Varnarmál - 01.06.1931, Blaðsíða 23
23
ið með mér áður, og enn meiri þakkir fyrir starfið eftir að
eg fékk lausnina. Verið öll góðs Guðs um tímann og hið ei-
lífa líf. Hin göfuga staða ykkar, að flytja orð góðs Guðs til
heimsins, er hin veglegasta staða sem til er, og á ekkert
skylt við daglegt þvaður, þó frá okkar heimi sé flutt. Þökk
ykkur öllum fyrir mig fyr og síðar. Nú má eg finna ykkur
sem maður og góður hróðir úr þessu, því við erum að verða
sameiginleg börn vors góða alföður. Svo fer eg út í hans
nafni.
Johednnes, sonur hjónanna Jósefs og Maríu, sem heimur-
inn hefur kallað og kallar enn Jesú Krist.
Guði sé lof, segjum við allir, er störfum undir merkjum
góðs Guðs. Þetta. er staðfest með nöfnum okkar sem erum
viðstaddir:
Stefán Stefánsson, vörður »Varnar«.
Steingrímur Þorsteinsson, vörður »Varnar«.
Kristján Jónsson, læknir.
Guðmundur Arason, áður biskup á Hólum.
* * *
2. — Orðin eru staðfest, sem bróðir vor sá í nótt, því þau
eru til sýnis.
f náðar nafni góðs Guðs segi eg Joheannes hafa sagt lof-
samlega vel frá efninu, er hann var að tilkynna. Það er eng-
in fjöður drégin yfir nokkurn hlut, og má því heimurinn
þakka af allri sál sinni fyrir það, sem nú er orðið opinbert.
Ekki er til nokkurs hlutar fyrir einn né nokkurn að fela orð-
in: Leystur frá endurlausnarr kallinu, því enginn er til í ríki
góðs Guðs, á eilífum tilverusviðum, sem ekki veit nú um op-
inberunina. Það er því ráð fyrir hinn gutlgjarna, en svo
* nefnda kristna heim, að fylg'jast með opinberuðu orðunum,
því enginn maður hefur þau hugsað né sett með gullnu letri
á himinhvolfið. Gagnar því hvorki fyrir heiminn né okkur í
hinum svo nefnda andaheimi, að ganga frarn hjá því, sem
vor Guð einn vill að takist til greina.
Öll vandræða óvissan er liðin hjá, eftir svona stórkostlegar
guðlegar opinberanir, sem allir verða að fara eftir vilji þeir
á annað borð segja. orð. Við höfum fengið ótæmandi styrk
til flutnings mála vorra. Guð er hinn blessaði stjórnandi, og