Fréttablaðið - 02.06.2020, Blaðsíða 36
Raf bíllinn er miklu
frískari að keyra
þrátt fyrir aukna þyngd.
Volkswagen
e-Up er ein-
faldur bíll á að
líta og nánast
eins og bensín-
bíllinn í útliti.
MYNDIR/TRYGGVI
ÞORMÓÐSSON
Farangursrými er 251 lítri sem er ágætt í samanburði við keppinautana.
Rafmótorinn er 81 hestafl sem er
ekki mikið en þó 22 hestöflum
meira en bensínvélin.
Mælaborðið er einfalt og ofan á miðjustokki er karfa fyrir snjallsíma.
Með tilkomu VW e-Up er
kominn á markaðinn lítill raf-
bíll sem er nánast samkeppnis-
hæfur við bensínbíl í verði.
Litli raf bíllinn frá Volkswagen er
nú kominn með helmingi stærri
rafhlöðu og drægi sem bætir 100
km við. Það gerir hann næstum
samkeppnishæfan við bíla eins og
Renault Zoe, en bara næstum því,
þar sem Zoe kemst mun lengra á
hleðslunni. Það skemmtilega við
raf bíla Volkswagen hingað til er
að þeir hafa búið til rafútgáfur
af tegundum sem fólk þekkir og
treystir. Það er þó allt að fara að
breytast með algerlega nýjum raf-
bílum sem eru smíðaðir frá grunni
sem slíkir. VW e-Up er það ekki en
athyglisverður samt sem áður fyrir
margt.
Einfaldur að gerð
Þegar maður sest bak við stýrið
á e-Up raf bílnum líður manni í
smástund eins og um bensínbíl sé
að ræða. Það er hefðbundinn lykill
sem þarf að snúa til að ræsa bílinn
og handbremsan er meira að segja
af gömlu gerðinni. Satt best að
segja er búnaðurinn frekar fátæk-
legur í grunngerðinni þótt sjá megi
veglínuskynjara og upphitaða
framrúðu. Hann er búinn ein-
faldasta upplýsingakerfi sem völ er
á, en fara þarf í Style-útfærslu til að
fá vel búinn bíl. Þá bætast líka við
fjarlægðarskynjarar, bakkmynda-
vél, hraðastillir, aðgerðarstýri,
díóðu-innilýsing, betri hljómtæki
og tvílitur. Ofan á miðjustokki er
karfa fyrir snjallsíma til að hægt
sé að nota leiðsögukerfi gegnum
smáforrit. Rýmið í bílnum frammí
er nokkuð gott og sætin þægileg
miðað við bíl af þessari stærð.
Plássið minnkar eftir því sem aftar
er farið og farangursrými er aðeins
251 lítri, sem þó er það sama og í
bensínbílnum.
Raundrægi sem má treysta
Rafhlaðan í e-Up bætir næstum
300 kílóum við eigin þyngd bílsins
miðað við bensínútgáfuna, en hún
er líka bara um 60 hestöfl. Raf-
bíllinn er miklu frískari að keyra
þrátt fyrir aukna þyngd og maður
verður bara var við hana þegar
bílnum er ekið á hraðahindrun
eða of skarplega í beygju. Bíllinn
virkar nokkuð snöggur af stað en
þar sem hámarkshraðinn er aðeins
130 km er millihröðunin þann-
ig að maður hugsar sig um áður
en maður reynir framúrakstur. Á
meðan á reynsluakstrinum stóð
þurfti að skreppa til Hveragerðis
og það þótti tilvalið til að reyna
á raundrægi bílsins. Hellisheiðin
reynir á þann þátt með brekkum
og vindi þannig að flestir bílar
hafa tapað meira drægi en þeim 44
km sem leiðin er. Merkilegt nokk,
eftir aksturinn fram og til baka
var bíllinn aðeins búinn að tapa
100 km af drægi sínu sem verður
að teljast nokkuð nærri lagi, og
eitthvað sem hægt er að treysta á.
Þar að auki bætti hann 7 km við
drægi sitt eftir að bremsuhleðslan
hafði unnið fyrir sínu á leið niður
Kambana. Bíllinn var keyrður í
Eco á leiðinni sem er millistig sem
slekkur á hlutum eins og miðstöð.
Langódýrasti rafbíllinn
Það má bera VW e-Up saman við
aðra bíla á tvo vegu. Í fyrsta lagi
mætti bera kaup á honum saman
við kaup á bensíndrifnum VW
Up sem líklegast myndi kosta
eitthvað svipað hérlendis eða
tæplega það. Vandamálið er bara
að þannig útgáfa er ekki lengur í
boði á verðlista Heklu. Hins vegar
má reyna að finna aðra raf bíla af
minni gerðinni og bera saman við
hann út frá þáttum eins og verði
og drægi. Renault Zoe er það sem
manni dettur fyrst í hug en hann
kostar 4.450.000 kr. og hefur 383
km drægi. Bíll sem hefur svipað
drægi af svipaðri stærð er Mini
Cooper SE sem kemst 270 km á
hleðslunni og kostar frá 4.690.000
kr. Loks er Honda e væntanlegur
með 220 km drægi en hann kostar
frá 4.290.000 kr. Ljóst er því að
enginn raf bíll af minni gerðinni
keppir við verðið á VW e-Up sem
kostar aðeins 2.990.000 kr. og
aðeins þarf að bæta við 360.000 kr.
til að fá mjög vel búinn bíl í Style
útfærslu.
Rafbíll á svipuðu verði og bensínbíll
KOSTIR OG GALLAR
VW e-Up
Grunnverð: 2.990.000 kr.
Hestöfl: 82
Tog: 210 Newtonmetrar
Hröðun 0-100 km: 11,9 sek.
Hámarkshraði: 130 km/klst.
Rafhlaða: 36,8 kWst
Drægi: 260 km
Hraðhleðsla 80%: 1 klst.
Hleðslutími 230V: 16 klst. 15 mín.
L/B/H: 3.600/1.645/1.492 mm
Hjólhaf: 2.417 mm
Veghæð: 135 mm
n Drægi sem má treysta
n Verð
n Þungur í beygjum
n Lítill búnaður í grunngerð
KOSTIR GALLAR
Reynsluakstur
Njáll
Gunnlaugsson
njall@frettabladid.is
8 BÍLAR 2 . J Ú N Í 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R