Fréttablaðið - 02.06.2020, Blaðsíða 38
Hjólið verður með
Arrow pústkerfi og
er stillt til að skila 89
hestöflum við 7.400
snúninga.
Mótorhjólasamtök í
Þýskalandi hafa
brugðist hart við og ætla
að berjast gegn tillögum
þessum heima fyrir og á
Evrópuþinginu.
Það var of gott tækifæri til að
sleppa því að bjóða uppá 007
útgáfu af Triumph 1200 Scram-
bler-hjólinu, sem Bond keyrir í
nýjustu myndinni, No Time to Die.
Hjólið verður aðeins framleitt í
250 eintökum og er safírsvart, auk
þess sem að búið er að málmhúða
marga hluti í svörtu.
Auðvitað er Bond-nafnið á
sætinu og 007-merkið á hliðum
hjólsins, auk þess sem Bond-þema
kemur upp á skjánum þegar
kveikt er á hjólinu. Hjólið verður
með Arrow pústkerfi og er stillt
til að skila 89 hestöflum við 7.400
snúninga á mínútu. Hægt verður
að velja um sex akstursstillingar
og er ein þeirra Off Road Pro. Loks
verður það búið lyklalausu
aðgengi, upphituðum handföng-
um og USB-hleðslu svo eitthvað sé
nefnt. Hvert hjól verður númerað.
Nýja Bond-hjólið
frá Triumph
Meðal þess sem nefnd á vegum
þýska þingsins vill banna er
hljóðhönnun, auk þess sem
auka á heimildir lögreglu til
skoðana af handahófi.
Vegna kvartana frá þýska hérað-
inu Nordrhein-Westfalen um
hávaða í mótorhjólum, vill nú
þýska þingið aðgerðir gegn hávaða
frá mótorhjólum. Það landssvæði
er mjög vinsælt meðal mótorhjóla-
fólks sem venur komur sínar
þangað.
Þann 15. maí síðastliðinn lagði
nefnd á vegum þýska þingsins
til að gripið yrði til aðgerða gegn
hávaða frá mótorhjólum. Hvort
það verður gert eða ekki, verður
ákveðið af þýska þinginu og þótt
engin ákvörðun hafi verið tekin
hefur þetta vakið sterk viðbrögð
meðal mótorhjólafólks í Þýska-
landi.
Harðar aðgerðir lagðar til
Meðal þess sem þingnefndin hefur
lagt til er að hávaðamörk verði
lækkuð niður í 80 dB, og þá ekki
aðeins við skoðun, heldur við allar
aðstæður, alls staðar. Nefndin vill
líka að þýska þingið verði í farar-
broddi um að koma þessum lögum
á í öllu Evrópusambandinu. Lagt er
til að þeir sem breyti mótorhjólum
sínum á einhvern hátt til að auka
hávaða geti fengið háar sektir, og
að hægt verði að taka mótorhjólið
af þeim. Banna á það sem kallað
er „hljóðhönnun“ en það er þegar
framleiðendur hanna sérstakt
hljóð í mótorhjól sín. Auka á
möguleika lögreglu til að skoða
mótorhjól af handahófi og einnig
að hægt verði að draga ökumann
hjólsins til saka, jafnvel þótt hann
eigi ekkert í mótorhjólinu sem
hann er á. Einnig er lagt til að hægt
verði að senda eiganda mótorhjóls
rukkun þótt ekki sé til andlits-
mynd af honum, en það væri brot
á þýsku stjórnarskránni. Loks er
lagt til að hægt verði að banna
mótorhjól á ákveðnum dögum,
eða vegum, og að allir sem aki
mótorhjólum beri kladda til að
skrá ferðir sínar í.
Mótorhjólasamtök mótmæla
Það sem er merkilegt við þessar
tillögur er að þær taka aðeins
eina gerð farartækja fyrir, en
bílaframleiðendur eru með heilu
deildirnar sem hanna hljóð bíla,
og þá sérstaklega sportbíla og
sportjeppa. Mótorhjólasamtök
í Þýskalandi hafa brugðist hart
við og sakað yfirvöld um að mis-
muna þjóðfélagshópi, og með
aðstoð FEMA, Evrópusamtaka
mótorhjólasamtaka, sagt að það
verði barist gegn þessu bæði
heimafyrir og í Evrópuþinginu.
Að sögn Þorgerðar Guðmunds-
dóttur, formanns Bif hjólasam-
taka Lýðveldisins, Sniglanna,
er fáránlegt að taka mótorhjól
sérstaklega fyrir út af hávaða.
„Mér finnst þetta út í hött og við
vonum að sjálfsögðu að þetta
verði ekki svona hérna,“ sagði
Þorgerður.
Þýska þingið á nornaveiðum
Italis er nýtt mótorhjólaumboð
sem var opnað í Hafnarfirði á
dögunum. Bak við það standa
mótorhjólakempurnar Björgvin
Unnar Ólafsson og Unnar Már
Magnússon. Umboðið flytur
aðallega inn Ducati-hjól en getur
einnig útvegað ítölsku hjólin
Aprilia og MV Agusta. „Við vildum
gera eitthvað með þetta húsnæði
okkar og ákváðum að breyta dóta-
kassanum í mótorhjólaumboð,“
sagði Björgvin. „Við munum einnig
geta pantað hjól frá Moto Guzzi og
Piaggio, og varahluti í öll ítölsku
hjólin. Til að byrja með verður
enginn sérstakur opnunartími,
en fólk getur haft samband og við
finnum tíma til að taka á móti
því,“ útskýrði Björgvin. Fyrstu
hjólin eru komin í Hafnarfjörðinn
og þar má sjá Ducati-hjól eins og
Multistrada, XDiavel S og Monster
821 Stealth Scrambler, auk krúnu-
djásnsins Panigale V4 S. Ducati-
hjólin verður hægt að þjónusta
sérstaklega, þar sem Ducati á Ítalíu
fór fram á að hægt væri að bjóða
upp á fulla þjónustu og því var
keypt viðhaldstölva fyrir verk-
stæðið. Verður kærkomið fyrir
margan Ducati eigandann að fá
aðgang að tölvu, því að nýtísku
hjól þurfa slíkan búnað til að hægt
sé að villulesa þau.
Italis opnar í Hafnarfirði
Pústkerfi nýrra mótorhjóla uppfylla kröfur um Euro 4 mengunarstaðla og 80 dB hávaðamörk og því er tillögunum beint gegn eldri hjólum. MYND/NJÁLL
Björgvin og Unnar við ofurhjólið Ducati Panigale V4 S.
Í forgrunni er Ducati Monster 821
Stealth Scrambler mótorhjólið.
Nýja Bond-hjólið er í grunninn
Triumph 1200 Scrambler.
Bandaríski mótorhjólaframleið-
andinn Lightning hefur hingað til
vakið athygli fyrir öflugar gerðir
rafmótorhjóla. Hann hefur nú sótt
um einkaleyfi á mótorhjóli sem
er að fullu yfirbyggt. Myndirnar
af þessu ónefnda hjóli eru frekar
einfaldar og sýna aðeins útlínur
hjólsins, sem er nokkuð langt
frá því sem Lightning hefur sent
frá sér hingað til. Flest yfirbyggð
mótorhjól hafa hingað til haft
þrjú hjól, eða eins konar hjálpar-
hjól, en hjólið frá Lightning virðist
einungis hafa tvö hjól. Færri hjól
þýða minni þyngd og viðnám,
svo að hjólið verður betra í akstri
en þríhjól. Spurningin er hins
vegar hvað gerist þegar hjólið
stoppar á umferðarljósum því
ekki rekur ökumaðurinn fótinn
út um hurðina. Ekki kemur fram
í einkaleyfisumsókninni hvernig
hjólið verður útbúið að þessu leyti,
en lengd hjólsins bendir til þess
að ökumaður sé með fætur fram
frekar en niður á við. Sótt var um
einkaleyfið í Kína en óvíst hvort
það verði bara fyrir markaði þar
eða víðar.
Lightning þróar
yfirbyggt mótorhjól
Flest yfirbyggð mótorhjól hafa þrjú
hjól en Lightning hjólið hefur tvö.
10 BÍLAR 2 . J Ú N Í 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R