Varnarmál - 01.06.1931, Side 12

Varnarmál - 01.06.1931, Side 12
12 ekki endurtekningar við. Það er og nálega ár síðan Haraldur ræddi um önnur atriði mér viðkomandi, sem eru rétt sögð eftir minni móður minnar og annara. Mig minnir að Harald- ur segði ekkert um það, hvers vegna foreldrar mínir voru stödd í Betlehem þegar eg fæddist, en það var vegna mann- tals skyldunnar sem þau voru að fullnægja. Undireins eftir manntalið héldu foreldrar mínir heim aftur með mig, og fór þá æfi mín að byrja í heimahögum, Nazaret. Sögurnar um dúfurnar og hinn opna himinn gátu ekki hafa myndast við nokkra skírn, nema þessa barns-skírn mína, þvi eg átti enga aðra skírn. Hitt var hægðarleikur að skálda um aðra skírn við ána Jordan, gera hana tilkomu meiri, og færa dúfurnar og hinn opna himinn þangað. Þeir hafa lyft þyngri steini en það í þessum skáldverkum sínum. Eins var um jötuna, heimsókn og gjafir þessara svo köll- uðu vitringa frá Austurlöndum, og um fjárhirðana. Það var ekki hægt að Ijúga þeim sögum upp þegar í stað, því nóg vitni gátu þá þegar borið um það, að ekkert slíkt átti sér stað á meðan foreldrar mínir dvöldu í gistihúsinu. En síðar, þegar sumir voru dánir, aðrir komnir í burtu, og alt orðið eins og í þoku um það, sem skeð hefði við þessa barns-fæðingu, þá var hægt að búa til alt, og segja fáfróðu fólki alt. Það eru eng- in skáld, sem ekki kunna tökin á skáldskapnum svo fólk trúi. Þá vil eg taka það fram að sagan um það, að engill hafi átt að birtast móður minni og boða henni getnað minn, er hin mesta lýgi, sem ætíð síðan hefur valdið henni hinnar mestu sorgar, eins og fjöldi annara ósannra sagna um Guð, hana sjálfa og mig. Eg er þeirra eigið hjónabands barn, og fædd- ur að haustinu, því á þeim tíma ársins fór hið umrædda manntal fram. Þessar sögur, sem eg og Haraldur höfum sagt frá, voru samdar til þess að grundvalla endurlausnar lýgina, sem náði svo föstum tökum á miklum mannfjölda í heiminum. Þetta fargan hefur orsakað hinn mesta. sársauka, eigi aðeins mér sjálfum, heldur jafnframt ættingjum mínum og vinum, og á eg engin orð til að lýsa honum. Þó er sársauki þessi ekki mér svona tilfinnanlegur, aðeins vegna mín sjálfs og minna, held- ur jafnframt vegna alls þess fjölda fólks, sem treystir á ó- sannindi þessi, og líður því svo mikil vonbrigði og böl síðar. Eg veit að alt, sem hér er sagt um mál þessi, er mjög ólíkt ’því sem þið hafið verið frædd um í trúarbrögðum ykkar. Við

x

Varnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Varnarmál
https://timarit.is/publication/1449

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.