Fréttablaðið - 02.06.2020, Page 16
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga
Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
óendanlega þakklát fyrir að fá að
nota þessa aðstöðu og hafa Danna
með okkur.“
Útihlaupin koma sterk inn
Hópurinn mætti á fyrstu Sinfó-
fit æfinguna á þriðjudaginn var,
en lokað hefur verið í Granda101
síðan seint í mars vegna samkomu-
banns. Í millitíðinni hafa meðlimir
reynt sitt besta til að halda sér í
formi. Margir stunda útihlaup og
Hér má sjá nokkra hljóðfæraleikara Sinfóníuhljómsveitarinnar sem mynda hópinn Sinfó-fit, sem æfir saman úti á Granda. Aftari röð, frá vinstri: Benedikte Damgaard, Guðný Jónasdóttir, Háv-
arður Tryggvason, Stefán Jón Bernharðsson, Jacek Karwan, Daníel Þórðarson. Fremri röð: Þórunn Ósk Marínósdóttir, Julia Hantschel, Asbjørn Ibsen Bruun, Frank Hammarin og David Bobroff.
Mest selda
liðbætiefni
á Íslandi
LIÐVERKIR, STIRÐLEIKI
EÐA BRAK Í LIÐUM?
2-3ja
mánaða skammtur í hverju glasi
heimaæfingar með æfingamynd-
böndum á YouTube. Hornleikar-
arnir Frank Hammarin og Asbjørn
Ibsen Bruun voru líka báðir dug-
legir að nýta sér internetið þegar
kom að heimaæfingum og æfðu
meðal annars með Granda101 á
Instagram. „Áður en ég byrjaði í
Sinfó-fit synti ég til þess að halda
mér í formi. Eftir að Grandi101 og
laugarnar lokuðu jók ég útihlaup,
sem var skemmtileg tilbreyting.
Einnig tel ég að sú staðreynd að
skemmtistaðir voru lokaðir og að
veitingastaðir lokuðu snemma
í samkomubanninu, hafi haft
jákvæð heilsufarsleg áhrif á mig,“
segir Frank.
Asbjørn hafði það fyrir reglu að
ganga minnst 10.000 skref á dag
í samkomubanninu. „En sann-
leikurinn er sá að ég er í verra
formi núna heldur en fyrir samko-
mubann. Ég finn sérstaklega fyrir
því í þverrandi styrk í efri hlut-
anum, sem hefur neikvæð áhrif á
það hvernig ég spila á hornið. Ég
get ekki beðið eftir því að komast
í góða rútínu aftur.“ Fleiri taka
undir þetta og nefnir Benedikte
Damgaard, fiðluleikari, að hún hafi
átt erfitt með að halda sér í formi,
þar sem hún hafi ekki átt búnað
fyrir styrktaræfingar. „Ég hljóp
fyrst mikið og gerði plankaæfingar,
en á sama tíma þurfti ég að minnka
kröfurnar til sjálfrar mín. Það var
auðveldara að fara út að hlaupa
þegar ég hafði hvatninguna frá
Sinfó-fit, en í samkomubanninu
hef ég frekar stundað göngur og
fjallgöngur.“
Kaloríur og sjálfsvorkunn
Það náðu ekki allir að halda sér á
beinu brautinni í heimaæfingum
og útihlaupum, og grínast selló-
leikarinn Guðný Jónasdóttir með
að í samkomubanninu hafi hún
komið sterk inn í vín-, osta- og
sjálfsvorkunnarmataræði, sem
hafi orsakað töluverða þyngdar-
aukningu fyrst um sinn. „En svo
uppfylltum við maðurinn minn
úthverfaklisjuna með því að kaupa
okkur þrekhjól. Þegar leikskól-
arnir opnuðu aftur komumst við
svo meira út í hjóla- og hlaupatúra
og aukaosturinn bráðnaði burt á
örskotsstundu.“ Stefán Jón Bern-
harðsson, hornleikari, segist að
sama skapi hafa brennt slatta af
kaloríum í sjálfsvorkunn sem og í
Bjóraþoninu mikla, en fyrir stuttu
skipulagði hann stórskemmti-
legt níu kílómetra bjórhlaup
með nokkrum meðlimum Sin-
fóníuhljómsveitarinnar sem tókst
þrælvel.
Var hætt að fá í bakið
Flestir eru sammála um að þeir
hafi saknað Sinfó-fit í samkomu-
banninu enda gerði líkamsræktin
þeim mjög gott. „Ég er miklu
sterkari með Sinfó-fit. Aukinn
styrkur í efri hluta líkamans
hefur minnkað liðverki og önnur
vandamál sem ég hef glímt við,“
segir Guðný. Benedikte segist ekki
hafa stundað styrktaræfingar
áður en hún byrjaði í Sinfó-fit. „Ég
var haldin fordómum gagnvart
CrossFit og skráði mig í byrjun
til þess að kynnast samstarfs-
félögum mínum. Það kom mér á
óvart hvað þetta var skemmtilegt
og á fyrstu æfingunni uppgötvaði
ég fjölda vöðvahópa sem ég vissi
ekki að kroppurinn byggi yfir.
Manni finnst maður mun léttari
eftir nokkurra mánaða æfinga-
prógramm og beitir sér mun betur
við að ganga og lyfta hlutum. Ég
var líka alveg hætt að fá í bakið við
langar setur í vinnunni.“
Julia Hantschel, klarinettu-
leikari, segist hafa hreyft sig mikið
áður en hún byrjaði í Sinfó-fit. „Ég
hljóp reglulega, synti, fór í ræktina
en var hætt að bæta mig. Eftir að
ég byrjaði í Sinfó-fit fannst mér
eins og ég hefði opnað fyrir nýjar
víddir í hlaupaþjálfuninni. Þol
og hraði jukust eftir fáeina tíma,
þrátt fyrir endalausar harðsperrur.
Með því að nota nýja vöðvahópa
gat ég gert f leiri æfingar. Auk þess
hefur aukinn styrkur í efri hluta
líkamans bætt líkamsstöðuna og
komið í veg fyrir höfuðverki, sem
ég var vön að finna fyrir á hljóm-
sveitaræfingum.
Í samkomubanninu hef ég nýtt
aukatíma í útihlaup og nú er ég
að æfa mig fyrir Reykjavíkur-
maraþonið í ágúst. En hlaupið er
einmanalegt og ég var virkilega
farin að hlakka til þess að æfa með
hópnum aftur.“
Asbjørn bætir við að samstarfið
í hljómsveitinni sé almennt nánara
en á f lestum vinnustöðum. „Sinfó-
fit stuðlar að enn betri liðsheild,
sem hvetur okkur til þess að gera
meiri kröfur til okkar sjálfra og
stíga út fyrir þægindarammann.
Þetta gerir okkur fær um að standa
okkur enn betur á tónleikum.“
Hávarður Tryggvason, bassa-
leikari, tekur undir þetta og bætir
við að æfingarnar hafi gert sér
gott. „Það er mikilvægt að styrkja
efri líkamann en félagslegi þáttur-
inn er ekki síður mikilvægur og
hópeflið dregur mann áfram þegar
letin ætlar að hafa mann undir.“
Hlakkar minna til
harðsperranna á morgun
Eftir fyrstu æfinguna síðasta
þriðjudag voru hljóðfæraleikar-
arnir eðlilega þreyttir, en glaðir að
vera byrjaðir aftur í reglubundinni
hreyfingu. Stemninguna í salnum
segja þau hafa verið frábæra.
„Við vorum eins og kálfar að
vori,“ segir Hávarður og Frank
bætir við: „Við finnum fyrir hverri
einustu pítsusneið og bjórglasi
sem við höfum innbyrgt síðustu
sjö vikurnar. En svona í alvöru
talað þá líður mér furðulega vel.
Fyrsta æfingin var ekki jafnerfið
og þær sem voru fyrir lokanirnar,
en það er frábær tilfinning að vera
byrjaður aftur. Maður gleymir því
f ljótt hvað félagslegi þátturinn er
mikilvægur. Hann hjálpar manni
að reyna meira á sig og gerir æfing-
una einfaldlega skemmtilegri.“
Guðný tekur undir: „Þetta var
æði. Ég er dauðuppgefin, þó svo
tíminn hafi kannski ekki verið
jafn erfiður og vanalega. Þetta
tók fljótt af og allir voru í geggj-
uðum diskófíling. En ég hlakka
aðeins minna til harðsperranna
á morgun.“ Hávarður játar þó að
honum hafi þótt tíminn frekar
erfiður: „Ég hélt ég væri í betra
formi eftir hjólaferðir, skokk og
fjallgöngur. CrossFit reynir allt
öðruvísi á mann og það var löngu
tímabært að taka upp þráðinn. Til-
finningin eftir tímann er frábær.“
Þórunn tekur undir orð Hávarðar
og bætir við: „Maður finnur það
sérstaklega vel núna hvað það er
hvetjandi að hafa félagsskapinn.“
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 . J Ú N Í 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R