Fréttablaðið - 02.06.2020, Síða 52
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
SMELLTU Á VÖRU OG
ÞÚ FERÐ BEINT INN Í
VEFVERSLUN
DORMA.IS
SUMAR
tilboðin
Sumarið er
komið í DORMA
verslaðu á dorma.is eða í
DORMA
verslun og við sendum þé
r það frítt
STYTTU ÞÉR LEIÐ GEGN
UM BÆKLINGINN OKKA
R
Zone og Affari og smávara
2-11 | RÚM 12–23 | Mjúkv
ara og dúnn 24–27 | Stólar
28–29 | Sófar 30–37 | Sve
fnsófar 38–39
Hv
er
ni
g
frí
se
nd
in
g h
já
D
OR
M
A
vi
rk
ar
www.dorma.is
V E F V E R S LU N
ALLTAF
OPIN
Þú finnur
nýjan
bækling
á dorma.is
Sumarið er komið í DORMA
Verslaðu á dorma.is
LICATA
2ja og 3ja sæta sófar
Sófarnir eru í tvennskonar litum af Kentucky áklæði. Annarsvegar
koniak og hinsvegar steingráu. Svartir nettir járnfætur. Stærð 2ja
sæta: 159 x 94 x 82 cm. Stærð 3ja sæta: 199 x 94 x 82 cm
2ja sæta Dormaverð: Aðeins 119.990 kr.
3ja sæta Dormaverð: Aðeins 149.990 kr.
VERÐ
ER GOTT
VERÐ
DORMA
DAG HVERN LESA
93.000 ÍSLENDINGAR FRÉTTABLAÐIÐ AÐ MEÐALTALI
HEIMILD: PRENTMIðLAMÆLING GALLUP OKT-DES 2019, 12-80 ÁRA,
ALLT LANDIð HAGSTOFA ÍSLANDS, MANNFJÖLDATÖLUR, 2019FRÉTTABLAÐIÐ - MEST LESNA DAGBLAÐ LANDSINS
Sá mikli faðmur sem í æsku stóð Hrafni Jökulssyni opinn á Ströndum, er nú fullur af plasti og eini leik-urinn í stöðunni er að snúa vörn í sókn. „Ævintýra-
heimur bernsku minnar á ekki að
verða ruslahaugur minna efri ára.“
„Kolgrafarvíkin er mér kær, því
þar átti ég margar sælustu stundir
bernsku minnar þegar ég var í sveit
í Stóru-Ávík,“ segir Hrafn Jökulsson
sem dvelur þessi dægrin á Strönd-
um, þar sem hann hefur ekki setið
auðum höndum andspænis plast-
flóðinu sem dynur á æskudrauma-
landi hans.
„Kolgrafarvíkin breiðir út faðm-
inn mót opnu hafi og tekur við
gjöfum sjávarins,“ heldur hann
áfram. „Áður fyrr var hvert sprek
notað og spýtur og drumbar notuð
í staura, byggingarefni eða verk-
færi. Nú safnast viðurinn upp í
hauga sem brimið hrærir í. Og alls
staðar er plastið og netadræsurnar
og ruslið. Undir hverjum steini og
hverri spýtu.“
Vörn í sókn
„Við þessu er bara eitt að gera.
Snúa vörn í sókn. Ævintýraheimur
bernsku minnar á ekki að verða
ruslahaugur minna efri ára,“ segir
Hrafn sem er þegar byrjaður, enda
ærið verk fram undan.
„Frelsun Kolgrafarvíkur útheimt-
ir nokkur þúsund vinnustundir,
svo mikið er víst. Það þarf að flokka
spýturnar, hreinsa fjöruna og fjöru-
kambinn og grundina, þar sem
plastið er hreinlega allt að kæfa.
Síðan ég kom í Trékyllisvík fyrr í maí
hef ég varið samtals um 60 klukku-
stundum í hreinsun Kolgrafar-
víkur og talsvert mörgum til við-
bótar í gagnaöflun og ráðagerðir,“
segir Hrafn sem hefur þegar fengið
liðsauka í dóttur sinni, Jóhönnu
Engilráð, og miklu fleiri vinnufúsar
hendur eru væntanlegar.
„Ég átta mig ekki alveg á því
hvort ég er búinn með eitt prósent
af þeirri vinnu sem alvöru hreinsun
Kol grafarvíkur útheimtir, en það er
bara ein leið til að komast að því.
Ég á von á góðum liðsstyrk í sumar
frá fjölskyldu og vinum mínum. Það
dregur langt. Margir bíða óþreyju-
fullir eftir að komast í Kolgrafarvík.
Þá er von á stórkostlegum liðsauka
frá Ferðafélagi Íslands, sem mun
senda sjálf boðaliða til mín,“ segir
Hrafn og bætir við að hann telji
víst að „þetta sé skemmtilegasta og
mikilvægasta verkefni sem ég hef
tekist á hendur. Og ég get hreinlega
ekki lýst því hversu hollt þetta er
fyrir líkama og sál.“
toti@frettabladid.is
Bernskuheimur undir
ruslahaug efri áranna
Sá mikli faðmur sem stóð Hrafni Jökulssyni opinn á Ströndum
er fullur af plasti og hann snýr vörn í sókn og segir ævintýra-
heim bernsku sinnar ekki mega verða ruslahaug efri áranna.
Hrafn Jökulsson hefur varið um 60 tímum í að tína upp og bera plast úr Kolgrafarvík. MYNDIR/JÓHANNA ENGILRÁÐ
Kolgrafarvík með opinn faðminn hefur tekið við plastlagi, sem Hrafn
skýtur á að nái niður á 20-30 sentimetra dýpi í fjörukambinum.
Til þess að sjá glitta í jarðveginn þarf að „tína burt sprek, rafta, kaðla, neta-
kúlur, sjampóbrúsa, haglaskot, net, fiskikassa og óteljandi plastflísar.“
2 . J Ú N Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R24 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ