Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.03.2020, Side 5

Víkurfréttir - 12.03.2020, Side 5
5 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 12. mars 2020 // 11. tbl. // 41. árg. Brynja Lind á hótelinu sínu Hôtel du Square í Riom í Frakklandi. Nýjar og glæsilegar íbúðir við Reynidal 6 í Reykjanesbæ SÖLUSÝNING Sérlega vandaðar íbúðir í sex íbúða húsum. Íbúðirnar skilast fullbúnar að innan sem utan. Húsin eru staðsteypt og klædd að utan með 2mm lituðu áli. Áltrégluggar og hurðar eru frá Berki. Sérsmíðaðar innréttingar frá Grindinni. Á gólfum í stofum og herbergjum er 12mm vandað harðparket, en flísar á öðrum rýmum. Ísskápur og uppþvottavél frá AEG fylgja með íbúðunum. Búið er að leggja raflagnir fyrir hleðslustöðvar við hvert bílastæði. 4ra herbergja 101,1 fm2 íbúð - verð: 39,5 mkr. Nánari upplýsingar hjá söluaðilum: Stuðlaberg fasteignasala, s. 420 4000 Eignamiðlun Suðurnesja, s. 420 4050 Eignasalan, s. 420 6070 AFHENDING REYNIDALUR 6 VIÐ KAUPSAMNING Föstudaginn 13. mars kl. 17.00 –19.00 Hér eru markaðir fullir af fólki á hverjum degi – segir Keflavíkurmærin Brynja Lind Sævarsdóttir en hún rekur hótel í Alpahér- aði í Frakklandi. Nánast engar afbókanir á hótelinu vegna COVID-19 veirunnar. Þarf að skoða heimferð til Keflavíkur í apríl í ljósi nýjustu frétta en hún býr á til- greindu áhættusvæði. „Ég þarf greinilega að skoða heimferð mína til Íslands í ljósi nýjustu frétta. Miðað við þær þarf ég að fara í sóttkví verandi á svæði sem íslensk yfirvöld hafa skilgreint sem áhættusvæði. Veiran hefur ekki haft eins mikil áhrif hér. Markaðir eru fullir af fólki á hverjum morgni og lífið gengur að mestu leyti sinn vanagang,“ segir Keflavíkurmærin Brynja Lind Sævarsdóttir, hóteleigandi í franska bænum Riom sem er innan svæðis frönsku Alpanna og er um 400 km frá París. Brynja segir að umræðan um COVID-19 sé meiri í stór- borginni París og búið sé að fresta stórum sýningum, t.d. í Clermont-Ferrand sem er aðeins í um tuttugu mínútna fjarlægð frá henni. Þá sé búið að loka skólum og fleiri stofn- unum í L’oise héraðinu nærri París en ekki á hennar svæði. „Ég hef ekki fengið nema örfáar afbókanir. Um síðustu helgi var t.d. hlaupakeppni hérna í nágrenninu og þá voru um 20% afbókanir en keppnin fór fram. Þessi vika hjá mér er fullbókuð og næsta er að fyllast sem og páskarnir. Ég á bókað heim til Íslands í heimsókn í apríl og þarf að skoða það betur ef ég þarf að fara í tveggja vikna sóttkví,“ sagði Brynja Lind.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.