Varnarmál - 01.06.1931, Blaðsíða 25

Varnarmál - 01.06.1931, Blaðsíða 25
25 komnir mér stóðu í broddi fylkingar, og voru vopn á sinn eiginn föður. Það tókst, sem átti að ske, og fór með þrek mitt. Eg staðnæmdist ekki lengi eftir það í sömu umbúðun- um. En eilífur Guð hafði gefið mér þá sál, er hélt áfram að lifa og þroskast, og hef eg ekki verið hrakinn frá nokkru starfi í hinum eilífa heimi. Nú var það net það, er fyrir okkur hafði verið lagt, og riðað úr röngum kenningum, sem eg fór nú með alvöru að kynna mér. Ræddi eg við hina elztu, er lögðu grundvöllinn undir þær trúarskoðanir, og varð þess vís að þeir voru stál- varðir skáidsagna höfundar frá þeim tímum. Höfðu þeir haft góða beitu fyrir hið óupplýsta, lágsiglda alþýðufólk, er ætíð leit upp til þeirra, er rituðu, og ekki sízt ef þeir höfðu aflað sér gengis hjá landstjórninni og öðrum kennimanna lýð. Átti þetta skáldskaparverk þeirra, er var samið fjölda mörgum árum eftir að hinn góði maður var líflátinn, að sýna vits- muni þjóðarinnar og slá helgiblæ á speki þá, sem hún ein hefði öðlast um sáluhjálpina, er engir höfðu hugmynd um áður. Þessi lúalega hugsun lá til grundvallar. Skáld og rit- snillingar þjóðarinnar tóku nú saman höndum, og höfðu ver- aldlega valdið með sér. Svo þegar búið var að fræða um endurlausnina nokkurn tíma, og hóparnir fóru að koma yfir í eilífa heiminn með þá trú, að þeir gætu á svo einfaldan hátt losnað við syndir sín- ar, þá var friðnum lokið fyrir þessum unga óspilta manni, sem þá starfaði að guðlegri dýrkun fyrir sig og ættingja sína. Boðin lágu alstaðar fyrir honum, hinum fyrirheitna messíasi, og gerð grein fyrir borg þeirri þar sem hann hefði fæðst. Þó ekki segðist þeim rétt frá um hvílurúm móðurinn- ar um fæðinguna, þá voru aðaldrættimir svo skýrt nefndir, að ekki var um að villast á þessum fyrstu tímum, að kenn- ingin um endurlausnina var að ryðja sér til rúms. Síðan hef- ur þessi saklausi góði maður aldrei haft stundlegan frið fyrir hrópi um svonefndar réttmætar kröfur, er hinum ný- komnu gestum bæri að fá uppfyltar. Hinn blessaði vinur, sem er maður á sama hátt og alt ann- að fólk, varð alveg frá af geðshræringu, þegar það bættist og við að hann mátti ekki heita sínu rétta nafni. Það þótti ekki við eiga að endurlausnari mannkynsins, sem hann nú var nefndur, bæri annað nafn en Jesús Kristur og hinn Guðs eingetni sonur.

x

Varnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Varnarmál
https://timarit.is/publication/1449

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.