Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.03.2020, Side 10

Víkurfréttir - 12.03.2020, Side 10
10 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR Starfsemi Landhelgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli fylgir mikil innspýting fyrir samfélagið á Suðurnesjum. Landhelgis- gæslan kaupir mikið af þjónustu á Suðurnesjum fyrir starfsemi sína á Keflavíkurflugvelli. Sérstaklega eru loftrýmisgæslu- verkefnin, sem eru þrisvar til fjórum sinnum á ári, drjúg fyrir heimamenn en kostnaður við hvert loftrýmisgæsluverkefni hleypur á hundruðum milljóna og er greiddur af Atlants- hafsbandalaginu. Framundan er stór æfing sem bandaríski flugherinn stendur að. Von er á um eitt þúsund þátttakendum til Reykjanesbæjar um miðjan apríl og hafa verið bókuð hátt í eitt þúsund hótelherbergi á Suðurnesjum vegna þessa, auk mikils fjölda bílaleigubíla og fleira. Víkurfréttir ræddu við Jón B. Guðna- son, framkvæmdastjóra Landhelgis- gæslunnar á Keflavíkurflugvelli, en gæslan er tengiliður Íslands við NATÓ- þjóðirnar sem hingað koma og heldur utan um þessi verkefni. Landhelgis- gæslan fer með framkvæmd varnarmála fyrir hönd utanríkisráðuneytisins og Landhelgisgæslan er í dag mjög virkur þátttakandi í framkvæmd t.a.m. loft- rýmisgæslunnar. Norðmenn gæta loftrýmis Norðmenn eru nú með eina dýrustu orrustuþotu heims á Keflavíkurflugvelli en þeir eru á landinu þessa dagana og sinna loftrýmisgæslu Atlantshafsbanda- lagsins. Fjórar vélar eru í Keflavík og kostar hver vél um tólf til fimmtán milljarða króna. Það er óhætt að segja að það sé komið líf á ný í gömlu herstöðina á Keflavíkurflugvelli en Bandaríkjaher flutti frá landinu með manni og mús árið 2006 eftir rúmlega fimmtíu ára veru. NATÓ-þjóðir skiptast á að sinna loft- rýmisgæslu reglulega með tilheyrandi umsvifum á Vellinum og Suðurnesjum en talsverður fjöldi tekur þátt í þessum æfingum. „Loftrýmisgæslan er haldin þrisvar til fjórum sinnum á ári og flugsveitirnar sem koma eru að lágmarki í fjórar vikur og sumir lengur. Á síðasta ári, 2019, og í ár er verkefnið fjórum sinnum hvort ár. Fram til þessa hafa tíu þjóðir Atlants- hafsbandalagsins tekið þátt í verkefninu en í ár bætist ellefta þjóðin við þegar Pólland tekur að sér loftrýmisgæslu. Þátttökuþjóðirnar koma með frá 100 og upp í 300 manns hverju sinni. Þessu til viðbótar er hér fjöldinn allur af öðrum verkefnum. Bandaríski sjó- herinn er hér svo til alla daga ársins og rekur hér stjórnstöð fyrir kafbátaeftir- litið. Hér eru kafbátaleitarvélar stað- settar og ýmis verkefni í gangi þannig að hér eru að jafnaði aldrei færri en 100 manns á svæðinu.“ Sýna getu Atlantshafsbandalagsins – Eru þetta sambærileg verkefni sem allar þjóðirnar sinna þegar þær koma hingað? „Allar þjóðirnar eru að sinna loftrýmis- gæslu en við sinnum loftrýmiseftirliti fyrir hönd Atlantshafsbandalagsins. Það er framkvæmt í öllum ríkjum banda- lagsins alla daga ársins, nema hér á landi þar sem það er gert tímabundið. Það er gert til að sýna getu Atlants- hafsbandalagsins. Verkefnið snýst um loftrýmisgæslu en flugsveitirnar nota tímann til æfinga því flugmennirnir þurfa að æfa á hverjum degi til að vera hæfir í verkefnið. Flest flugin sem eru farin eru æfingaflug, hins vegar er nokkrum sinnum á ári sem flogið er á móti óauðkenndum eða óþekktum flugvélum hér í loftrýminu.“ Loftrýmisgæsluverkefnið byrjaði í maí 2008 með samkomulagi milli íslenskra stjórnvalda og Atlantshafs- bandalagsins og það var franski flug- herinn kom hingað með flugsveit fyrstur þjóða. Aðstaða til að taka á móti flugsveit- unum er með ágætum. Á Keflavíkur- flugvelli eru þrettán flugskýli fyrir herþotur. Þá er stórt flugskýli, skýli 831, þar sem er aðstaða fyrir stærri vélar og er notað fyrir kafbátaeftirlitið. Einnig er gistiaðstaða innan vallar fyrir 200 manns. Að sögn Jóns B. Guðna- sonar er verið að fara í uppbyggingu á frekari gistiaðstöðu á svæði Land- helgisgæslunnar og innan fárra ára á að vera komin þar gistiaðstaða fyrir 500 manns. „Þessu til viðbótar erum við með frá örfáum hótelherbergjum og upp í nokkur hundruð herbergi á leigu á hverjum tíma. Núna í apríl næstkom- andi er búið að bóka á okkar vegum hátt í 1.000 hótelherbergi á svæðinu vegna Norðurvíkings 2020,“ segir Jón. Landhelgisgæslan með rúmlega 50 starfsmenn á Keflavíkurflugvelli Starfsmenn Landhelgisgæslunnar eru rúmlega 50 á Keflavíkurflugvelli en alls starfa rúmlega 200 manns hjá Land- helgisgæslunni. Að auki er fjöldi verk- taka sem starfa fyrir Landhelgisgæsluna á Keflavíkurflugvelli. Verktakar sjá um mötuneyti, þrif, öryggisgæslu, viðhald og ýmis önnur verkefni. „Þessir aðilar sem eru hér á svæðinu eru að kaupa ýmiss konar þjónustu, eins og bílaleigubíla, hótel, mat og afþrey- ingu. Ef þú ferð í Sporthúsið þá sérðu nær örugglega alla daga einhverja frá okkur.“ – Starfsemi ykkar hér er örugglega töluverð búbót fyrir svæðið? „Það hlýtur að vera það. Að senda flug- sveit til Íslands kostar fleiri hundruð milljónir.“ – Er að verða meiri starfsemi hér? „Loftrýmisgæslan hefur verið nokkuð stöðug, þetta þrisvar til fjórum sinnum á ári. Frá árinu 2014 hafa Bandaríkja- menn og Kanadamenn verið hérna með kafbátaeftirlitsvélar og það verk- efni hefur verið að vaxa og verður í fastari skorðum til framtíðar. Starf- semin hefur verið að aukast jafnt og þétt frá 2014 og mun gera það næstu árin líka. Bandaríska varnarmála- ráðuneytið er að fjárfesta hér nokkuð í viðhaldi á mannvirkjum, viðhaldi á flugskýli, byggingu þvottastöðvar fyrir kafbátaleitarflugvélar, þeir eru að vinna að framkvæmdum á vestursvæði Keflavíkurflugvallar, laga flugbrautir, setja upp olíugildrur á flughlöðin og ýmis verkefni sem verða til að bæta aðstöðuna hér og auka aðgengi og létta okkur lífið líka.“ MIKIL INNSPÝTING FYRIR SAMFÉLAGIÐ Á SUÐURNESJUM VIÐAMIKIL STARFSEMI LANDHELGISGÆSLUNNAR Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI Páll Ketilsson pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is Jón B. Guðnason, framkvæmdastjóri Landhelgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli. Norskir hermenn við æfingar á vestursvæði flugvallarins þar sem Atlantshafsbandalagið hefur skýli fyrir þrettán herþotur. F-35 orrustuþota norska flughersins lendir á Keflavíkurflugvelli. Poseidon P-8 kafbátaleitarflugvél á Keflavíkurflugvelli fyrr í vetur

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.