Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.04.2020, Page 2

Víkurfréttir - 02.04.2020, Page 2
2 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 2. apríl 2020 // 14. tbl. // 41. árg. FINNDU OKKUR Á FACEBOOK DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K 845 0900 FERÐIR Á DAG ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM HREINSUM RIMLAGARDÍNUR OG MYRKVUNARGARDÍNUR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 898 2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, sími 421 0001, andrea@vf.is Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is RI TS TJ Ó RN A RP IS TI LL Leigubílstjórar áttu í dag símafund með Samgöngustofu og Landlækni vegna leigubílaþjónustu. Landlæknir telur að leigubílar séu mjög nauðsyn- legir í þessu fordæmalausa ástandi sem nú er. A-Stöðin í Reykjanesbæ mun taka þátt í því að veita þessa leigubílaþjónustu. Allir bílstjórar stöðvarinnar eru meðvitaðir um hættuna af COVID-19 og þess vegna munu þeir fara að öllu eftir tilmælum Landlæknis, segir í tilkynningu frá A-stöðinni. Til þess að vernda bæði bílstjóra og farþega er ætlast til þess að eftirfarandi reglum sé fylgt: Varðandi fjölda farþega í hverjum bíl Í litlum bílum mega ekki vera fleiri en 2 farþegar og í stórum bíl ekki fleiri en 4 farþegar. Þessi regla gildir ekki t.d. um fjölskyldur og hópa sem hafa eitt saman tíma fyrir ferð. Hvar má sitja í bílnum? Gert er ráð fyrir að farþegar sitji aldrei frammí hjá bílstjóra. Í stórum bílum er gert ráð fyrir því að farþegar sitji á aftasta bekk ef því er komið við. Hvernig er greiðslu háttað? Ætlast er til þess að allar greiðslur fari fram snertilaust. Þurfi að slá inn pin númer mun bílstjóri sótthreinsa posa að því loknu. „Bílstjórar A-Stöðvarinnar eru einnig tilbúnir að sendast fyrir þá, sem ekki treysta sér til þess að ferðast með okkur eða á annan hátt, gegn vægu gjaldi. Má þar nefna ferðir í apótek, matvöruversl- anir og fleira,“ segir í tilkynningunni. Gunnar Víðir Þrastarson hefur verið ráðinn verkefnastjóri markaðsmála hjá Reykjanesbæ. Hann er menntaður grafískur hönnuður frá Arizona State University og hefur lokið MBA gráðu frá Western International University ásamt því að stunda nám í markaðs- fræðum og alþjóðaviðskiptum í Há- skóla Íslands. Gunnar hefur margra ára reynslu af störfum sem markaðsstjóri og -ráðgjafi ásamt störfum sem grafískur hönnuður. Undanfarin ár hefur hann meðal annars starfað sem markaðsstjóri hjá Bílabúð Benna og sem hönnunarstjóri og ráð- gjafi hjá LarsEn Energy Branding sem sinnir vörumerkjastjórnun og stefnu- mótun á sviði orkumála. Blaut- og sótt- hreinsiklútar stífla lagnir „Það er mjög mikilvægt að íbúa hendi ekki sprittklútum og eld- húsrúllum í salernin því þetta eyðist ekki í kerfinu heldur festist í dælum og öðrum búnaði,“ segir Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri Umhverfissviðs Reykja- nesbæjar, í færslu á fésbókinni. Þar segir hann að Reykjanesbær sé töluvert að lenda í þessu í hreinsi- stöðinni í Njarðvík en hún tekur við allri fráveitu frá Njarðvík og Ásbrú. „Bið ykkur því vinsamlegast að setja allt slíkt í ruslið,“ segir Guðlaugur. Gunnar Víðir Þrastarson ráðinn verkefnastjóri markaðsmála Leigubílar mjög nauð- synlegir í þessu for- dæmalausa ástandi vf isÞú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á H vern gat órað fyrir því að við ættum eftir að upplifa COVID-19 með öllum þeim afleiðingum sem eru að koma í ljós þessa dagana? Við þekkjum afleiðingar falls WOW, bankahruns, brottfarar Varnarliðsins, kvóta- missis og fleira. Afleiðingar sem komu verst við okkur Suðurnesjamenn. O g hvað gerum við nú þegar atvinnuleysi er orðið meira en nokkru sinni fyrr í sögunni? Vonandi ekki jafn langvinnt og það var eftir bankarhrunið 2008. Það er sérstakt að eitt landssvæði, í þessu tilviki Suðurnesin, skuli alltaf fara verst út úr þessum áföllum. Ekki einu sinni heldur aftur og aftur. Atvinnuleysi er orðið meira en nokkru sinni fyrr og mun líklega á næstu dögum fara í hæstu tölu sem við höfum upplifað. Við erum að tala um mikinn fjölda fólks sem eru án atvinnu og með skert starfshlutfall. Já, hvað gerum við nú? Eitt af fram- tíðarverkefnum svæðisins hlýtur að vera að búa til meiri fjölbreytni í atvinnulífinu. Það er greinilega of einsleitt. Það er að segja ef ferðaþjónusta fellur undir þann hatt. Í undanförnum áföllum sem hafa áföll dunið yfir okkur á um það bil 10 til 15 ára fresti, reyndar liðu ekki nema tvö ár frá brottför Varnarliðsins í bankahrun, og alltaf hafa Suðurnesin farið verst út allra landshluta. Á annað þúsund manns störfuðu hjá Varnarliðinu, flestir Suður- nesjamenn. Þeir fengu margir vinnu þegar staðan var góð í svokölluðu góðæri en voru fyrstir til að fá uppsögn í bankahruni. Í bankahruni er ekki hægt að þakka ríkis- valdinu fyrir mikla hjálp til handa Suðurnesjum. Erlendi ferðamaðurinn hjálpaði Suðurnesjamönnum á fætur og landinu öllu. A ðgerðir ríkisins á tímum COVID-19 eru enn nær allar almenns eðlis. Engar sértækar aðgerðir eru komnar vegna ástandsins á Suðurnesjum sem fær enn einu sinni stærsta skellinn. Í blaði vikunnnar má sjá greinar frá þingmönnunun Birgi Þórarinssyni og Oddnýju Harðar- dóttur þar sem þau fara yfir þessa stöðu og hvað þurfi að gera. Þau eru bæði í minnihluta í ríkisstjórn en eru þó að reyna. Vonandi verður eitthvað gert. S veitarfélögin á Suðurnesjum hafa tekið saman aðgerða-pakka sem hægt væri að ráðast í, framkvæmdir sem myndu skapa fjölda starfa nú þegar fleiri eru atvinnulausir en nokkru sinni fyrr. Ekki hafa komið viðbrögð ríkisvalds við þeim nema að mjög litlu leyti. En við megum víst ekki vera ósanngjörn og óþolinmóð. Við erum vön að vera þolinmóð. Við erum vön að þurfa að vera þakklát fyrir að hafa haft Varnarliðið og nú flugstöðina. Við höfum sinnt þessum stóru vinnustöðum vel. Við höfum gengið að fjölda starfa en beinn hagnaður hefur ekki runnið til Suðurnesja nema í störfunum. Suðurnesjamenn eiga bara að vera sáttir. Í gamla daga var sagt: Þið hafið herinn og nú hafið þið flugstöðina. Nú þegar allt fer í kalda kol þurfa Suðurnesjamenn að venju að taka stærsta skellinn. Eru vanir því. En er það sanngjarnt? Á svona skrýtnum tímum gerast samt oft góðir hlutir. Við hjá Víkurfréttum stóðum frammi fyrir þeirri staðreynd að fyrirtæki í eigu íslenska ríksins, Pósturinn, tók þá einhliða ákvörðun að hætta að þjónusta blaðaútgáfu okkar með því að hætta að dreifa blaðinu. Það var ekki einu sinni í boði að borga hærra gjald sem flestir útgefendur hefðu tekið þegjandi. Fleiri landsbyggðarfjölmiðlar fengu sömu fréttir. Ríkisfyrirtækið Pósturinn þurfti að lækka kostnað í rekstrinum og eitt af því var að hætta að bjóða blaðaútgefendum blaðadreifingu. Við getum ekki talað um samfélagslega ábyrgð. Ríkisfyrirtækið var ekki að hugsa um það. Vilja helst ekki heldur koma bréfum til landsmanna. Nú skiptir mestu fyrir Póstinn að afgreiða pakka frá Aliexpress. E n góðir hlutir gerast á skrýtnu tímum. Við þurftum í ljósi ástandsins, m.a. vegna minnkandi tekna á tímum COVID-19, að taka þá ákvörðun að hætta að prenta blaðið, alla vega á meðan það ástand varir. Þetta tæki- færi höfum við notað til að þróa mun stærra og veglegra blað og viðtökurnar hafa verið frábærar. Lestur á rafrænu blaði er miklu meiri en við gerðum okkur vonir um og var í fyrsta rafræna blaðinu meiri en nokkru sinni fyrr. Við vonumst til að geta þróað það enn meira í stafrænu umhverfi. Möguleikarnir eru mjög miklir. Það er nóg pláss og við getum gefið okkar efni allt það pláss sem við viljum. Lesendur hafa tekið þessu vel og lesa núna blaðið rafrænt. Yfir 15 þúsund manns opnuðu rafræna útgáfu VF í síðustu viku. Ekki má gleyma því að margir vilja ekki blað inn um lúguna á veiru tímum. Nýtt rafrænt blað er snertilaust. A ð lokum vil ég hvetja yngra fólk að hjálpa þeim eldri við að taka á móti þessum stafrænu breytingum. Hjálpið ömmu og afa, mömmu og pabba að lesa blaðið í spjaldtölvunni eða tölvunni. Sum þeirra þurfa kannski smá hvatningu og hjálp til þess. Höldum áfram að berjast. Góðar stundir! Páll Ketilsson ÞIÐ HAFIÐ HERINN!

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.