Víkurfréttir - 02.04.2020, Qupperneq 26
26 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 2. apríl 2020 // 14. tbl. // 41. árg.
Hvenær fékkstu fyrst ljósmynda-
áhuga?
Á unglingsárunum í Kópavogi var
Æskulýðsráð með ljósmyndanám-
skeið þar sem Gísli Gestsson leið-
beindi. Fór með okkur í mynda-
leiðangra, kenndi okkur framköllun
o.s.frv. Síðan hefur þessi áhugi
blundað. Sinnti þessu ekki í nokkur
ár en svo blossaði áhuginn upp að
nýju – til allra hamingju.
Hvað varð til þess að áhuginn
kviknaði?
Upphaflegt námskeið og síðar líklega
þegar maður fór að sjá stöðugt meira
af myndum hér og þar.
Hver var fyrsta myndavélin þín?
Mjög einföld og lítil Kodak vél fyrir
filmur.
Áttu þér einhverja fyrirmynd í ljós-
myndun. Uppáhalds ljósmyndara?
Þeir eru nú svo margir. Flestir detta
annað slagið niður á góðar myndir
en get nefnt flotta gæja eins og Einar
Fal Ingólfsson, Einar Erlendsson,
Hilmar Braga, Ella Grétars, Rax,
Guðmundur Falk (fuglamyndir) og
fleiri slíka.
Hefur þú sótt einhver námskeið?
Hafa þau hjálpað þér?
Námskeiðið í Kópavogi lagi grunn-
inn. Síðan fór ég í góða upprifjun
hjá Oddgeiri og Ella Grétars fyrir
nokkrum árum. Það ýtti mér vel af
stað aftur. S.l. haust sótti ég svo tvö
krefjandi námskeið á netinu
– ótrúlega vel gerð. Annað fyrir
almenna ljósmyndun en hitt fyrir
ljósmyndun á iPhine. Tók svo eitt
kvöld í vetur hjá Origo. Þetta er stór
heimur og maður er alltaf að læra
eitthvað nýtt. Svo er mjög gagnlegt
einfladlega að spyrja reynda ljós-
myndara sem alltaf virðast tilbúnir
að gefa ráð.
Hvað er í ljósmyndatöskunni þinni
í dag? t.d. hvernig linsur og hvaða
vél.
Canon 70D með Tamron 18-200
linsu. Í töskunni eru svo linsur:
Canon 18-55, Canon 18-300 og
Canon 18-400.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
ljósmynda? Hvaða tegund ljós-
myndunar heillar þig mest?
Skemmtilegast er að fanga augna-
blikið. Vera stöðugt með augu opin
fyrir skemmtilegu motivi – smáu
sem stóru. Leita mikið eftir fólki við
sérstakar aðstæður, fuglamyndum,
veiðimyndum, landslagi, borgarlífi
og ekki síst hinu smáa í náttúrunni.
Ertu alltaf með ljósmyndavélina við
hendina til að grípa augnablikið
eða þarftu að setja þig í grírinn og
fara í ljósmyndaleiðangur?
Hvort tveggja á við. Er með iPhone
11 Pro og myndavélin í honum er
frábær. Er þess vegna alltaf tilbúinn
að grípa símann. Fer þess á milli í
sérstakar ferðir með töskuna góðu og
græjurnar.
Hvað er það sem skiptir máli í ljós-
myndun? Veltir þú mikið fyrir þér
myndbyggingu.
Mestu finnst mér skipta að hafa
áhugann og vera stöðugt að horfa
eftir myndefni. Bæði kryddar það
tilveruna að kíkja þannig eftir um-
hverfi sínu en líka opnar það á að ná
skemmtilegum myndum sem maður
á svo áfrsam. Pæli alltaf í ramm-
anum, s.s. forgrunni, baksviði, birtu
o.s.frv. Finnst t.d. skkemmtilegra
að hafa fólk í forgrunni á breiðum
landslagsmyndum.
Tekur þú mikið af myndum í hverri
myndatöku?
Alveg haug. Meirihluti mynda, sem
maður tekur, eru bara ósköp hvers-
dagslegar en svo poppar upp inn
á milli MYNDIN sem maður vill
varðveita. Þeim safna ég í sérstaka
möppu sem kallast einfaldlega sér-
stakar myndir.
Áttu uppáhalds staði til að ljós-
mynda?
Staðurinn, sem ég er á hverju sinni,
er minn uppáhaldsstaður til ljós-
myndunar.
Ertu að vinna með myndirnar þínar
í tölvu? Hvaða hugbúnað ertu að
nota.
Er tiltölulega nýbyrjaður að fikra
mig áfram í Lightroom og Snapseed.
Þá má laga myndir töluvert á Google
Photos.
Hið smáa í náttúrunni
ÁHUGALJÓSMYNDARINN HJÁLMAR ÁRNASON
Hjálmar Waag Árnason
nýtur þess frelsis að vera
ekki í fastri vinnu. Hann
dundar sér við verkefni
sem eru skemmtileg og
forðast leiðindi.
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is