita til annarra eins og oft
þurfti áður.
Margrét segir verkefnið eiga sér
langan aðdraganda. Árið 2013 hafi
verið mörkuð stefna um málið og
síðan var ákveðið með nýtt húsnæði
árið 2015. Þá var hafist handa við
að koma öllu rétt fyrir. Hefur flutn-
ingur, f lokkun og frágangur safn-
kostsins staðið yfir frá árinu 2016,
meðal annars jarðfundinna gripa
og hvers kyns fornmuna, mynda- og
þjóðháttasafn og muni tengda húsa-
safninu, sem er um allt land.
„Það er mikilvægt að hafa ekki
öll eggin í sömu körfunni og því
er Miðstöðin á þremur stöðum og
þar fyrir utan er mikilvægur hluti
til sýnis í Þjóðminjasafninu og
Safnahúsinu og í láni hjá öðrum
viðurkenndum söfnum um landið.“
segir Margrét. „Þjóðminjarnar eru
ómetanlegar og því fylgir mikil
ábyrgð varðveita það einstaka
frumheimildasafn um líf fólks allt
frá landnámi við réttar aðstæður
um ókomna tíð.“
kristinnhaukur@frettabladid.is
Kaflaskil hjá Þjóðminjasafni í
varðveislu fágætra fornmuna
Þjóðminjasafnið fékk safnaverðlaunin fyrir nýtt varðveislu- og rannsóknarsetur á Tjarnarvöllum. Þjóð-
minjavörður segir setrið marka kaflaskil því áður hafi gripir verið geymdir við óboðleg skilyrði. Segja
má að aðstaðan sé eins konar hátæknisjúkrahús fyrir fornminjar, þar sem hita- og rakastigi er stýrt.
Sullaveikisbandormur, sem sérfræðingurinn Joe Walser heldur á, er geymdur á Tjarnarvöllum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SAMFÉLAG Heildarverðmæti fast-
eigna verður tæplega níu þúsund
og fimm hundruð milljarðar króna
samkvæmt Þjóðskrá Íslands, sem
gefur út nýtt fasteignamat í dag
sem gildir fyrir árið 2021. Nemur
hækkunin 2,1 prósenti frá yfir-
standandi ári. Hið nýja mat hækkar
því umtalsvert minna en það gerði
milli áranna 2019 og 2020, en þá var
hækkunin 6,1 prósent.
Fram kemur í tilkynningu að
heildar fasteignamat á höfuð-
borgarsvæðinu hækkar um 2,2
prósent en um 1,9 prósent á lands-
byggðinni. Þar af er mest hækkun
á Vestfjörðum eða 8,2 prósent, um
6,5 prósent á Norðurlandi vestra,
3,5 prósent á Austurlandi og um 2,2
prósent á Suðurlandi, 1,9 prósent á
Norðurlandi eystra, um 0,4 pró-
sent á Vesturlandi. Hins vegar varð
lækkun um 0,5% á Suðurnesjum.
Af einstaka bæjarfélögum hækk-
ar heildarfasteignamat mest á Ísa-
firði eða um 11,2 prósent, um 8,8
prósent í Akrahreppi og 8,5 prósent
í Tálknafjarðarhreppi og á Blöndu-
ósi. Mest lækkun er í Skorradals-
hreppi og sveitarfélaginu Vogum
þar sem fasteignamatið lækkar um
3,6 prósent.
„Að endurmeta yfir 200 þúsund
fasteignir árlega er eitt stærsta verk-
efni Þjóðskrár Íslands. Á hverju ári
fer mikil vinna í að bæta okkar
aðferðir og nýta nýjustu tækni
til að styðja við útreikninga fast-
eignamats. Að þessu sinni hefur
meðal annars gervigreind verið
hagnýtt við matið sem styrkir
þær aðferðir sem unnið er eftir og
eykur nákvæmni í okkar vinnu,“
er haft eftir Margréti Hauksdóttur,
forstjóra Þjóðskrár í tilkynningu.
Hún segir litlar breytingar að þessu
sinni miðað við undangengin ár.
„Það ætti ekki að koma á óvart að
þegar dregur úr verðhækkunum á
fasteignamarkaði þá eru breytingar
á fasteignamati í takt við þá þróun.“
– jþ
Fasteignir á Vestfjörðum hækka mest í fasteignamati næsta árs
FJÖLMIÐLAR Fjölmiðlanefnd hefur
sektað RÚV um 1,2 milljónir króna
fyrir að gera norsku þáttaröðina
Exit, sem í sýningum stofnunar-
innar nefndist Útrás, aðgengilega
börnum án möguleika á aðgangs-
stýringu. Komst nefndin að þeirri
niðurstöðu að með þessu hafi RÚV
brotið ákvæði fjölmiðlalaga um
vernd barna gegn skaðlegu hljóð-
og myndmiðlunarefni.
Málið hófst í kjölfar kvörtunar
frá Símanum en þar sagði að um
einstaklega gróft efni væri að ræða
sem væri bannað börnum yngri
en 16 ára. Engar aðgangsstýringar
væru til staðar í spilara RÚV til
verndar börnum og ungmennum
og því lægi efnið „einfaldlega þarna
með Krakka fréttum og Stundinni
okkar“.
Fram kemur í ákvörðun Fjöl-
miðlanefndar að eftir að kvörtunin
barst hafi RÚV útfært aðvörun í
spilara sínum. Þetta teljist ekki við-
eigandi tæknileg ráðstöfun að mati
nefndarinnar en í samskiptum
hennar við RÚV kom fram að unnið
sé að útfærslu ráðstafana í samræmi
við lögin. Ítarlegri frétt má finna á
frettabladid.is. – eþá
Sektar RÚV
fyrir sýningu á
grófu myndefni
Aðvörun í spilara var ekki talin full-
nægjandi að mati fjölmiðlanefndar.
2 . J Ú N Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð