Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.03.2020, Síða 1

Víkurfréttir - 12.03.2020, Síða 1
Átt þú rétt á slysabótum? Við hjálpum þér að leita réttar þíns TORT INNHEIMTA SLYSABÓTA HAFÐU SAMBAND 511 5008 UMFERÐASLYS VINNUSLYS FRÍTÍMASLYS Opnunartími Hringbraut: Allan sólarhringinn Opnunartími Tjarnabraut: 08.00 - 23.30 Virka daga 09.00 - 23.30 Helgar Opnum snemma lokum seint Combo tilboð vikunnar! Capri Sonne 330 ml - val milli 4 tegunda & Mini innbökuð pizzaMargarita eða skinka 299kr Starfsemi Landhelgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli fylgir mikil inn- spýting fyrir samfélagið á Suður- nesjum. Landhelgisgæslan kaupir mikið af þjónustu á Suðurnesjum fyrir starfsemi sína á Keflavíkur- flugvelli. Sérstaklega eru loftrýmis- gæsluverkefnin, sem eru þrisvar til fjórum sinnum á ári, drjúg fyrir heimamenn en kostnaður við hvert loftrýmisgæsluverkefni hleypur á hundruðum milljóna og er greiddur af Atlantshafsbandalaginu. Fram- undan er stór æfing sem bandaríski flugherinn stendur að. „Það er reiknað með allt að 1.000 þátttakendum frá aðildarþjóðum Atlantshafsbandalagsins en að mestu verða þetta Bandaríkjamenn. Við vorum með æfingu hér í febrúar til að undirbúa æfinguna en þá voru hér um 300 manns á svæðinu. Hér verður í tvær vikur, strax eftir páska, margt fólk og flest hótelin í Reykjanesbæ eru bókuð undir þetta verkefni,“ segir Jón B. Guðnason, framkvæmdastjóri Land- helgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli, í samtali við Víkurfréttir. Nánar er rætt við Jón í blaðinu. Mikil inn- spýting fyrir samfélagið á Suðurnesjum „Við þurfum að bregðast við eins og hægt er og gera nokkrar ráðstafanir hjá okkur sjálfum og eins hjá þeim aðilum sem við erum að þjónusta,“ sagði Magnús Þórisson, matreiðslumeistari og eigandi matstofunnar Réttarins í Keflavík, en meðal atriða er að loka salatbar á staðnum, ein- falda alla afgreiðslu og loka fyrir sjálfsskömmtun. „Við munum í öryggisskyni loka salatbar og þá verðum við með einfalda afgreiðslu á öllum mat. Okkar fólk á Réttinum mun alfarið sjá um skömmtun á diska. Sama gerist á nokkrum stærri vinnustöðum sem við höfum afgreitt mat til. Þar verður sjálfsskömmtun hætt og sömuleiðis salatbar lokað. Við þurfum að gæta eins mikils öryggis og hægt er og þetta er einn liður í því,“ sagði Magnús. Margir brugðist við COVID-19 Margir vinnustaðir og stofnanir hafa brugðist við COVID-19 veirunni með ýmsum aðgerðum. Á hjúkrunarheimili Hrafnistu og Nesvöllum hefur breyting verið gerð varðandi framreiðslu á mat og þá hefur hjúkrunarheimilinu verið lokað fyrir heimsóknir. Á Nesvöllum verður lokað í matsal og félagsstarf aldraðra fellur niður, þ.m.t. leikfimi, listasmiðja og aðrir viðburðir á vegum Félags eldri borgara á Suðurnesjum. Boðið verður upp á heimsendingu matar fyrir þá sem þess þurfa. Reykjaneshöll er lokuð fyrir gönguhópa. Þátttakendum í Fjölþættri heilsueflingu 65+ Janusarhóparnir er bent á að fylgjast með tölvupóstum og tilkynningum á Facebook-síðum verkefnisins. Nánar er fjallað um takmörkun hjá Reykjanesbæ í frétt á síðu 2. Aðgerðir til að bregðast við veirunni – hjá mörgum aðilum á Suðurnesjum Tvö verkefni á Reykjanesi fengu út- hlutað tæpum níu milljónum króna til uppbyggingar innviða, náttúru- verndar og annarra verkefna á ferða- mannastöðum árið 2020 úr Fram- kvæmdasjóði ferðamannastaða. Verk- efnin sem um ræðir eru við Brimketil, þar sem bæta á útsýnispall og auka ör- yggi. Reykjanes jarðvangur hlaut þann styrk, samtals 4,1 milljón króna. Hitt verkefnið sem um ræðir er hönnun aðstöðu fyrir ferðamenn til útivistar í Sólbrekkuskógi. Styrkur veittur til undirbúnings- og hönnunarvinnu á eldaskála með samtengdum salernum og útikennsluaðstöðu í Opnum skógi í Sólbrekkuskógi. Skógræktarfélag Íslands hlaut styrkinn að upphæð 4,7 milljón króna. Á Nesvöllum verður lokað í matsal og félagsstarf aldraðra fellur niður, þ.m.t. leikfimi, listasmiðja og aðrir viðburðir á vegum Félags eldri borgara á Suður- nesjum. Myndin er tekin á Nesvöllum síðasta föstudag þegar þar fór fram aðalfundur Félags eldri borgara á Suðurnesjum. Veglegar veitingar voru í boði. Davíð Guðbrandsson fer með hlutverk Andrei Sokolov í Ísalögum SKELLTI SÉR Í BÚNING ILLMENNIS OG MYRTI MANN OG ANNAN MI Ð O PN A Níu milljónum úthlutað til uppbyggingar á Reykjanesi FIMMTUDAG KL. 20:30 HRINGBRAUT OG VF.IS fIMMTudAGuR 12. MARS 2020 // 11. TBL. // 41. áRG. Stærsta frétta- og auglýsingablaðið á Suðurnesjum ■ aðalsímanúmer 421 0000 ■ auglýsingasíminn 421 0001 ■ fréttasíminn 898 2222

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.