Fréttablaðið - 02.06.2020, Side 44
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Við munum vonandi sjá stelk,
hrossagauk og sandlóu. Svo
stundum sér maður brandönd,
sem er mjög skemmtileg.
Snorri Sigurðsson, líffræðingur
Ástkær sambýlismaður minn, faðir
okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi,
Guðni Þórðarson
byggingatæknifræðingur,
Sækambi vestri, Nesvegi 105,
lést á Landakoti mánudaginn 18. maí.
Útförin fer fram frá Neskirkju
miðvikudaginn 3. júní klukkan 13. Blóm eru vinsamlegast
afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á
Minningarsjóð Landspítalans.
Sjöfn Guðmundsdóttir
Hulda Rós Guðnadóttir Dennis Helm
Sunna Jóna Guðnadóttir
Brynja Þóra Guðnadóttir Andri Páll Pálsson
Guðrún Tómasdóttir
og barnabörn.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir
Minningarkort á hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Sigurður Bjarni Jónsson
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna Staðan á Ítalíu í lok síðari heimsstyrjaldarinnar var bagaleg. Fjölmargir
höfðu látist í stríðinu, hagkerfið var í
rúst og almenna ástandið einnig. Þegar
rykið hafði sest var kominn tími til
umbóta og var stjórnkerfi landsins efst
á dagskrá. Margir kenndu konungsfjöl
skyldunni um uppgang fasismans og
aðkomu Ítalíu að stríðinu.
Þann 2. júní 1946 fór fram þjóðar
atkvæðagreiðsla á Ítalíu. Henni var
ætlað að ákvarða hvort þjóðhöfðingi
skyldi vera konungborinn, eða kosinn
lýðræðislega. Niðurstöðurnar voru
ansi svæðaskiptar, en lýðveldissinnar
höfðu betur, með um 56 prósent
atkvæða. Flestir stuðningsmenn
konungsfjölskyldunnar voru í suður
hluta landsins og sögðu sumir þeirra
að kosningasvik hefðu átt sér stað.
Það fékkst þó aldrei sannað.
Lýðveldið var formlega stofnað fjór
um dögum síðar og í kjölfarið var
Úmbertó II., síðasti konungur Ítalíu,
sendur í útlegð. Í fyrstu hafnaði hann
niðurstöðunum sem hann kallaði „sví
virðilega ólöglegar“. Úmbertó II. bjó
það sem eftir var lífs síns á portú
gölsku rívíerunni og steig aldrei aftur
fæti á Ítalíu. Hann er gjarnan kallaður
maíkonungurinn, en hann ríkti að
eins í rúman mánuð.
Þ E T TA G E R Ð I S T 2 . J Ú N Í 19 4 6
Ítalir kjósa lýðveldi fram yfir konungsstjórn
Þetta verður einföld og róleg ganga, þar sem við skoðum nokkur búsvæði og reynum að finna fuglana þar sem þeir eru,“ segir Snorri Sig-urðsson líffræðingur sem
leiðir fuglaskoðun í Viðey í kvöld. „Það
er alltaf svolítið þannig með fuglaskoð-
un, þeir gera það sem þeir gera og maður
verður bara að fylgja þeim.“
Í Viðey er fjölskrúðugt fuglalíf en þar
verpa um þrjátíu tegundir fugla. Mest er
um æðarfugl og grágæs en líka eitthvað
af sjaldgæfari tegundum og farfuglum.
„Við munum vonandi sjá stelk,
hrossagauk og sandlóu. Svo stundum
sér maður brandönd, sem er mjög
skemmtileg,“ segir Snorri og bætir við
að ekki sé útilokað að óðinshani skjóti
upp kollinum. „Hann er farfuglinn sem
mætir seinast, og þeir eru stundum á
tjörnunum þarna.“
Snorri segir að gangan henti vel fyrir
byrjendur og áhugasama um fuglaskoð-
un, sem og lengra komna og hvetur gesti
til að mæta með kíki. Viðburðurinn er
haldinn einu sinni á ári, en Snorri hvetur
fólk til að skoða sumardagskrá Borgar-
sögusafns, til að sjá hvað fleira er á döf-
inni í sumar.
Siglt verður frá Skarfabakka kl. 19.15.
Þeir sem vilja fá sér að borða fyrir göngu
eru hvattir til að taka ferju kl. 18.15 og
setjast inn í Viðeyjarstofu og gæða sér á
mat og drykk í því sögufræga húsi. Þátt-
taka í göngunni er gestum að kostnaðar-
lausu, en greiða þarf í ferjuna. Athygli
er vakin á að fjöldatakmarkanir verða
virtar. arnartomas@frettabladid.is
Árleg fuglaskoðun í Viðey
Líffræðingurinn Snorri Sigurðsson leiðir fuglaskoðun í Viðey í kvöld. Hann býst
við fjölbreyttum hópi fiðraðra gestgjafa og hvetur gesti til að mæta með kíki.
Fjölbreytt fuglalíf er í Viðey en þar verpa um þrjátíu tegundir fugla, bæði algengar og sjaldgæfar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
2 . J Ú N Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT