Varnarmál - 01.06.1931, Page 13

Varnarmál - 01.06.1931, Page 13
13 því er ekkert að gera þegar sannleikann á að segja, og hon- um ber ekki saman við hinar gömlu sagnir. Þetta er trúverð- ugasta leiðin til að flytja sannleikann og sést hún rétt að vera í vorum guðlega heimi. Ykkar bróðir og vinur í Guði, Joheannes, sonur hjónanna. Jósefs og Maríu. IV. Séra Jónas Jónasson á fundi 7. nóv. 1930. Eg, Jónas frá Hrafnagili, heilsa ritstjóra Bjarma. Heilir þér Ástvaldur vor. Það er ekki langt síðan að eg sá orð frá mér, og umsögn yðar um þau, í blaði yðar. Eg hafði mælt orðin að næturlagi í áheyrn konunnar, sem tók þau niður, eins og skýrt er frá í »Ljóðum og Ræðum«. Þegar manni er gert eitthvað vel til, þá skapast ætíð skuld, sem vert er að borga, sé þess nokkur kostur. Nú hafið þér sæmt höfunda vora að »Ljóðum og Ræðum« því, sem ógoldið er fyrir. Má þá ekki minna vera en a*S sýna lit á því, að gera slíkum manni sem þér eruð einhver skil. Stundum er maður nær en heimsbúar hyggja, er ræða um vor mál. Finst okkur oft mentamannslegra að heimsbúar fá- ist við bjálkann í sínu eigin auga, áður en þeir gera gang- skör að því, að ná flísinni úr auga meðbróður síns. Bjálkan- um heldur sterkari taug en flísinni, og því meiri þörf að losa um hann. Svo hefði mörgum komið betur að gera í tíma, og svo mun yður koma betur. Minnist eg Gottskálks meðal ann- ara, sem fékk sinn dóm um leið og hann dó, og situr æ síðan í svartasta myrkri. Eru ólík kjör hans og Jóns Sigmunds- sonar. Trúið þér því? Vera má að fleiri stökur sjáist frá mér síðar með tilhjálp þessarar sömu konu, sem er reynd að aðdáanlegu sálareðli, og sem fylgir ráðstöfun góðs Guðs í málum þessum. Höfum við, hinir ósýnilegu, sannanir fyrir því, að ekki standið þér þar eins vel að vígi og hún. Ekki fæst eg um það, þó skrift- lærðum og fariseum þyki það lítill skáldskapur. Þeir eiga eftir að flækjast hingað, og sjáum þá hvernig fer. Margir hittumst við aftur, og kemur þá í ljós hvernig þeim tekst.

x

Varnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Varnarmál
https://timarit.is/publication/1449

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.