Víkurfréttir - 02.04.2020, Qupperneq 2
2 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 2. apríl 2020 // 14. tbl. // 41. árg.
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf.,
kt. 710183-0319
Afgreiðsla og ritstjórn:
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbæ,
sími 421 0000
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0004,
pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 898 2222,
hilmar@vf.is
Auglýsingastjóri:
Andrea Vigdís Theodórsdóttir,
sími 421 0001,
andrea@vf.is
Dagleg stafræn útgáfa:
vf.is og kylfingur.is
RI
TS
TJ
Ó
RN
A
RP
IS
TI
LL
Leigubílstjórar áttu í dag símafund
með Samgöngustofu og Landlækni
vegna leigubílaþjónustu. Landlæknir
telur að leigubílar séu mjög nauðsyn-
legir í þessu fordæmalausa ástandi
sem nú er. A-Stöðin í Reykjanesbæ
mun taka þátt í því að veita þessa
leigubílaþjónustu. Allir bílstjórar
stöðvarinnar eru meðvitaðir um
hættuna af COVID-19 og þess vegna
munu þeir fara að öllu eftir tilmælum
Landlæknis, segir í tilkynningu frá
A-stöðinni.
Til þess að vernda bæði bílstjóra og
farþega er ætlast til þess að eftirfarandi
reglum sé fylgt:
Varðandi fjölda farþega
í hverjum bíl
Í litlum bílum mega ekki vera fleiri en
2 farþegar og í stórum bíl ekki fleiri en
4 farþegar. Þessi regla gildir ekki t.d.
um fjölskyldur og hópa sem hafa eitt
saman tíma fyrir ferð.
Hvar má sitja í bílnum?
Gert er ráð fyrir að farþegar sitji aldrei
frammí hjá bílstjóra. Í stórum bílum
er gert ráð fyrir því að farþegar sitji á
aftasta bekk ef því er komið við.
Hvernig er greiðslu háttað?
Ætlast er til þess að allar greiðslur fari
fram snertilaust. Þurfi að slá inn pin
númer mun bílstjóri sótthreinsa posa
að því loknu.
„Bílstjórar A-Stöðvarinnar eru einnig
tilbúnir að sendast fyrir þá, sem ekki
treysta sér til þess að ferðast með okkur
eða á annan hátt, gegn vægu gjaldi. Má
þar nefna ferðir í apótek, matvöruversl-
anir og fleira,“ segir í tilkynningunni.
Gunnar Víðir Þrastarson hefur verið
ráðinn verkefnastjóri markaðsmála
hjá Reykjanesbæ. Hann er menntaður
grafískur hönnuður frá Arizona State
University og hefur lokið MBA gráðu
frá Western International University
ásamt því að stunda nám í markaðs-
fræðum og alþjóðaviðskiptum í Há-
skóla Íslands.
Gunnar hefur margra ára reynslu af
störfum sem markaðsstjóri og -ráðgjafi
ásamt störfum sem grafískur hönnuður.
Undanfarin ár hefur hann meðal annars
starfað sem markaðsstjóri hjá Bílabúð
Benna og sem hönnunarstjóri og ráð-
gjafi hjá LarsEn Energy Branding sem
sinnir vörumerkjastjórnun og stefnu-
mótun á sviði orkumála.
Blaut- og sótt-
hreinsiklútar
stífla lagnir
„Það er mjög mikilvægt að íbúa
hendi ekki sprittklútum og eld-
húsrúllum í salernin því þetta
eyðist ekki í kerfinu heldur festist
í dælum og öðrum búnaði,“ segir
Guðlaugur Helgi Sigurjónsson,
sviðsstjóri Umhverfissviðs Reykja-
nesbæjar, í færslu á fésbókinni.
Þar segir hann að Reykjanesbær sé
töluvert að lenda í þessu í hreinsi-
stöðinni í Njarðvík en hún tekur við
allri fráveitu frá Njarðvík og Ásbrú.
„Bið ykkur því vinsamlegast að setja
allt slíkt í ruslið,“ segir Guðlaugur.
Gunnar Víðir Þrastarson ráðinn
verkefnastjóri markaðsmála
Leigubílar mjög nauð-
synlegir í þessu for-
dæmalausa ástandi
vf isÞú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á
H vern gat órað fyrir því að við ættum eftir að upplifa COVID-19 með öllum þeim afleiðingum sem eru
að koma í ljós þessa dagana? Við þekkjum afleiðingar
falls WOW, bankahruns, brottfarar Varnarliðsins, kvóta-
missis og fleira. Afleiðingar sem komu verst við okkur
Suðurnesjamenn.
O g hvað gerum við nú þegar atvinnuleysi er orðið meira en nokkru sinni fyrr í sögunni? Vonandi ekki
jafn langvinnt og það var eftir bankarhrunið 2008. Það
er sérstakt að eitt landssvæði, í þessu tilviki Suðurnesin,
skuli alltaf fara verst út úr þessum áföllum. Ekki einu
sinni heldur aftur og aftur. Atvinnuleysi er orðið meira
en nokkru sinni fyrr og mun líklega á næstu dögum
fara í hæstu tölu sem við höfum upplifað. Við erum að
tala um mikinn fjölda fólks sem eru án atvinnu og með
skert starfshlutfall. Já, hvað gerum við nú? Eitt af fram-
tíðarverkefnum svæðisins hlýtur að vera að búa til meiri
fjölbreytni í atvinnulífinu. Það er greinilega of einsleitt.
Það er að segja ef ferðaþjónusta fellur undir þann hatt.
Í undanförnum áföllum sem hafa áföll dunið yfir okkur á um það bil 10 til 15 ára fresti, reyndar liðu ekki nema
tvö ár frá brottför Varnarliðsins í bankahrun, og alltaf
hafa Suðurnesin farið verst út allra landshluta. Á annað
þúsund manns störfuðu hjá Varnarliðinu, flestir Suður-
nesjamenn. Þeir fengu margir vinnu þegar staðan var
góð í svokölluðu góðæri en voru fyrstir til að fá uppsögn
í bankahruni. Í bankahruni er ekki hægt að þakka ríkis-
valdinu fyrir mikla hjálp til handa Suðurnesjum. Erlendi
ferðamaðurinn hjálpaði Suðurnesjamönnum á fætur og
landinu öllu.
A ðgerðir ríkisins á tímum COVID-19 eru enn nær allar almenns eðlis. Engar sértækar aðgerðir eru komnar
vegna ástandsins á Suðurnesjum sem fær enn einu sinni
stærsta skellinn. Í blaði vikunnnar má sjá greinar frá
þingmönnunun Birgi Þórarinssyni og Oddnýju Harðar-
dóttur þar sem þau fara yfir þessa stöðu og hvað þurfi að
gera. Þau eru bæði í minnihluta í ríkisstjórn en eru þó að
reyna. Vonandi verður eitthvað gert.
S veitarfélögin á Suðurnesjum hafa tekið saman aðgerða-pakka sem hægt væri að ráðast í, framkvæmdir sem
myndu skapa fjölda starfa nú þegar fleiri eru atvinnulausir
en nokkru sinni fyrr. Ekki hafa komið viðbrögð ríkisvalds
við þeim nema að mjög litlu leyti. En við megum víst ekki
vera ósanngjörn og óþolinmóð. Við erum vön að vera
þolinmóð. Við erum vön að þurfa að vera þakklát fyrir
að hafa haft Varnarliðið og nú flugstöðina. Við höfum
sinnt þessum stóru vinnustöðum vel. Við höfum gengið
að fjölda starfa en beinn hagnaður hefur ekki runnið til
Suðurnesja nema í störfunum. Suðurnesjamenn eiga bara
að vera sáttir. Í gamla daga var sagt: Þið hafið herinn og
nú hafið þið flugstöðina. Nú þegar allt fer í kalda kol þurfa
Suðurnesjamenn að venju að taka stærsta skellinn. Eru
vanir því. En er það sanngjarnt?
Á svona skrýtnum tímum gerast samt oft góðir hlutir. Við hjá Víkurfréttum stóðum frammi fyrir þeirri
staðreynd að fyrirtæki í eigu íslenska ríksins, Pósturinn,
tók þá einhliða ákvörðun að hætta að þjónusta blaðaútgáfu
okkar með því að hætta að dreifa blaðinu. Það var ekki einu
sinni í boði að borga hærra gjald sem flestir útgefendur
hefðu tekið þegjandi. Fleiri landsbyggðarfjölmiðlar fengu
sömu fréttir. Ríkisfyrirtækið Pósturinn þurfti að lækka
kostnað í rekstrinum og eitt af því var að hætta að bjóða
blaðaútgefendum blaðadreifingu. Við getum ekki talað
um samfélagslega ábyrgð. Ríkisfyrirtækið var ekki að
hugsa um það. Vilja helst ekki heldur koma bréfum til
landsmanna. Nú skiptir mestu fyrir Póstinn að afgreiða
pakka frá Aliexpress.
E n góðir hlutir gerast á skrýtnu tímum. Við þurftum í ljósi ástandsins, m.a. vegna minnkandi tekna á tímum
COVID-19, að taka þá ákvörðun að hætta að prenta
blaðið, alla vega á meðan það ástand varir. Þetta tæki-
færi höfum við notað til að þróa mun stærra og veglegra
blað og viðtökurnar hafa verið frábærar. Lestur á rafrænu
blaði er miklu meiri en við gerðum okkur vonir um og
var í fyrsta rafræna blaðinu meiri en nokkru sinni fyrr.
Við vonumst til að geta þróað það enn meira í stafrænu
umhverfi. Möguleikarnir eru mjög miklir. Það er nóg
pláss og við getum gefið okkar efni allt það pláss sem við
viljum. Lesendur hafa tekið þessu vel og lesa núna blaðið
rafrænt. Yfir 15 þúsund manns opnuðu rafræna útgáfu
VF í síðustu viku. Ekki má gleyma því að margir vilja
ekki blað inn um lúguna á veiru tímum. Nýtt rafrænt
blað er snertilaust.
A ð lokum vil ég hvetja yngra fólk að hjálpa þeim eldri við að taka á móti þessum stafrænu breytingum.
Hjálpið ömmu og afa, mömmu og pabba að lesa blaðið
í spjaldtölvunni eða tölvunni. Sum þeirra þurfa kannski
smá hvatningu og hjálp til þess.
Höldum áfram að berjast. Góðar stundir!
Páll Ketilsson
ÞIÐ HAFIÐ HERINN!