Víkurfréttir - 12.03.2020, Qupperneq 1
Átt þú rétt á
slysabótum?
Við hjálpum þér
að leita réttar þíns
TORT
INNHEIMTA SLYSABÓTA
HAFÐU SAMBAND 511 5008
UMFERÐASLYS
VINNUSLYS
FRÍTÍMASLYS
Opnunartími Hringbraut:
Allan sólarhringinn
Opnunartími Tjarnabraut:
08.00 - 23.30 Virka daga
09.00 - 23.30 Helgar
Opnum snemma
lokum seint
Combo tilboð vikunnar!
Capri Sonne
330 ml - val milli 4 tegunda & Mini innbökuð pizzaMargarita eða skinka
299kr
Starfsemi Landhelgisgæslunnar á
Keflavíkurflugvelli fylgir mikil inn-
spýting fyrir samfélagið á Suður-
nesjum. Landhelgisgæslan kaupir
mikið af þjónustu á Suðurnesjum
fyrir starfsemi sína á Keflavíkur-
flugvelli. Sérstaklega eru loftrýmis-
gæsluverkefnin, sem eru þrisvar til
fjórum sinnum á ári, drjúg fyrir
heimamenn en kostnaður við hvert
loftrýmisgæsluverkefni hleypur á
hundruðum milljóna og er greiddur
af Atlantshafsbandalaginu. Fram-
undan er stór æfing sem bandaríski
flugherinn stendur að.
„Það er reiknað með allt að 1.000
þátttakendum frá aðildarþjóðum
Atlantshafsbandalagsins en að mestu
verða þetta Bandaríkjamenn. Við
vorum með æfingu hér í febrúar til
að undirbúa æfinguna en þá voru hér
um 300 manns á svæðinu. Hér verður
í tvær vikur, strax eftir páska, margt
fólk og flest hótelin í Reykjanesbæ eru
bókuð undir þetta verkefni,“ segir Jón
B. Guðnason, framkvæmdastjóri Land-
helgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli,
í samtali við Víkurfréttir. Nánar er rætt
við Jón í blaðinu.
Mikil inn-
spýting fyrir
samfélagið á
Suðurnesjum
„Við þurfum að bregðast við eins og hægt er og
gera nokkrar ráðstafanir hjá okkur sjálfum og
eins hjá þeim aðilum sem við erum að þjónusta,“
sagði Magnús Þórisson, matreiðslumeistari og
eigandi matstofunnar Réttarins í Keflavík, en
meðal atriða er að loka salatbar á staðnum, ein-
falda alla afgreiðslu og loka fyrir sjálfsskömmtun.
„Við munum í öryggisskyni loka salatbar og
þá verðum við með einfalda afgreiðslu á öllum
mat. Okkar fólk á Réttinum mun alfarið sjá um
skömmtun á diska. Sama gerist á nokkrum stærri
vinnustöðum sem við höfum afgreitt mat til. Þar
verður sjálfsskömmtun hætt og sömuleiðis salatbar
lokað. Við þurfum að gæta eins mikils öryggis og
hægt er og þetta er einn liður í því,“ sagði Magnús.
Margir brugðist við COVID-19
Margir vinnustaðir og stofnanir hafa brugðist
við COVID-19 veirunni með ýmsum aðgerðum.
Á hjúkrunarheimili Hrafnistu og Nesvöllum hefur
breyting verið gerð varðandi framreiðslu á mat
og þá hefur hjúkrunarheimilinu verið lokað fyrir
heimsóknir. Á Nesvöllum verður lokað í matsal
og félagsstarf aldraðra fellur niður, þ.m.t. leikfimi,
listasmiðja og aðrir viðburðir á vegum Félags eldri
borgara á Suðurnesjum.
Boðið verður upp á heimsendingu matar fyrir
þá sem þess þurfa. Reykjaneshöll er lokuð fyrir
gönguhópa. Þátttakendum í Fjölþættri heilsueflingu
65+ Janusarhóparnir er bent á að fylgjast með
tölvupóstum og tilkynningum á Facebook-síðum
verkefnisins. Nánar er fjallað um takmörkun hjá
Reykjanesbæ í frétt á síðu 2.
Aðgerðir til að bregðast við veirunni
– hjá mörgum aðilum á Suðurnesjum
Tvö verkefni á Reykjanesi fengu út-
hlutað tæpum níu milljónum króna
til uppbyggingar innviða, náttúru-
verndar og annarra verkefna á ferða-
mannastöðum árið 2020 úr Fram-
kvæmdasjóði ferðamannastaða. Verk-
efnin sem um ræðir eru við Brimketil,
þar sem bæta á útsýnispall og auka ör-
yggi. Reykjanes jarðvangur hlaut þann
styrk, samtals 4,1 milljón króna. Hitt
verkefnið sem um ræðir er hönnun
aðstöðu fyrir ferðamenn til útivistar
í Sólbrekkuskógi. Styrkur veittur til
undirbúnings- og hönnunarvinnu á
eldaskála með samtengdum salernum
og útikennsluaðstöðu í Opnum skógi
í Sólbrekkuskógi. Skógræktarfélag
Íslands hlaut styrkinn að upphæð
4,7 milljón króna.
Á Nesvöllum verður lokað í matsal og félagsstarf aldraðra fellur niður, þ.m.t. leikfimi, listasmiðja og aðrir viðburðir á vegum Félags eldri borgara á Suður-
nesjum. Myndin er tekin á Nesvöllum síðasta föstudag þegar þar fór fram aðalfundur Félags eldri borgara á Suðurnesjum. Veglegar veitingar voru í boði.
Davíð Guðbrandsson fer með hlutverk Andrei Sokolov í Ísalögum
SKELLTI SÉR Í BÚNING ILLMENNIS
OG MYRTI MANN OG ANNAN MI
Ð
O
PN
A
Níu milljónum úthlutað til
uppbyggingar á Reykjanesi
FIMMTUDAG
KL. 20:30
HRINGBRAUT
OG VF.IS
fIMMTudAGuR 12. MARS 2020 // 11. TBL. // 41. áRG.
Stærsta frétta- og auglýsingablaðið á Suðurnesjum ■ aðalsímanúmer 421 0000 ■ auglýsingasíminn 421 0001 ■ fréttasíminn 898 2222