Spássían - 2010, Blaðsíða 10
10
Ástin er sæt og súr
Sítrónur og saffran eftir Kajsu Ingermars-
son kom út nú í vor í þýðingu Þórdísar
Gísladóttur. Í stuttu máli fjallar hún um
sænska yfirþjóninn Agnesi sem hrökklast
úr starfi á fínum veitingastað eftir að
eigandinn reynir að nauðga henni. Sama
dag segir kærastinn henni upp því hann
hafði fundið nýja og brjóstastærri. Til
að bæta gráu ofan á svart eignast hún
nágranna sem pirrar hana. Við tekur
tími sjálfsvorkunnar og leiða sem endar
á botninum þar sem hinn fíni yfirþjónn
neyðist til að taka að sér afgreiðslustarf á
skítamatsölustað. En af botninum er hægt
að spyrna sér og tækifærin leynast handan
við hornið.
Gamall vinur ætlar að opna nýjan
veitingastað og Agnes er fljótt komin aftur
í stöðu yfirþjóns. Saman reyna vinirnir að
byggja upp farsælan rekstur og komast
að því hver matargagnrýnandinn Lóla er
í raun og veru. Inn í þessa veröld flækjast
síðan erfiðir vinir, fjölskylduharmleikur
og gamlir og nýir kærastar með vandamál
í farteskinu.
Sítrónur og saffran kom fyrst út í Svíþjóð
árið 2004 og heitir á frummálinu Små
citroner gula eða Litlar gular sítrónur, sem
er einmitt nafnið á veitingastaðnum sem
Agnes og vinir hennar fara af stað með.
Sagan er létt og skemmtileg en nokkuð
fyrirsjáanleg og formúlukennd. Það er
fátt sem kemur á óvart við framvinduna
og þótt aðalsöguhetjan sé ánægjulega
laus við kaupsýki og skóblæti er hún
líkt og klassíska ástarsöguhetjur búin
óteljandi aðlaðandi eiginleikum sem
hafa hingað til verið vanmetnir en fá
nú loks að blómstra. Bókin sver sig
þannig í skvísubókmenntahefðina
þar sem sjálfsefi og mislukkaðar
uppákomur eru aðaldrifkraftarnir í
lífi aðalpersónunnar.
Kápan, sem hönnuð er af Önnu
Cynthiu Leplar, er sérstaklega falleg
og nær vel að fanga þann ferska
keim sem bæði veitingastaðurinn
í sögunni og höfundurinn sækjast
eftir.
Haltu mér, bíttu mig
Vampírur eru ekki svo ólíkar okkur og
vilja aðeins vera metnar að verðleikum.
Þær óska þess síst að drepa menn og
segjast geta lifað í sátt og samlyndi ásamt
mennskum bræðrum sínum og systrum
svo lengi sem þeim er tekið opnum örmum
og gerviblóðið Tru blood er í stöðugri
framleiðslu.
Ja, svona flestar þeirra.
Vampírubálkurinn hennar Charlaine
Harris hefur farið sigurför um heiminn.
Bækurnar eru orðnar 10 talsins og
sjónvarpsþáttaröðin True blood, sem
sýnd er á Stöð 2, er byggð á þessum bálki.
Fyrsta bókin, Dauð þar til dimmir (Dead
until Dark), kom nýverið út í þýðingu
Höllu Sverrisdóttur. Aðalsöguhetjan
er Sookie Stackhouse, ung og ákveðin
gengilbeina sem fellur fyrir hinni heillandi
en hættulegu vampíru Bill Compton.
Sögurnar gerast flestar í Suðurríkjunum
nánar tiltekið í Louisiana, þar sem
fornir menningarstraumar mætast og
náttúruöflin eru ríkjandi í lífi fólks.
Margvíslegar náttúruvættir skjóta upp
kolli og valda usla í annars rólegu lífi
venjulegs fólks. Útkoman er því oft
skopleg og farsakennd.
Bækurnar um Sookie Stackhouse
sverja sig í þá vampíruhefð sem hefur
skapast undanfarinn áratug. Vampírur
eru ekki lengur aðeins hættulegar vættir
næturinnar sem leita á gjafvaxta stúlkur
eins og hver önnur rándýr. Þær eru
flóknar tilfinningaverur sem láta stjórnast
af margvíslegum hvötum.
Við höfum samúð með þeim,
erum jafnvel með þeim í liði,
og þekkjum í þeim okkar eigin
hvatir, óbeislaðar. Bókarkápa
íslensku útgáfunnar ber þess
vitni, þar sem blóði drifnar
varir sleikja munúðarfullt
útum. Er þar um beina tengingu
við sjónvarpsþættina að ræða,
en þessi ljósmynd var hluti af
kynningarefni fyrir þættina þegar
þeir hófu fyrst göngu sína árið
2007.
Höfundur þáttanna er Alan
Bell en hann er betur þekktur
sem handritshöfundur Óskars-
verðlaunamyndarinnar American
Beauty og sjónvarpsþáttanna Six
feet under. Líkt og True Blood
voru þeir þættir framleiddir fyrir
kapalstöðina HBO. Sú stöð er þekkt
fyrir framleiðslu á hispurslausu
efni á borð við The Sopranos og Oz
og voru framleiðendum True blood
því litlar sem engar skorður settar.
Blóðið flæðir og kynlífið er kröftugt.
Þótt bækur Charlaine Harris bjóði
vissulega upp á sama matseðil er ekki
hægt að segja að skammtarnir séu jafn
stórir. Alan Bell gerir sér gómsæta máltíð
úr krassandi aðstæðum sem bækurnar
rétt smakka á.