Fréttablaðið - 02.06.2020, Síða 35

Fréttablaðið - 02.06.2020, Síða 35
Ford Ranger Raptorinn er á þrjátíu og tveggja tommu dekkjum, sem standa utar en á öðrum Ranger pallbílum. meðaleyðslan var rúmir 12 lítrar og það ekki í spar akstri. Það er kannski helst vegna breytinganna á fjöðrun að hleðslugeta er aðeins 680 kíló í stað tonns, auk þess sem dráttargeta hans lækkar um tonn, úr 3,5 tonnum í 2,5 tonn. Góð framsæti Að innan er bíllinn ekki mikið breyttur þótt sjá megi alúð við smáatriði eins og bláan útsaum á leðri, og annars konar mælaborð. Bíllinn kemur með SYNC3 upp- lýsingakerfinu með níu tommu snertiskjá sem virkar mjög vel. Mælaborðið er frekar gamaldags með hefðbundnum mælum og litlum upplýsingaskjá, en sumum þætti þetta nú bara kostur. Sætin eru að vísu mjög góð og óvenju þægileg fyrir pallbíl. Vert að minn- ast á stigbrettin sem eru verkleg og breið, þannig að maður getur í alvörunni notað þau. Spurning um verð Það sem maður ætti helst að spyrja sig, við ákvörðun á kaup- um á Ranger Raptor er hvort það sé þess virði að borga 2.900.000 kr. meira fyrir Raptor-merkið en WildTrak. Báðir koma með hinni frábæru TDCI dísilvél sem skilar 213 hestöf lum og er pöruð við tíu þrepa sjálfskiptingu. Ef munurinn væri bara útlitspakkinn væri verðmunurinn allt of mikill, en maður fær aldeilis meira en það. Fjöðrunin er það sem aðgreinir þessa bíla og rúsínan í pylsuend- anum eru þægilegustu sportsæti sem undirritaður hefur prófað lengi. Það er í raun og veru enginn pallbíll sem keppir beint við Ranger Raptor, svo sérstakur er hann. Arctic Trucks Ísland ehf Kletthálsi 3 110 Reykjavík Sími: 540 4900 Netfang: info@arctictrucks.is www.arctictrucks.is ARCTIC TRUCKS BREYTINGALAUSNIR VIÐ KOMUM ÞÉR LENGRA TOYOTA HILUX AT33 TOYOTA HILUX AT35 TOYOTA LAND CRUSIER AT33 SUZUKI JIMNI AT31 TOYOTA LAND CRUSIER AT35 FORD 150 AT44 Sérfræðingar í breytingum. Bílabreytingar frá AT31 - AT46. Hér má sjá sýnishorn af nokkrum af þeim fjölmörgu breytingum á bílum sem Arctic Trucks bíður upp á. NISSAN NAVARA AT38 NISSAN NAVARA AT35 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð BÍLAR 7 2 . J Ú N Í 2 0 2 0 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.