Varnarmál - 01.06.1931, Qupperneq 31
Þá er rétt að prénta nokkrar opinberanir, sem við höfum
veitt móttöku, aðrar en þær, sem tilgreindar eru í framan-
rituðum erindum. Starfsmenn Varnar segja okkur að allar
þessar og aðrar opinberanir sjáist skýrt úti í lofthafi þeirra
heima, og hvíli sök á þeim ef þeir flytji þær ekki til jarðar-
búa fyrst það sé hægt. Sama sök hvílir á okkur ef við leynum
þeim fyrir öðrum, eftir að hafa veitt þeim móttöku.
Eftir að þær opinberanir, sem birtast í riti þessu, eru orðn-
ar vel kunnar, þá fer það eftir framkvæmdum og mótþróa
jarðarbúa í nálægri framtíð, hvort elskuríkum Guði þóknast
að birta þær í útlofti þessa hnattar, svo fólk geti lesið þær
þar. Málið er hans að öllu leyti.
Hér eru þser:
...»GUÐ er nafn, sem heimurinn hefur valið höfundi tilver-
unnar. »GUЫ, er þvi eiginnafn það, sem merkingin skýrir
um leið. Eg er þá höfundur þeirra hnatta og alls þess sem til
er«. — Guðm. biskup Arason flutti 1. nóv. 1930.
»Bilið er skamt á milli hinna bágstöddu og þeirra, sem alls-
nxgtir hafa. Gefið sérhverjum það fyrst, sem hann þarfnast
til lifsframfærslu á meðan hinn holdlegi líkami hans endist,
svo enginn örmagnist af hungri og þorsta. Réttið blessuðu
mæðrunum brauð, og gefið þeim annað, er þxr þarfnast af-
kvæmum sinum til uppeldis. Óttist ekki gróðurleysi. Það er
séð fyrir nýjum gróðri, verði fyrirkomulaginu breytt. Og
hungur skal engum'að dauða verða, ef heyrið orð min í hin-
um gamla heimi, og gefið því gaum, að þau eru töluð af
dýpstu alvöru eftir alt öfugstreymið á jörðinni, sem hefir þó
yfirfljótanlegt af öllum efnum og möguleikum til þess að
fólki mínu líði vel«. — Steingrímur kennari og skáld flutti
16. jan. 1931.
»Guði ber að hlýða, og orð hans ber að útbreiða«. — Stein-
grímur flutti 13. febr. 1931.
»Vita skulu allir á ný, að liefjist strið milli nokkurra þjóða,
er svo skapi örvæntingu og áður óþektar hörmungar, þá gefst