Fréttablaðið - 02.06.2020, Blaðsíða 21
Við erum að vinna
í að flytja hluta af
starfseminni yfir á
Selfoss, þar sem við
vorum að bæta við
landbúnaðardeild. Þessi
deild er hrein viðbót hjá
okkur og þar seljum við
dráttarvélar, heyvinnu-
vélar og aðrar vélar til
landbúnaðar.
Aflvélar hafa selt vinnuvélar
og tæki áratugum saman, en
nýlega tók fyrirtækið stórt
skref og hóf að sinna bændum
og sjá þeim fyrir vélum, tækjum
og búnaði. Aflvélar bjóða líka
upp á vandaða íhluti.
Aflvélar selja og þjónusta vinnu-
vélar frá vönduðustu og þekktustu
merkjum heims. Þar eru seldar
vörur sem henta ýmsum ólíkum
fyrirtækjum og þar fást bæði
ódýrari græjur sem og þær allra
dýrustu og flottustu. Hingað til
hefur fyrirtækið sérhæft sig í að
sjá sveitarfélögum, verktökum,
flugvöllum og vegagerðum fyrir
tækjum, en nýlega tók það stórt
skref og hóf að selja og þjónusta
vélar fyrir landbúnað.
„Aflvélar varð til út frá Bursta-
gerðinni, sem afi minn stofnaði 1.
maí árið 1930. Burstagerðin seldi
bursta fyrir f lugvallarsópa og í
framhaldi af því fór hún að selja
vélar fyrir f lugvellina árið 1984.
Þannig að við erum komin með
smáreynslu í þessum bransa,“ segir
Friðrik Ingi Friðriksson, forstjóri
og eigandi. „Við höfum lagt mikla
áherslu á snjóruðning og götu-
sópun og allt sem þarf til þess, á
síðustu árum og haft gríðarlega
sérstöðu á því sviði, bæði hvað
varðar tækjaval og úrval. Við erum
umboðsaðili fyrir aebi-schmidt,
stærsta framleiðanda snjóruðn-
ingsvéla í heimi, og erum líka með
eigið verkstæði þar sem við getum
breytt vélum fyrir snjóruðning.
Við erum lítið í því að sinna
einstaklingum vegna þessarar sér-
hæfingar, en núna nýlega tókum
við stórt skref yfir í landbúnað
og ætlum að byrja að þjónusta
bændur,“ segir Friðrik.
Bæta við landbúnaðardeild
„Við erum að vinna í að flytja hluta
af starfseminni yfir á Selfoss, þar
sem við vorum að bæta við land-
búnaðardeild. Þessi deild er hrein
viðbót hjá okkur og þar seljum við
dráttarvélar, heyvinnuvélar og
aðrar vélar til landbúnaðar,“ segir
Friðrik. „Við keyptum nýlega lager
þrotabús á Selfossi og grisjuðum
verulega vöruúrval þar, til að vera
með skýran fókus og setja fullan
kraft í landbúnaðarhlutann. Við
verðum nú með tvö nöfn á Sel-
fossi, Jötunn og Aflvélar, en gamli
Jötunn var stærsta dráttarvélaum-
boðið á landinu.
Við erum að passa okkur á því
að byggja fyrirtækið upp þannig
að við séum með skýran fókus og
sinnum vel því sem við erum að
gera,“ segir Friðrik. „Við ætlum
að þjónusta bændur mjög vel, sjá
hvaða vélar, tæki og búnað þá
vantar og sinna þeirri þörf. Við
erum líka að þjónusta mjólkur-
bændur og vélar þeirra.
Nú erum við komin með stóra
starfsstöð á Austurvegi 69 á Sel-
fossi þar sem landbúnaðarhlutinn
er að mestu leyti núna, dráttarvél-
ar ásamt heyvinnuvélum og öðru,
og við vorum líka að setja upp
verkstæði á Gagnvegi 35 í sama
bæ,“ segir Friðrik. „Við erum svo
enn með söluskrifstofu í Garðabæ
fyrir snjóruðningstækin og þann
hluta starfseminnar.“
Íhlutir fyrir vandláta
„Við seljum líka íhluti í bíla eins
og Hella ljóskastara og aðrar
rafmagnsvörur, sem og Koni
demparana frá Hollandi, sem allir í
þessum bransa þekkja,“ segir Frið-
rik. „Við bjóðum upp á vandaða
íhluti frá frábærum framleið-
endum, sem fólk sem þekkir vel til
í þessum bransa vill fá.
Við bjóðum líka upp á Schrader-
ventla í dekk, en það eru ventlar
sem eru búnir skynjurum sem
segja til um loftþrýstinginn í
hverju dekki fyrir sig,“ útskýrir
Friðrik. „Svona ventlar eru orðnir
skylda í Evrópusambandinu. Við
seljum líka þessa skynjara svo það
er hægt að setja þá í tæki sem ekki
höfðu þá fyrir. Þannig er t.d. hægt
að kaupa ventla í nánast alla bíla
hjá okkur, bæði í sumar- og vetrar-
dekkjaumganginn á felgum.
Síðan erum við líka með
kastaragrindur og plötur undir
atvinnubíla, sendibíla, trukka og
jeppa,“ segir Friðrik að lokum.
Byrja að þjónusta bændur
Aflvélar ætla
að þjónusta
bændur mjög
vel og sjá þeim
fyrir öllum
vélum, tækjum
og búnaði sem
þeir þurfa á að
halda. Þar er
meðal annars
boðið upp á
heyvinnuvélar
og fleiri tæki frá
Valtra. MYNDIR/
ANTONBRINK
Hjá Aflvélum fást meðal annars sláttuvélar frá AS-Motor, sem eru vinsælar hjá bæjarfélögum og verktökum.
Friðrik segir að Aflvélar bjóði upp á gott úrval af vönduðum íhlutum frá
frábærum framleiðendum. Þar fást til dæmis Hella ljóskastarar og aðrar
rafmagnsvörur, Koni demparar og Schrader ventlar fyrir dekk.
BÍLAR 5 2 . J Ú N Í 2 0 2 0 ÞRIÐJUDAGUR