Mosfellingur - 20.02.2020, Blaðsíða 6
- Fréttir úr Mosfellsbæ6
GERPLUSTRÆTI 21-23
NÝTT Í SÖLU – LOKAÁFANGI
FALLEGT ÚTSÝNI
21
23
Fullbúnar íbúðir, án megin gólfefna
Innréttingar frá GKS
Innbyggður ísskápur og uppþvottavél
Afhending: G 23 í júní 2020 / G 21 í okt 2020
Stærð 81-158 m2
2 til 5 herbergja
Allar íbúðir með stæði í bílgeymslu
Stutt í náttúru
Útsýni úr flestum íbúðunum
OPIÐ HÚS Á SUNNUDAGINN KL. 13-14
Í ÍBÚÐ 101 Í GERPLUSTRÆTI 19
VERÐ FRÁ 40,9 MILLJ.
SALA FASTEIGNA
SÍÐAN 1957
Grensásvegur 11
Sími 588 9090
www.eignamidlun.is
SELT17
SELT19
SÝNINGARÍBÚÐ
Hilmar Þór Hafsteinsson
Löggiltur fasteignas., lögg.
leigumiðlari. Sími 824 9098
Daði Hafþórsson
Löggiltur fasteignasali
Sími 824 9096
FREKARI UPPLÝSINGAR
ALLAR PIZZUR AF MATSEÐLI Á 1.590 KR. EF ÞÚ SÆKIR, 17.–23. FEB. 2020 DOMINOS.IS | 58 12345 | DOMINO’S APPALLAR PIZZUR AF MATSEÐLI Á 1.590 KR. EF ÞÚ SÆKIR, 17.–23. FEB. 2020 DOMINOS.IS | 58 12345 | DOMINO’S APPALLAR PIZZUR AF MATSEÐLI Á 1.590 KR. EF ÞÚ SÆKIR, 17.–23. FEB. 2020 DOMINOS.IS | 58 12345 | DOMINO’S APP
Verðlagseftirlit ASÍ hefur verið að kanna
gjaldtöku sveitarfélaga og kemur Mos-
fellsbær vel út úr þeim athugunum sem
miða meðal annars að því að kanna hvort
sveitarfélög vinni á grunni markmiða lífs-
kjarasamninganna um hóflegar hækkanir
gjaldskráa.
Þannig liggur fyrir að leikskólagjöld
fyrir 9 tíma vistun eru lægst í Mosfellsbæ
þegar litið er til höfuðborgarsvæðisins alls
og næst lægst á eftir Seltjarnarnesi þegar
kemur að 8,5 tíma vistun.
Samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2020
lækka dvalargjöld leikskóla í Mosfellsbæ um
5% þann 1. ágúst sem bætir stöðuna enn
frekar fyrir barnafólk í Mosfellsbæ umfram
þá stöðu sem fram kemur í þeim gögnum
sem ASÍ bjó yfir við gerð skýrslunnar.
Hæstu frístundastyrkirnir í Hafnafirði
og Mosfellsbær kemur fast á hælana
ASÍ kannaði jafnframt upphæð frí-
stundastyrkja í 16 stærstu sveitarfélögum
landsins og reyndist Hafnarfjörður með
hæsta styrkinn eða 54.000 kr.
Í skýrslu ASÍ segir: „Næst hæstu styrk-
irnir eru 50.000 kr. á hvert barn og eru
sveitarfélögin Mosfellsbær, Seltjarnarnes,
Kópavogur, Garðabær og Reykjavík öll með
styrki upp á þá upphæð. Mosfellsbær gerir
þó nokkuð betur en hin sveitarfélögin en
þar hækkar styrkurinn upp í 60.000 kr. fyrir
þriðja og fjórða barn.“
Frístundastyrkur í Mosfellsbæ mun
hækka enn frekar þann 1. ágúst næstkom-
andi í 52.000 kr. með fyrsta og öðru barni og
verður Mosfellsbær þá einn í öðru sæti.
Styrkir miðast við skólaárið
Aldursbilið sem styrkurinn gildir fyrir er
í könnun ASÍ sagt lengra á Seltjarnarnesi,
Kópavogi og Garðabæ eða 5-18 ára en ári
styttra í Reykjavík og Mosfellsbæ þar sem
miðað er við 6-18 ára.
Haraldur Sverrisson bæjarstjóri Mos-
fellsbæjar segir hins vegar að hér gæti mis-
skilnings hjá ASÍ þar sem frístundastyrkir
í Mosfellsbæ miðist við skólaárið en ekki
almanaksárið eins og í öðrum sveitarfé-
lögum.
Það þýðir að í Mosfellsbæ njóta 5 ára
gömul börn frístundastyrkja og það til 18
ára aldurs.
„Mosfellsbær stendur við sínar skyldur
samkvæmt lífskjarasamningum og leggur
áherslu á að standa vel við bakið á barna-
fjölskyldum. Við komum vel út úr saman-
burði sveitarfélaganna og röðum okkur í
efstu sæti til samræmis við framtíðarsýn
okkar um Mosfellsbæ sem fjölskylduvænt,
heilsueflandi og framsækið bæjarfélag
sem setur umhverfið í öndvegi og hefur
þarfir og velferð íbúa að leiðarljósi,“ segir
Haraldur Sverrisson bæjarstjóri að lok-
um.
Leikskólagjöld fyrir 9 tíma vistun lægst •Frístundastyrkur hækkar enn frekar í sumar
Mosfellsbær kemur vel út
úr verðlagseftirliti ASÍ
Samtals 8 tíma vistun og fæði 26.616 33.317 33.470 40.613 31.282 29.052
Samtals 8,5 tíma vistun og fæði 38.260 35.015 44.699 32.709 32.337
Samtals 9 tíma vistun og fæði 37.159 48.150 37.483 48.785 35.563 35.621
Garðabær Mosfellsbær SeltjarnarnesSamanburður gjaldskráa leikskóla í janúar 2020 Reykjavík Kópavogur Hafnarfjörður
Aldursbilið sem styrkurinn gildir fyrir er í könnun ASÍ er sagt lengra á Seltjarnarnesi, Kópavogi og
Garðabæ eða 5-18 ára en að það sé ári styttra í Reykjavík og Mosfellsbæ þar sem miðað er við 6-18 ára.
Haraldur Sverrisson bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir hins vegar að hér gætir misskilnings hjá ASÍ þar sem
að frístundastyrkir í Mosfellsb miðast við skólaárið en ekki almanaksárið eins og í öðrum
sveitarfélögum. Þ ð þýðir að í Mosfellsbæ njóta fimm ára gömul börn frístundastyrkja og það til 18 ára
aldurs. „Mosfellsbær stendur við sínar skyldur samkvæmt lífskjarasamningum og leggur áherslu á að
standa vel við bakið á barnafjölskyldum. Við komum vel út úr samanburði sveitarfélaganna og röðum
okkur í efstu sæti t l samræmis við framtíðarsýn okkar um Mosfellsbæ sem fjölskylduvænt, heilsueflandi
og fram ækið bæjarfélag sem setur umhve fið í öndvegi og hefur þarfir og velferð íbúa að leiðarljósi.“
segir Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri að lokum.