Fréttablaðið - 02.06.2020, Síða 12
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is,
Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Sighvatur
Arnmundsson
sighvatur@frettabladid.is
Fjölgun
virðist vera í
umsóknum í
nánast öllum
deildum, sem
er jákvætt,
enda er það
hagur sam-
félagsins að
háskólarnir
útskrifi sem
fjölbreytt-
astan hóp
nemenda.
Því miður er
ekki að sjá að
borgaryfir-
völd hafi
minnsta
áhuga á
greiða götu
þessara
nemenda.匀欀漀爀爀椀 攀栀昀 ∠ 䈀氀搀猀栀昀椀 ㈀ ∠ 刀瘀欀 ∠ 㔀㜀㜀ⴀ㔀㔀 ∠ 眀眀眀⸀猀欀漀爀爀椀⸀椀猀
䜀愀猀猀欀礀渀樀愀爀椀 洀攀 爀愀昀栀氀甀 ∠ 㔀 爀愀 攀渀搀椀渀最℀
匀欀礀渀樀愀爀 漀最 最攀昀甀爀 昀爀
猀爀 瘀椀瘀爀甀渀 瘀椀㨀
∠ 倀爀瀀愀渀
∠ 䈀切琀愀渀
∠ 䌀伀㈀
∠ 刀攀礀欀
䔀渀最愀爀 猀渀切爀甀爀Ⰰ 攀欀欀攀爀琀 瘀攀猀攀渀
䠀攀渀琀愀爀 瘀攀氀 猀甀洀愀爀戀切猀琀愀椀渀渀 攀愀 栀切猀戀氀椀渀渀
䜀愀猀猀欀礀渀樀愀爀椀
Nemendur á öllum skólastigum hafa orðið fyrir skertu skólastarfi vegna kórónuveir-unnar. Sú staðreynd bitnar ekki síst á
nemendum sem eru að ljúka grunnskóla. Það er
því áhyggjuefni hvernig þeim mun reiða af þegar
þeir hefja framhaldsskólanám í haust. Því þarf að
bregðast við til að þeir verði betur í stakk búnir til
að takast á við krefjandi nám í framhaldsskólum.
Þó skert skólahald bitni á öllum nemendum hefur
það komið einna mest niður á þeim nemendum
sem stóðu höllum fæti fyrir kórónufaraldurinn.
Við því þarf að bregðast með viðeigandi aðgerð-
um.
Því miður bólar ekkert á slíkri viðleitni. Þá hefur
heldur ekkert verið hugað að því að koma til móts
við þá nemendur sem eru að ljúka grunnskóla eftir
örfáa daga. Til að styðja og efla þessa nemendur til
að takast á við krefjandi framhaldsskólanám lagði
ég fram tillögu í skóla- og frístundaráði Reykja-
víkurborgar, þann 28. apríl sl., þess efnis að 10.
bekkingum grunnskólans stæði til boða við skóla-
skilin að spreyta sig á framhaldsskólaáföngum í
fjarnámi í sumar sér að kostnaðarlausu. Reykja-
víkurborg myndi þá auk þess leita samninga við
ríkið til að greiða kostnað vegna þessara nemenda.
Hér væri þá enda um að ræða áfanga sem ríkið
þyrfti hvort eð er að greiða þegar þessir nemendur
hefja nám í framhaldsskóla. Þannig yrði þessum
tíma vel varið fyrir fjölda nemenda sem hvort eð er
fá ekki störf í sumar.
Því miður er ekki að sjá að borgaryfirvöld hafi
minnsta áhuga á greiða götu þessara nemenda.
Það eitt að tillagan hafi ekki enn verið tekin fyrir
lýsir best áhugaleysi meirihlutans í borgarstjórn
að koma til móts við nemendur í þessum efnum.
Því beini ég því til mennta- og menningarmála-
ráðherra, að taka málið í sínar hendur og finna því
farsæla lausn þar sem borgarstjórnarmeirihlutinn
hefur ekki meiri áhuga á því en raun ber vitni.
Kórónuveiran og aðstoð
við nemendur
Marta
Guðjónsdóttir
borgarfulltrúi
Sjálfstæðis-
flokksins
Það berast ánægjuleg tíðindi frá háskól-um landsins þessa dagana. Umsóknum um framhaldsnám í Háskóla Íslands fjölgaði um tæplega níu hundruð milli ára en hlutfallsleg fjölgun er um 27 prósent. Hjá Háskólanum í Reykja-
vík fjölgaði umsóknum um framhaldsnám um
þriðjung og metfjöldi sótti um hjá Háskólanum á
Bifröst, en umsóknarfrestur í Háskólanum á Akur-
eyri er ekki liðinn.
Fjölgun virðist vera í umsóknum í nánast öllum
deildum, sem er jákvætt, enda er það hagur sam-
félagsins að háskólarnir útskrifi sem fjölbreytt-
astan hóp nemenda. Sérstaka athygli vekur að
umsóknum um kennaranám á framhaldsstigi við
Háskóla Íslands fjölgar um 76 prósent. Hér virðast
sértækar aðgerðir sem ráðist var í til að fjölga
útskrifuðum kennurum vera að skila árangri. Í
frumvarpi um Menntasjóð námsmanna, sem nú
er til meðferðar á Alþingi, er að finna heimild til
að taka upp ívilnanir til að fjölga nemendum í
greinum þar sem fyrirsjáanlegur skortur er á starfs-
fólki. Með slíku úrræði fengju stjórnvöld mikilvægt
verkfæri í hendurnar til að bregðast við aðstæðum
á vinnumarkaði.
Um leið og fréttir af fjölgun umsókna í háskóla
eru ánægjulegar, koma þær ekki á óvart. Nemend-
um fjölgaði mikið eftir hrunið og ekki eru aðstæður
á vinnumarkaði betri nú. Raunar benda tölur
Hagstofunnar til þess að aprílmánuður hafi um
margt verið sögulegur á vinnumarkaði. Frá því að
stofnunin hóf gerð vinnumarkaðsrannsókna árið
2003 hefur atvinnuþátttaka aldrei mælst minni.
Hlutfall starfandi er einnig það lægsta frá upphafi
rannsóknanna og unnar vinnustundir þær fæstu.
Það er því eðlilegt að aðsókn í nám aukist við þær
aðstæður sem nú eru uppi. Enn er umsóknarfrestur
í grunnnám ekki liðinn, en búist er við að þar verði
einnig fjölgun. Við þessari fjölgun þarf að bregðast
með auknum fjárveitingum til háskólastigsins. Þá
þarf að tryggja það að lánakerfi námsmanna sé
nægilega sveigjanlegt til að mæta þörfum þeirra
ólíku hópa sem hverfa af vinnumarkaði og leita í
nám.
Við vitum auðvitað ekki hvernig staðan verður
á þeim vinnumarkaði sem tekur á móti þeim stóru
hópum sem háskólarnir munu útskrifa á næstu
árum. Það sem við vitum er að umhverfi vinnunnar
er að breytast og allar líkur á því að kórónaveiru-
faraldurinn muni hraða þeim breytingum sem
fylgja fjórðu iðnbyltingunni. Á næstu árum og
áratugum munu ýmis störf sem við þekkjum í dag
hverfa og ný bætast við. Hér þurfa háskólarnir og
raunar samfélagið allt að hugsa til framtíðar, þann-
ig að fólki verði gert kleift að nýta sér þá tækni sem
er að fara að taka yfir á vinnumarkaði.
Hugsum til
framtíðar
Óvæntur stuðningur
Það yljaði einhverjum að lesa
um nýja könnun sem greinir
frá miklu fylgi Trump meðal
kjósenda Miðf lokksins. Nærri
þriðji hver kjósandi Mið-
f lokksins sagðist myndu kjósa
forsetann bandaríska ef þeir
gætu og skera sig þannig nokkuð
úr hópi annarra svarenda í
könnuninni. Meðal svarenda
almennt reyndist fylgi Biden
umtalsvert meira en Trump. Nú
er bara að vona að Trump frétti
ekki af stuðningi þessa hóps og
beini áhuga sínum frá kaupum
á Grænlandi til Íslands, þar sem
hann gæti haldið að hér eigi
hann stuðningsmenn vísa.
Norræn samvinna
Fjölmiðlanefnd sektaði Rúv í
liðinni viku fyrir að gera efni
norsku þáttanna Exit aðgengi-
legt í spilara á vef sínum án
viðvarana, eða alla vega án
nægilega öf lugra viðvarana.
Þetta kostaði stofnunina
1,2 milljónir í formi stjórn-
valdssektar. Það hlýtur að
vera sjálfsagt að mæta þeim
kostnaðarauka stofnunarinnar
með hækkun á framlagi ríkis-
sjóðs. Sektina hefði verið hægt
að fyrirbyggja hefðu starfsmenn
Rúv haft hliðsjón af skilaboðum
á vef fjölmiðlanefndar: stoppa,
hugsa, athuga. Kannski mætti
hafa það að leiðarljósi almennt
þegar norrænt efni er keypt til
sýninga, svo þrautleiðinlegt sem
það getur verið.
2 . J Ú N Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R12 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN