Varnarmál - 01.06.1931, Side 14

Varnarmál - 01.06.1931, Side 14
14 Hugsið yður það, ritstjóri góður, að Guð er dómarinn en ekki þér. Má þó vera að þetta sé gagnstætt yðar eigin hug- mynd, en við hér sjáum ekki í hyllingum Guðs ráð og stjórn, og vitum um sannleikann betur en áður. Þér getið því gert yður hlægilegan einu sinni enn. Ekkert gerir það okkur til. Kann að vera ofurlítið óþægilegra fyrir yður sjálfan síðar, sem meðferð Gottskálks á Jóni. Yðar störf ættu að stefna að öðru en vondum hugsunum og heimskulegum orðum. Það er svo enginn anna-r en Guð sjálfur sem ræður, hvort sem yður líkar vel eða miður. Þá hef eg sýnt lit á lítilsháttar borgun fyrir mig. Það er sem fyr'að eg reyndi að standa í skilum. Verið þér sælir. Jónas Jónasson, áður á Hrafnagili. V. Séra Gunnar Gunnarsson á fundi 8. nóv. 1930. Eg stílfæri orðin sjálíur, og þó eigi sé sem áður var, þá eru þau engu að síður mín. Fyr vorum við kunnugri rithætti málsins, þar sem maður fékkst daglega við fræðslu. Nú verð- um við að beygja okkur undir það, er hér í eilífum heimi gerist skyldugra að læra fyrir eilífðina, svo ritháttur og framsetning fer ver en áður. En alt um það má vel komast að efninu, og ætti hver og einn að hugsa sig tvisvar um áður en hann hrópar: Slík lýgi, að eigna mevjamönnum vorrar þjóðar því líkt bull! Efnið er það, sem sérstök áherzla er lögð á, þó vorum leiðandi mönnum í okkar heimi sé borið á brýn, að þeir fari með röng orð og rangar kenningar. Þú vinur, Ástvaldur Gíslason, er eg ávarpa fremur en aðra, ættir ekki að grafa þér of dimma gröf, því þú stendur í ykkar heimi. Vita læt eg þig að ert sjálfur sá, er stendur völtum fæti þar. Þú veizt aðeins útvegi til þess, að ekki skilj- ist rétt það, er þú fer með. Völd hef eg, segir góður Guð. Fræðakerfi ykkar heims á stutt líf fyrir hendi, og berið eigi sársauka út af því. Ykkar störf í heiminum vara skamt, en eftirtekjan varir lengur, og er vel að gefa orðum þeim gaum þó komi frá ósýnilegum, þó áður kunnum, klerki. Væri því

x

Varnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Varnarmál
https://timarit.is/publication/1449

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.